Vikan - 15.05.1986, Side 23
Mickey Rourke er leikari sem er á hraðri
leið upp stjörnuhimininn í Hollywood og eftir
leik sinn í The Year of the Dragon er hann
nánast kominn á toppinn. Hann á ekki margar
kvikmyndir að baki, en öll hans hlutverk í
kvikmyndum hingað til hafa dregið að sér at-
hygli áhorfandans. Hvar sem hefur verið
skrifað um hann er hann oftast settur á bekk
með ungu stjörnunum í Hollywood, Matt Dill-
on, Tom Cruise, Rob Lowe og fleiri, en Rourke
er öðruvísi en þeir. Eina sem hann á sameigin-
legt með þeim er að hann kom fram á sjónar-
sviðið um sama leyti og þeir, þá eldri en í sams
konar myndum.
Mickey Rourke vakti fyrst athygli í mynd
Lawrence Kashdan, Body Heat. Þar lék hann
sprengjusérfræðing sem William Hurt fær að-
stoð hjá. Þar er hann strax kominn í hlutverk
eins og þau sem hafa einkennt feril hans hing-
að til; ungur maður sem berst á móti kerfinu,
er einrænn og hefur ekki áhuga á samskiptum
við aðra.
Rourke, sem er rúmlega þrítugur, hefur yfir-
leitt virst eldri í myndum sínum en hann er.
Og raunin er sú að til dæmis í The Year of
the Dragon gerir hann það viljandi með því
meðal annars að lita hár sitt grátt.
Það er kannski ekki einkennilegt að Mickey
Rourke skuli kjósa að leika utangarðsmenn.
Hann átti erfitt uppdráttar í æsku og kemur
það fram í því í dag að hann hefur erfitt skap
og ástundar villt líferni án þess að hugsa um
afleiðingarnar. Mickey Rourke er einn af þeim
sem með öðruvísi ákvörðunum hefði eins getað
lent röngum megin við lögin. Þegar hann var
sjö ára skildu foreldrar hans og hann flutti til
Miami með móður sinni. Þar lenti hann fljótt
í slagtogi með alls konar vandræðalýð. Stjúp-
faðir hans, sem er lögreglumaður, reyndi margt
til að beina honum á betri brautir. Meðal ann-
ars sendi hann drenginn til æfinga á íþróttastöð
í nágrenninu, aðallega þekkta fyrir að Mu-
hammad Ali æfði þar. En ekkert dugði. Strákur-
inn var strax kominn aftur á götuna.
Svo var það loks þegar Mickey Rourke var
orðinn nítján ára að hann tók sig til, snikti sér
far til New York og tókst einhvern veginn að
komast að í hinum fræga skóla, The Actors
Studio. Meðan hann stundaði leiknámið vann
hann alls konar störf sem buðust. Má nefna
að eitt sinn seldi hann ís á götuhorni. En sjálf-
sagt er sérkennilegasta starfið dyravarsla í
næturklúbbi sem aðallega er sóttur af kynskipt-
ingum. Þessi reynsla hans varð honum gott
veganesti þegar hann að loknu námi fór að
leita sér að atvinnu innan leikarastéttarinnar.
í nokkur ár lék hann hin ýmsu aukahlutverk
í sjónvarpsþáttum. Oftast var hann beðinn að
leika unga sálsjúka menn.
Meðan á löngum meðgöngutíma Heavens
Gate stóð, en þar var Mickey Rourke statisti,
kynnti hann sér hina ýmsu starfsemi við gerð
kvikmynda og er ekki ólíklegt að Michael Cim-
ino hafi fyrst tekið eftir þessum unga manni
og munað eftir honum þegar hann var að undir-
búa The Year of the Dragon.
Nú fóru hlutirnir að snúast hratt, Mickey
Rourke í vil. Eftir hlutverkið í Body Heat fékk
hann hlutverk eins úr klíkunni í Diner sem
leikstýrt var af Barry Levenson. Myndin fékk
góðar viðtökur hjá gagnrýnendum sem áhorf-
endum og var hlutur Rourke sérlega góður í
myndinni. Hann reyndi síðan mikið til að fá
hlutverk í mynd Francis Coppola, The Outsid-
ers, en það mistókst. 1 staðinn fékk Coppola
honum hlutverk í næstu mynd sinni, Rumblef-
ish, mynd sem er ógleymanleg hverjum sem
hana sér. Þar komu vel í ljós hæfileikar Rourke
að skera sig úr fjöldanum án þess að þurfa
nokkuð að hafa fyrir því. I Rumblefish leikur
hann utangarðsmann sem lifir ofbeldisfullu lífi,
ungan mann sem yngri bróðirinn lítur upp til
og allir hræðast en undir hörðu yfirborðinu er
góð sál sem hefur séð of mikið í skúmaskotum
lífsins.
1 næstu mynd sinni slær Rourke á aðeins
léttari strengi. í The Pope of Greenwich Vil-
lage leikur hann að vísu sakamann en sá snýr
þó til betri vegar. í hinni umdeildu kvikmynd
Michaels Cimano, The Year of the Dragon,
leikur hann loks mann sem er réttu megin við
lögin. Hann leikur pólskættaðan lögregluþjón
sem látinn er hafa umsjón með kínversku
hverfi í New York. Hann setur allt á annan
endann í aðgerðum sínum gegn glæpamönnum
hverfisins. Mickey Rourke undirbjó sig vel fyr-
ir þetta hlutverk. Hann fékk að fylgjast með
lögreglumanni í Los Angeles í þrjá mánuði. Sá
þótti harður í horn að taka og meðal annars
lenti Rourke með honum við vettvangsrann-
sókn á tuttugu og átta morðum þessa þrjá
mánuði. Og það var í raun Rourke sjálfur sem
átti stærstan þátt í að skapa lögregluþjóninn í
myndinni. Það var hans hugmynd að lita hár
sitt grátt eins og áður sagði og það var einnig
hans hugmynd að ganga alltaf með hatt eins
og leikararnir í lögreglumyndum á fjórða og
sjötta áratugnum gerðu.
The Year of the Dragon hefur fengið mjög
góðar viðtökur í Evrópu en sömu sögu er ekki
hægt að segja um Bandaríkin. Þar hefur hún
verið rökkuð niður, talað um kynþáttahatur,
ofbeldi og myndin talin alltof löng.
Það virðist einnig ætla að verða umtal um
nýjustu kvikmynd Mickeys Rourke, 9 1/2
Weeks. Þykir hún ganga heldur langt í kynlífs-
atriðum og meðleikari Rourke, Kim Bassinger,
hefur sakað leikstjórann, Adrian Lynne, um
að hafa beitt þvingunum til að fá hana til að
leika í atriðum sem misbuðu sómatilfinningu
hennar. Mynd þessi er búin að vera hálfgert
vandræðabarn hjá framleiðendunum og kusu
þeir að klippa nokkur svæsnustu atriðin úr
henni áður en hún var sett á markaðinn fyrir
stuttu.
Mickey Rourke hefur ekki leikið í mörgum
kvikmyndum hingað til, þó er hægt að fó
fjórar þeirra á vídeóleigum. Þær eru:
Body Heat
Diner
Rumblefish.
The Pope of Greenwich Village
20. TBL VIKAN 23
L