Vikan - 15.05.1986, Page 39
Hefui' þú einhvern tíma byggt eitt-
hvað svo sem eins og lítið fuglahús?
Þú byijar á því að tína til það sem
til þarf; timbur, lím, málningu og
fleira - og byrjar svo að byggja.
Meðan á byggingu fuglahússins
stendur þarftu kannski að saga timbr-
ið til og eftir verður þá sag á gólf-
inu. Þú beyglar nokkra nagla og
hendir þeim til hliðar. Þú notar
gamla tusku til að þurrka burt máln-
ingu sem fór út fyrir. Þegar smíði
hússins er lokið tínir þú saman allt
ruslið og fleygir því. Sagið, naglarn-
ir og tuskan eru rusl eða úrgangur
þeirrar orku og efna sem þú notaðir
til að byggja fuglahúsið.
Við hvaðeina sem þú tekur þér fyr-
ir hendur - hvort sem það er að
steikja egg, byggja hús eða reikna
heimadæmin - verður til úrgangur.
Þegar því sem þú varst að fást við
er lokið verður þú að losa þig við
eggjaskurnirnar, afgangstimbrið eða
samanvöðluðu blöðin úr stílabók-
inni þínni.
Nákvæmlega sömu sögu er að
segja um það verkefni eða starf að rifbeinum. Ekki eru þau sérlega stór,
halda líkamanum gangandi. Við það á stærð við mannshnefa og vega
verða líka til ýmis úrgangsefni, það rúmlega 100 grömm. En þau vinna
er að segja efnasambönd sem verða gífurlegt starf. Það eru þau sem
til þegar frumurnar brenna orku. Til hindra að úrgangsefnin, sem til
þess að halda heilsunni verðum við verða í líkama þínum, eitri út frá sér.
að losa okkur við þessi úrgangsefni Imyndaðu þér að nýrun séu tvær
vegna þess að þau geta verið okkur þvottavélar, stöðugt í gangi. A hverri
hættuleg og hér er það sem nýrun mínútu streymir í gegnum þær um
koma inn í spilið. það bil lítri af blóði og það kemur
Ef þú teygir höndina aftur á bak frá nýrunum nýþvegið og hreint. Á
og snertir neðsta rifbeinið ertu með einni mannsævi þvo nýrun tæpar 4
höndina um það bil á þeim stað sem milljónir lítra af blóði. Það magn
nýrun eru. Þú getur samt ekki þreif- myndi nægja til að mynda lítið
að á þeim því nýrun liggja langt inni stöðuvatn.
í kroppnum, vel varin af fitulagi og Nýrun er hvorki sérlega falleg út-
lits né stór en þau eru ótrúlega vel
útbúin og eru reyndar með flóknari
líffærum mannslíkamans. Þau eru
þakin þéttriðnu neti örsmárra pípa
sem sía blóðið. I hvoru nýra fyrir sig
er um það bil ein milljón slíkra pípa.
Blóðþvottur nýrnanna er lífsnauð-
synlegur. Eiturefni, sem myndu að
öðru kosti gera þig fárveikan eða
jafnvel drepa þig, eru þvegin úr blóð-
inu og flutt burt frá nýrunum með
þvagi. Þvagið safnast í þvag-
blöðruna. Þegar hún fyllist strekkist
á henni og við það senda taugafrum-
ur skilaboð til heilans sem segir þér
að nú sé þér mál að pissa. Mannslík-
aminn framleiðir einn til tvo lítra
af þvagi á sólarhring.
Nýrun eru þó meira en mannleg
þvottavél. Þau hjálpa líka til að við-
halda efnajafnvægi líkamans sem er
bæði erfitt starf og flókið.
I heilbrigðu fólki starfa bæði nýrun
en stundum geta sjúkdómar eða slys
eyðilagt annað nýrað. Til allrar
hamingju getur hitt nýrað í slíkum
tilvikum starfað áfram af fulum
krafti og viðhaldið heilbrigði þinni.
Ef bæði nýrun eru ónýt geta
læknavísindin oft hjálpað upp á sak-
irnar. Síðastliðin 30 ár hafa læknar
getað grætt nýtt nýra í ef bæði nýrun
bila. Einnig er hægt að hreinsa blóð-
ið með sérstökum útbúnaði sem
kallaður er gervinýra. Sú hreinsun
fer fram á sjúkrahúsum og er gerð
með reglulegu millibili.
Að öllum líkindum hugsar þú ekki
mikið um nýrun og þarft þess ekki
heldur að öllu jöfnu. Þau eru óþreyt-
andi við blóðþvottinn og jafnvel
þegar þú sefur heldur þvottavélin þín
ótrauð áfram vinnu sinni.
20. TBL VIKAN 39