Vikan - 15.05.1986, Page 60
umarfrí er lausnarorð margra
eftir langan og strangan vetur.
Sjálfsagt dreymir marga um að
komast til útlanda og vissulega er
framboðið mikið á utanlandsferð-
um. Sólarlandaferðir til Mallorka,
Rhodos, Costa del Sol og allra
hinna draumastaðanna kosta
flestar eitthvað á bilinu 25 til 35
þúsund krónur ef miðað er við
þriggja vikna dvöl. Yfirleitt er
ódýrara að vera í íbúð mörg saman
en á hótelherbergjum, á móti kem-
ur að á hótelum er þjónustan
yfirleitt meiri. Aðalferðamanna-
straumurinn liggur til sólarlanda
í júlí og ágúst og þá eru ferðirnar
ívið dýrari en snemma sumars eða
á hausti. Það er mikil kúnst að
velja réttu ferðina á réttum tíma
á sem hagstæðustu verði og því er
sjálfsagt að nýta sér upplýsinga-
þjónustu ferðaskrifstofanna til
hins ýtrasta.
Á
!■ A. nnar skemmtilegur ferða-
möguleiki er lestarmiðinn Inter-
rail, sem þó er einungis boðinn
fólki sem er yngra en tuttugu og
sex ára. Interrail-miðinn heimilar
eigandanum ótakmarkaðar ferðir
með lestum um alla Evrópu í einn
mánuð. Ferðaskrifstofa stúdenta
selur Interrail-miðana hérlendis og
kosta þeir nú 8000 krónur íslensk-
ar. Lestarflakkarar þurfa að
komast úr landi og í samband við
lestarkerfi Evrópu, en ódýrasti
möguleiki til þess er hjá sömu
ferðaskrifstofu, mánaðar pexmiði
til Luxemburg á rúmar 13 þúsund
krónur. Það er geysilega gaman
að flækjast milli staða, vera annan
daginn í París og hinn í Róm - nú
og ef hitinn og mannmergðin verða
þreytandi þá má alltaf hoppa upp
í næstu lest til sveitaþorpa Austur-
ríkis.
Það er hægt að ferðast til út-
landa á fremur ódýran máta en þó
má ekki gleymast að það kostar
líka sitt að lifa í útlandinu - og
svo er það nú danska spægipylsan,
tollurinn, konfektkassinn og fleira
og fleira sem tínist til á heimleið-
inni.
E
ruð þið búin að gleyma því
hve sumarið er yndislegt á Islandi?
Það getur varla verið því allir eiga
minningar um bjartar nætur, þyt
í laufi, þrastasöng og allt það. Og
það er eins og sífellt fleiri séu að
uppgötva að utanlandsferðir eru
ekki einu draumasumarfríin, sem
sést best á gífurlegri aðsókn í sum-
arhús ýmissa félagasamtaka og
verkalýðsfélaga. Þeir sem ekki
treysta sér í tjald þurfa ekki lengur
að píra augun á eftir sumarbú-
staðafólkinu því ætla má að alls
séu vel á fjórða hundrað orlofshús
á landinu. BSRB á til dæmis fjölda
húsa í Munaðarnesi og að Stóru-
Skógum og þau eru yfir hásumarið
leigð í vikutíma á 3600 krónur þau
stærri og 2100 þau minni. Vor og
haust eru húsin leigð fyrir minni
upphæð. Orlofshús Alþýðusam-
bandsins, eins og til dæmis hús
Dagsbrúnar í Ölfusborgum, eru
leigð á 2500 krónur fyrir vikuna
og er það jafnaðarverð allt árið.
r
slensk náttúrufegurð, hangi-
kjöt og flatbrauð er alveg draum-
ur, sérstaklega ef veður er gott.
Þá jafnast ekkert á við sundsprett
í lítilli sveitalaug og sólbað milli
mosaþúfna sem skýla fyrir norðan-
strekkingnum.
Rómantíska parið þarf ekki að
velta sumarfríinu fyrir sér, það fer
auðvitað með rauðvín, camembert
og tveggja manna tjald á Þingvöll
eða Laugarvatn - í miðri viku.
Neonlitirnir eru allsráóandi í Útilífi í Glœsibce. Bleiki bolur-
inn með gulu slaufunni kostar 2200. Sá skarbleiki með
stjörnwmm er á 1990 og gulgrœni pifubolurinn kostar 2700.
Þessir bolir eru svipaðir i sniðinu en samt mjög ólíkir. A
þeim svarta stendur Manhattan og er hcegt að fá þessa boli
ifleiri litum. Verð 2560.
EFTIR ALDÍSI EINARSDÓTTUR OG KRISTÍNU JÓNSDÓTTUR
LJÓSMYNDIR TÓK VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR