Vikan - 11.06.1987, Qupperneq 11
Mér hafa líka þótt ýmis sætindi eins og
súkkulaði mjög góð."
Ásgerður: „Mér hættir til að bæta á mig
því ég er mikill sælkeri, þykir gos og súkku-
laði líka mjög gott. En eftir að við fórum
að taka töflumar höfum við breytt matar-
venjunum. Nú borðum við mun léttari
mat, meira grænmeti og meiri fisk."
„Við höfum líka hætt við uppbökuðu
ijómasósumar og súpurnar. En þetta er
ekkert útspekúlerað hjá okkur," segir Sæmi.
- Þið hafið ekkert svindlað að ráði?
„Stundum um helgar. þá liöfum við leyft
okkur að hafa það aðeins betra," segir
Sæmi en Ásgerður segir hlæjandi: „Ég er
miklu harðari en Sæmi, hann er svo rosaleg-
ur sælkeri."
- Eruð þið ánægð með töflumar?
„Já, mjög svo. Við vomm ákveðin í að
léttast. U.S. Grape Slim töflumar hjálpa
manni til þess, en maður verður að breyta
mataræðinu. Töflumar gera ekkert einar sér
en þær gera mann miklu meðvitaðri um
það sem maður er að gera. Þær draga líka
saman magann og við það minnkar lystin."
Sæmi: „Ég er óskaplega ánægður með
þessar töflur, þær koma manni á bragðið
við að gera eitthvað i sínum málum."
- Hafið þið sttindað einhveija líkamsrækt
með megruninni?
Sæmi: „Sökum þeirra meiðsla, sem ég
varð fyrir, hef ég mjög lítið getað hreyft
mig en ég gel farið i sund og gengið og
það geri ég óspart."
Ásgerður: „Ég er nú ekki í neinni leikfimi
eða slíku en ég syndi yfirleitl á hverjum
degi og núna á næstunni er ég að fara að
spila golf."
- Einhverjar ráðleggingar til þeima sem eru
að fara í megrun?
„Það er nú ósköp einfalt, borða minna,
hætta sælgætisáti og hreyfa sig meira."
- Hvað með framhaldið?
Sæmi: „Ég ætla að halda áfram að taka
U.S. Grape Slim töflumar. Ég er ekki enn
búinn að ná þeirri kjörþyngd sem ég var í.
í dag er ég í kringum 87 kíló en var áður
á milli 80 og 82 kíló. Ég stefni að því að
ná því innan tíðar. Annars væri ekkert að
því að vera of þungur ef fitan gæti sest á
rétta staði, ekki bara á mann miðjan."
Ásgerður: „Ég er nú eiginlega ekkert far-
in að velta framhaldinu fyrir mér en ég
veit þó að ég ætla að halda áfram og ná
mér niður í mína kjörþyngd. Ég hef líka
hug á að taka matarvenjur okkar til endur-
skoðunar, hafa meira af fiski og grænmeti.
Ég hef einnig áhuga á að kynna mér jurta-
fæði og þá möguleika sent það veitir."
„Nú borðum við mun léttari mat, meira grænmeti og meiri fisk.“
24. TBL VIKAN 11