Vikan - 11.06.1987, Blaðsíða 23
Jane Fonda
II ÍNI IORMI
I nýjustu mynd sinni, The Moming
After, sýnir Jane Fonda enn og aftur hversu
ágæt leikkona hún er. Hún hefur jafnvel
þótt likleg að hljóta tilnefningu til óskars-
verðlauna fyrir hina drykkfelldu, vansælu
fyrrum kvikmyndastjömu, Alex. Hin frísk-
lega og fallega Fonda sjálf, sem nú er
íjörulíu og níu ára gömul, ber aldurinn
með glæsibrag. í mörg ár þjáðist hún þó
af skæðum næringarsjúkdómi sem nefnist
bulimia nervosa...
Það er eiginlega ótrúlegt að Jane Fonda
skuli hafa átt við þennan sjúkdóm að stríða
allt frá unglingsaldri til þrjátíu og fimm ára
aldurs. Þella byrjaði þegar hún var í heima-
vistarskóla og fannst hún vera of feit.
Herbergisfélagi hennar benti henni þá á
þann möguleika að stinga fingri ofan í kok
þegar hún væri búin að borða og losa sig
þannig strax við matinn. Þella fannst Jane
frábær lausn, hún gæti smjattað á súkku-
laðikökunni með góðri samvisku og skilað
henni síðan. Hún tók ekki eftir að því oftar
sem hún kastaði upp matnum því meira
þurfti hún að borða og smám saman varð
|x;ssi hringrás upphalið að margra ára
martröð. Jane og stallsystur hennar gerðu
sér nefnilega enga grein fyrir að þessi
„ágæta" aðferð þeirra gæti auðveldlega leitt
til svipaðs sjúkdóms og alkóhól og eiturlyf
gela gert. Fólk hreinlega ánetjast aðferðinni
og neitar að viðurkenna fyrir sjálfu sér og
öðrum að um vandamál sé að ræða. Því
linnst alltaf það vera i feitara lagi, jafnvel
þó það sé á honnörkunum.
í dag vill Jane gjarnan hjálpa þeim sem
eiga við þetta vandamál að stríða en segir
að til að fá lækningu sé fyrsta skreftð að
viðurkenna sjúkdóminn og svo þurfi með-
ferð sérfræðinga. Hún leggur áherslu á að
fórnarlömb bulimia nervosa séu á engan
hátt með persónuleikabresti heldur hati
þetta fólk oftar en ekki mikinn sjálfsaga
og nái árangri i starfi.
Nýlega var Jane Fonda spurð hvort
reynslan af sjúkdómnum hefði nýst henni
í hlutverki drykkjukonunnar Alex í The
Moming After. Það segir hún af og frá því
bulimia eigi fátt sameiginlegt með alkóhól-
isma annað en að vera sjúkdómur. Hins
vegar segist hún hafa reynt að nálgast áfeng-
isvandamálið frá ýmsum hliðum, meðal
annars með því að sækja AA fundi reglu-
lega í þrjá mánuði, tala við lækna og drekka
sig fulla. Það síðastnefnda segir hún þó
ekki hafa verið mjög skynsamlegt og hún
hafi lítið getað lært í því ástandinu. En
nokkrir sem hún hefur umgengist náið um
ævina hafa verið alkóhólistar, svo mörg
vandamálin kannaðist hún við þaðan.
Jafnvel stórstjömur burðast með óöryggi
og efast um eigin hæfileika. Jane Fonda
segir að þó hún hafi notið þess að leika
hlutverk Alex hafi varla sá dagur risið með-
an á upptökum stóð að hún ekki vaknaði
upp með hnút í maganum og hugsaði:
„Þetta er dagurinn sem þeir uppgötva að
ég get ekki leikið." Stundum verður þetta
svo erfitt að hún ákveður með sjálfri sér
að hætta að leika. Hún viðurkennir að hlut-
verkið hafi verið krefjandi, Alex er niður-
brotin manneskja, bitur og í slæmu jafnvægi.
„Ég átti erfitt með að losa mig alveg frá
Alex meðan á æfingum stóð, var ekki mjög
góð móðir og eiginkona þær vikumar en
Qölskylda mín neyddist til að umbera mig.
Þetta var erfitt tímabil og allir vom ánægð-
ir þegar því lauk." Allt fór vel og eftir á
að hyggja er Jane ánægð með sinn hlut í
þessari mynd.
„Starf leikara er mjög óömggt," segir Jane,
„eitt árið er hann á toppnum en það næsta
jafnvel í glatkistunni og oft þarf ekki mikið
til að orsaka það. Leikari, sem öðlast frægð
og frama, þarf sífellt að vera á verði gagn-
vart þeim sem bíða, tilbúnir að glefsa í
hann." Jane hefur reynslu af slíku því rót-
tækar skoðanir hennar og opinber gagnrýni
á stríðið í Víetnam á sjöunda áratugnum
urðu til þess að hún var sett á svartan lista
í Hollywood. Á þessum ámm kynntist hún
núverandi manni sínum, Tom Hayden, sem
fékk hana til að koma sér aftur í náð í
kvikmyndaborginni. Jane hefur þó ekki al-
farið hætt afskiptum af pólitík þvi nýlega
stóð hún fyrir mikilli herferð sem bar þann
árangur að nú varðar við lög í Kalifomíu-
fylki að setja í drykkjarvatn efni sem
sannanlega þykja krabbameinsvaldandi og
skaða fóstur. Jane er semsé ekki aldeilis af
baki dottin og segist vilja gera sem mest
og best úr þeim góðu ámm sem fram und-
an séu. Hún hefur í huga að leika í
gamanmynd á næstunni, mynd sem ömgg-
lega hefur „happy end“. Helst vill hún
nefnilega að allar hennar myndir endi vel.
„Ég get varla hugsað mér að sjá myndir
sem hafa dapurlegan endi, það er svo nauð-
synlegt að fá góða upplyftingu í lokin og
skilja sátt við allt og alla, “ segjr Jane Fonda.