Vikan - 03.09.1987, Qupperneq 22
Vikan — kvikmyndir/myndbönd
NÝJAR KVIKMYNDIR
NADINE
Enn einu sinni mun Peter Ustinov klæðast gervi hins vaska
spæjara Hercule Poiroit, sjálfsagt mörgum til mikillar ánægju,
því hversu sem má deila um líkingu með sögupersónunni
frægu verður þvi ekki neitað að Ustinov hefur skapað ákaf-
lega skemmtilega persónu.
Leikstjóri myndarinnar er Michael Winner og eins og
ávallt er margt þekktra leikara í aukahlutverkum; má nefna
Laureen Bacall, Carrie Fisher, John Gielgud, Piper Laurie,
Hayley Mills og David Soul.
APPOINTMENT WITH DEATH
Robert Benton er sjálfsagt einkum þekktur fyrir
Kramer versus Kramer er hann gerði fyrir nokkrum
árum með Dustin Hoffman i aðalhlutverki. Hann er
nú mættur á nýjan leik með nýja kvikmynd, Nadine.
Myndin gerist í Texas á sjötta áratugnum og segir frá
Nadine og eiginmanni hennar, Vernon, sem eru að
skilja. Lenda þau óvænt í morðmáli vegna afskipta
Vernons af glæpamönnum. Nadine, sem er hörku-
kvensa, fer á kreik til að finna rétta morðingjann og
lendir hún i ýmsum ævintýrum í leit sinni.
Það eru Kim Basinger og Jeff Bridges er leika aðal-
hlutverkin. Sjálfsagt er þetta besta hlutverkið sem Kim
Basinger hefur fengið hingað til. Hún hefur nær ein-
göngu þurft að leika kynþokkafullar blondínur og gert
það nokkuð vel en í Nadine er hún öðruvísi eins og hún
sjálf segir:
JEAN DE FLORETTE
Sú franska kvikmynd, er vakið hefur hvað
mesta athygli vestanhafs undanfarið, er tvímæla-
laust Jean De Florette með þeim Gerard
Depardieu og Yves Montant í aðalhlutverkum.
Þetta er í raun fyrsta mynd í flokki mynda er
gerðar verða eftir skáldverki Marcel Pagnon,
L’Eau des Collines. í Frakklandi er þegar búið
að sýna mynd númer tvö og þar eru aðalhlut-
verkin einhig leikin af Depardieu og Montant.
Hafa þessar myndir alls staðar fengið frábæra
dóma og góða aðsókn. Leikstjóri er Claude
Berri. Það tók hann ein sex ár að fá leyfi ekkju
höfundarins til að kvikmynda þetta viðamikla
verk.
22 VIKAN 36. TBL