Vikan - 03.09.1987, Blaðsíða 30
Árni Blandon:
FLEST ORÐ ERU
HÁLFÓNÝÍ
,,Eg efast um að ég verði nokkurn tímann bók-
menntafrœðingurþegar ég verð ,,stór“. Það er svo
margt annað sem mig langar að gera. Það er
meira eftir mínu höfði að vera ekki fastur í einu
öðru fremur, “segir trésmiðurinn, leikarinn, sál-
frœðingurinn,þáttagerðarmaðurinn og bók-
menntafrœðingurinn Arni Blandon.
Lífshlaup Arna spannar vítt svið, hann hefur kom-
ið ótrúlega víða við, erfjölmenntaður eins og sagt
er. Hann hefur búið beggja vegna Atlantsála, í
Danmörku, Englandi og Bandaríkjunum. Strákur-
inn, sem eitt sinn lék sér í Kópavoginumjór í
menntó, tókþátt í ’68 byltingunni af lífi og sál,
hefur lagt stund á leiklist, bœði á sviði, í kvikmynd-
um og í útvarpi. Hann hefur líka brugðið sér í
gervi leikstjórans og kannski er það ekki síst á
það svið sem hugur hans stefnir.
30 VIKAN 36. TBL