Vikan - 03.09.1987, Side 27
DRAUMALANDIÐ
Marlboro-formúlan er svo einföld að í
henni þarf ekkert að skýra. Það sem blasir
við er Marlboroland, eins og segir í auglýsing-
unni: „Come to where the flavor is, come to
Marlboro country.“ í Marlborolandi er karl-
maður á leðurbuxum með hatt á þeysireið á
brúnum gæðingi sem þú heyrir fnæsið greini-
lega frá í gegnum myndflötinn. Félagarnir eru
á þeysireið og rykið þyrlast upp undan þungu
hófataki á endalausum sléttunum. Snaran er
á lofti og markmið hests og manns eru fyrir-
fram ákveðin. Marlboroland er Ameríka, eina
ferðina enn, þar er bragð af hlutunum. Týpan
er amerískur aksjónmaður, hetja og karl-
menni, kúasmali. Hann er töffari, hraustur
og heilbrigður og á baki hestsins með snöruna
á lofti, sá sem valdið hefur. Hesturinn er kraft-
ur og þol: kröftugra og stæltara dýr er vart
hægt að hugsa sér, óbeisluð náttúra á þeysi-
reið. Leikurinn gerist úti á sléttunum, fjarri
þys borganna, við þær amerískustu aðstæður
sem hægt er að hugsa sér: í vestrinu sanna.
Draumur borgarbúans um flóttann mikla frá
tilbreytingarlitlum hversdegi er sifellt vakandi.
Harkan skín úr hverjum drætti týpunnar: í
Marlborolandi dugar ekki linkind eða mála-
miðlun. Eina frávikið frá föstum klæðnaði
týpunnar er litur skyrtunnar, gul fyrir Marl-
boro lights og rauð fyrir Marlboro classic.
Þessi tenging vöru og myndar er rétt til árétt-
unar boðskapnum, hitt er löngu stimplað inn
i vitundir okkar að amerískur kúreki við leik
og störf merkir Marlboro. Táknmyndin visar
t stöðugt á mið sín, Ameríka og Marlboro eru
eitt. Come to Marlboro country, komdu til
Ameríku. Þú þarft ekki að kaupa dýran flug-
miða og segja skilið við fjölskyldu og fyrra
líf, þú þarft bara að kaupa einn pakka af
Marlboro og eldspýtustokk og þú ert þegar
kominn hálfa leið.
Barclay, breskara getur nafnið ekki verið
og því þýðir ekki að vitna í draumaland tæki-
færanna handan hafsins, enda ekki ætlunin.
Krúnan er táknið og yfirbragðið konunglegt.
Týpan er yfirstéttarkarlmaður, um það þarf
enginn að efast, hann er ýmist staddur á dýr-
um veitingastöðum eða í einkaþotunni og
sífellt með ósýnilega lafði sér við hlið til
skemmtunar. Einkennislitir Barclays eru ma-
hóní og vínrauð nautshúð sem hvort tveggja
vísar á ríkidæmi og munað. Karlmennska og
vald skín úr hverjum andlitsdrætti: prófið að
halda fyrir augabrýr og enni og hetjan tekur
ofan. Hökuskarðið gerir týpuna sérstaka, hún
er útvalin úr þúsundum eða meir. Fötin eru
yfirstéttar, hrein og stífpressuð, og Barclay
hafði greinilega nægan tíma til að snyrta negl-
ur og hár fyrir fund ykkar. Slaufan og bindið
eru teinrétt. Týpan er kaldur karl, sá sem
valdið hefur í krafti ríkidæmisins, og brosið
er bros þess sem hefur efni á að segja nei með
vanþóknun. Augun lýsa sjálfsöryggi og tilliti
þeirra er beint aftur fyrir og í raun niður.
Enginn stendur ofar eða framar en hetjan.
Vel snyrt og skarti hlaðin hönd lafðinnar ger-
ir sífelldar tilraunir til að vinna hylli hetjunnar
með því að stelast undirgefin, mjúklega og
hæversklega inn í myndrammann frá hægri,
i þeirri von að hetjan taki á móti, og hann
rétt gefur henni von, undir fótinn. Það sem á
athygli hans, umfram lafðina, er Barclay, hin
konunglega sígaretta. Hann er nýbúinn eða
er að fara að kveikja og má ekki vera að því
að sinna henni í bili. Þannig er Barclay sett
ofar öllu öðru, hin konunglega sérhannaða
sæla, og lafðin má sætta sig við að staupa sig
slomp í konjaki þar til þjónn þeirra hjúa til-
kynnir að þotan lendi á Orly eftir fjórar
mínútur. Þín augu lenda á flugvelli raun-
verunnar eftir aðeins þrjár mínútur, nema þú
hafir pakka af Barclay við höndina, þá heldur
draumurinn um rikidæmi og fagrar lafðir
áfram að vera áþreifanlegur.
PERLUFESTAR
París, London, New York: Þú þarft ekki
meira til að langanir þínar komist á flug. Les
must de Cartier, Paris. Það skiptir engu máli
hvort þú skilur frönsku eða ekki, orðin eru
frönsk og það nægir til að undirstrika ele-
gansinn. Þar með stendur Cartier fyrir tísku,
smekk, fágun og siðmenningu á háu stigi,
ímyndin sem Frakkland vill hafa í augum
umheimsins. En með upptalningu heims-
borganna verður Cartier einnig alþjóðlegt
tákn og nútímalegt. „Pearl tipped luxury slim
cigarettes“, perlufestar og munaðsgrannar.
Þarna er verið að slá á viðkvæma strengi lang-
ana þinna. Grannar: hver vill ekki og þarf
að vera grannur og vel vaxinn? Munaður: þrá
þín eftir ríkidæmi og yfirfljótandi efnum. Perl-
ur hafa um aldir alda staðið fyrir fullkomnun,
eilífð, tærleika og náttúru, munað og elegans
á háu stigi og fjarri því að vera á hvers manns
færi. Einkennisliturinn er vínrauður litur mun-
aðarins og gyllingarnar ítreka hann enn
frekar, gull og perlur, Cartier er ekki líkt við
leiða. Cartier birtist þér í rósrauðum bjarma,
ódauðlegur elegans, munaður og siðfágun, ef
þú reykir Cartier.
Cartier og Prince eiga það sameiginlegt að
höfða meira til kvenna þegar aðrar tegundir
selja sig fyrir karlmennsku. Tegundirnar not-
færa sér óspart þær sterku ímyndir sem
framleiðslulöndin hafa á alþjóðavettvangi:
þær frönsku með elegans og siðmenningu, þær
bresku með konungdómi og aðalsmerkjum,
þær amerísku með táknmyndum ameríska
draumsins sem náð hefur að festa rætur um
alla heimsbyggðina, jafnfætis útbreiðslu amer-
ísks varnings og með pólitískum áhrifum.
Og ekki orð um það meira.
36. TBL VIKAN 27