Vikan - 03.09.1987, Blaðsíða 42
Draumar
MIKIÐ AF BRÉFUM
Kæri draumráðandi, Vikunni!
í fyrra réðst þú fyrir mig draum sem að
mestu var ráðinn rétt. Þó er endirinn kannski
ekki kominn í ljós en úr illu átti að rætast.
Svo er mál með vexti að nú fyrir skömmu
dreymdi mig annan draum sem mér þykir
einnig merkilegur og er sannfærð um sann-
leiksgildi hans. Draumurinn er á þá leið að
mér fannst ég vera vestur í bæ hér í Reykja-
vík og vera að koma fyrir hornið á H-götu
með pappakassa í fanginu, fullan af fallegum
postulínsdiskum með gylltri rönd. Allir voru
þeir eins í laginu og þónokkuð margir. Ég tók
efsta diskinn og velti honum til og sást þá á
honum miðjum annaðhvort mjög sterkur blár
litur eða hann næstum hvarf. Einnig voru til
GANGSTERAR
OG SÓÐALÝÐUR
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi í nótt voðalegan draum sem
veldur mér meiri háttar áhyggjum. Þetta var
þó ekki martröð heldur skýr og skilmerkilegur
draumur svo ég var að velta því fyrir mér
hvort hann merkti eitthvað sérstakt.
Svo var mál með vexti að mér fannst ég
vera komin í félagsskap gangstera og sóðalýðs
sem fór um göturnar með látum og hreinlega
braut allt og bramlaði. Ég var ekkert skárri
sjálf en hinir. Við vorum í ókunnuglegu um-
hverfi og það var dimmt en þó var þetta ekki
eins og eitthvert atriði úr kvikmynd sem ég
hef séð heldur fann ég mjög skýrt fyrir því
hliðar í kassanum styttur, til dæmis eitt
rókókópar og eitthvað fleira. Kassinn var úr
gráum pappa eins og notaður er utan um
umslög. Ég setti síðan kassann upp á pallinn
fyrir framan húsið en þar var smávegis þrep
eða snjór. Síðan fannst mér ég vera komin
sömu megin hússins á kjallaragólf úti og þar
var mikið af bréfum, bæði stór, gul umslög
og einnig hvít venjuleg og þau voru öll með
'amerískum frímerkjum. Ég beygi mig niður,
tek upp nokkur bréf og rétti þau rosknum,
amerískum hjónum. Það var einnig krap á
botninum þar. Hjónin voru í Ijósum „beige“-
litum fötum og voru orðin töluvert gráhærð.
Ég vil taka það fram að ég þekkti þau ekkert
en þetta fór fram í mestu vinsemd. Einnig var
að ég var ég. Ekki þekkti ég hitt fólkið (lýð-
inn) en fannst ég gera það í þessum draumi.
Hvað merkir draumurinn?
Með þökk fyrir birtinguna ef þú notar
þennan draum.
Ég.
Draumurinn er skýr viðvörun um a<) gera
ekkert sem gati orðió þér til minnkunar og
hann hendir til aó þú hafir verulegar áhyggjur
af því að þú kunnir að vera í þann veginn að
gera mistök. Vertu varkár og farðu eftir liug-
hoði þínu ef þig grunar við hvað ég á.
ÆÐABER HÚÐ
Kæra Vika.
Mig hefur nokkrum sinnum dreymt draum
bréfabunki með amerískum frímerkjum á efri
hæðinni og fannst mér eins og ég ætti að
koma pappakassanum mínum inn í húsið
þegar hjónin opnuðu dyrnar uppi með póstin-
um sínum og þar við sat.
Draumurinn varð ekki lengri en þegar ég
vaknaði og fór að hugsa um húsið mundi ég
eftir að hafa kómið í sams konar hús sem ung
stúlka með pilti en svo slitnaði upp úr því
sambandi. Húsráðandi var hins vegar mikill
vinur minn. Ef þú gætir tengt þetta eitthvað
þá þætti mér vænt um það.
Með kærri kveðju.
K.E.
Fyrsti hluti draumsins bendir til hindrana sem
þú munt yfirstíga og að þin bíði friðsœld og
ríkulegt og gefandi llf einkum einkalíf en þó
með ákveðnum skilyrðum sem þú verður að
sœtta þig við. Svo virðist sem einhver fyrirheit,
sem litlar efndir verða á, valdi þér vonbrigðum
og þér fmnist þetta hafa verið sýnd veiði en
ekki gefm.
Bréfm eru vísbending um ný tíðindi sem senni-
lega eru tengd þessu máli. Hvers eðlis þau eru
kemur ekki fram í smáatriðum, þó er augljóst
að eitthvaó kemur á óvart, bœði þœgilega og
óþœgilega. Fjármál koma vió sögu og leysist
nokkuð óvœnt úr erfiðri stöðu sem upp kann
að koma.
Snjórinn er góðs viti eins og hann kemur fram
i þessum draumi, einkum þó I veraldlegum
málum en síður í tilfimningamálum.
sem er nokkurn veginn samhljóma. Hann er
stuttur, bara eins og endurtekning sem kemur
aftur og aftur.
Mér finnst ég vera með svo æðabert hörund
og æðarnar eru í öllum regnbogans litum og
liggja utan á handleggjum og fótum, þó þann-
ig að húðin strekkist yfn. Mér finnst mér
ekki líða illa í þessum draumum en þeir valda
mér áhyggjum.
Nú vantar mig ráðningu á þessum draumi.
Með bestu kveðju.
B.K.
Þessi draumur varðar heUsufar þitt. Hafir
þú verið heilsuveil bendir hann til breytinga til
batnaðar en ef þú hefur verið hraust máttu
búast við einliverjum veikindum, varla þó alvar-
legum en ef til vtll þrálátum og leiðinlegum.
42 VIKAN 36. TBL