Vikan - 29.10.1987, Page 5
Bíll Kristjáns: Saab 9000 Turbo 16 með miklum aukabúnaði, er einn glæsilegasti farkost-
urinn á íslandi.
Nýr glæsivagn Kristjáns Jóhannssonar
Samfara mikilli velgengni á
sviði óperusöngs og nýju starfi
við La Scala óperuna á Ítalíu
hefiir stórsöngvarinn Kristján
Jóhannsson pantað sér nýjan
vélfak, til að flytja sig milli
staða hérlendis. Kristján pant-
aði dýrasta Saab sem fluttur
hefur verið til landsins, Saab
9000 Turbo 16 og lét reyndar
aðeins betrumbæta hann.
Um 1,7 milljónir kostar farkost-
ur Kristjáns, sem hann fer afhent-
an í desember, en bíllinn stendur
þessa dagana í sýningarsal um-
boðsins. Hresst hefur verið upp á
útlit bílsins, með plasthlutum sem
voru pantaðir ffá Saab verksmiðj-
unum og settir á hérlendis og
sprautaðir í sama lit og bíllinn,
mjallahvítir. Bíllinn er hinn víga-
legasti ásýndum eftir þessa andlits-
lyftingu, sem kostar um 150.000
krónur. í bílnum em aukahlutir
fyrir nær hálfa milljón króna,
þ.á m. leiðurklædd sæti fýrir
ökumann og farþega, sóllúga, sjál-
fvirk digital miðstöð bæði til hit-
unar og kælingar, ökutölva sem
mælir eyðslu o.fl.
Vélin í bílnum er hvorki meira
né minna en 175 DIN hestöfl, sem
getur knúið Saab 9000 Turbo hátt
í 300 km hraða. Með plasthlutun-
um nýju verður hann sjálfsagt
eitthvað hraðskreiðari en venju-
legur Saab 9000 turbo, sem hefur
225 km hámarkshraðagetu og sá
eini sinnar tegundar á landinu.
Enn á eftir að koma fyrir hljóm-
tækjunum og óljóst hvaðan þau
verða, en sjálfsagt tónfögur og afl-
mikil eins og Kristján sjálfur. Ef
menn sjá t.d. á Keflavíkurveginum
hvíta plu og heyra þmmandi óp-
emtónlist þjóta hjá, þá er það
sagt Kristján á nýja Saabinum ...
Saabinn er allur leðurklæddur
að innan og nýjasta tölvutækni
auðveldar söngvaranum
aksturinn.
Eldurís-vodka
selst grimmt
fyrir vestan
Nú er hafin sala á Eldurís vodk-
anu á Bandaríkjamarkaði og selst
það grimmt þar í landi. Það er
Glenmore Distilleries sem sér
um söluna á vodkanu og er for-
ráðamenn þess fyrirtækis vom
staddir hér á íslandi nýlega að
kynna markaðsaðgerðir sínar í
Bandaríkjunum kom ffam að
fyrstu viðbrögð neytenda við
Eldurís selst vel í Bandaríkjunum.
þessari vöm hefðu ferið ffam úr
björtustu vonum.
Markaðshópur sá sem stefrit er
á með söluna á Eldurís em svo-
kallaðir uppar, eða efhameira fólk
en gengur og gerist og er mikil
áhersla lögð á landkynningu
samhliða kynningunni á Eldurís.
Lagið á flöskunni undir Eldurís,
á sér langa sögu en hér er um
svokallaðar kjallaraflöskur að
ræða. Hér á 18du og 19du öld-
inni áttu stöndugri borgarar
þessa lands flestir svokallaða
kjallara með 4 til 8 hólfúm undir
áfengisflöskur sem vom með
þessu sérstaka kantaða lagi.
Upplag þraut
fyrir helgi
Þrátt fyrir að blaðsölustaðir
fengju tvöfalt og sumir þrefalt
upplag af fyrsta tölublaði Vik-
unnar eftir að hún kom út í nýj-
um búningi í síðustu viku dugði
það hvergi nærri til. Blaðið var
rifið út og var víðast uppselt
strax fyrir helgi. Upplagið var á
þrotum hjá útgefanda og ekki
hægt að svara eftirspurninni eft-
ir viðbótarsendingum.
Upplagið hefúr því enn verið
aukið.
L
VIKAN 5
UÓSM.: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON