Vikan - 29.10.1987, Side 11
Guðmundur
Einarsson
UTLOND
í Bandaríkjunum komast
konur aðeins í forsetaemb-
ættið með því að giftast
körlum, sem liklegir eru til
að vinna forsetakosningar.
Eiginkona Wilsons forseta
gegndi embættinu óopin-
berlega í veikindum eigin-
manns síns 1919-1920. Cart-
er lýsti því oft að hann ræddi
í FJÖTRUM
HJÓNABANDS
málin við Rosalynn sína og
Nancy hefur augljós og mikil
völd í Hvíta húsinu hjá Reag-
an. Hún hefúr haft áhrif á
mannaráðningar og hún er
talin leggja milda áherslu á
að Reagan fái sess sem sá
forseti sem lagði grunn að
nýjum heimsfriði.
En þótt þessar konur hafi haft
mikil áhrif, er ljóst að þjóðin var
að kjósa eiginmenn þeirra til
embættisins og án eiginmann-
anna hefðu þessar konur ekki
komist til valda.
Robert Dole er öldungar-
deildarþingmaður og keppir
nú um útnefningu til forseta-
framboðs fyrir Repúblikana.
Konan hans heitir Elísabet og
hefúr verið á kafi í pólitík í 20
ár. Síðast var hún samgönguráð-
herra í stjórn Reagans og sagði
því embætti lausu fyrir skömmu
til að vinna að ffamboði eigin-
manns síns.
Efísabet Dole er vinsæl hjá
bandarísku pressunni. Á undan-
förnum árum hafa birst greinar
og viðtöl við hana í öllum vin-
sælum tímaritum vestanhafs.
Harpers Bazaar kallaði hana ný-
lega voldugustu konu Banda-
ríkjanna. Hún er ein af 5 vinsæl-
ustu ræðumönnum Repúblik-
anaflokksins og fær 6000 ræðu-
pantanir á ári.
Greinarhöfundurinn Tom
Wicker segir nýlega í New York
Times að nú sé svo komið að
fólk sé farið að velta henni fyrir
sér sem frambjóðanda; ekki sem
eiginkonu og fylgihnetti Ro-
berts Dole, heldur vegna eigin
verðleika.
Þannig hafa komið uppá-
stungur um að Robert Dole
verði frambjóðandi til forseta
og hún verði ffambjóðandi til
varaforseta. Með því væri hjóna-
veldið, sem óopinberlega hefúr
ríkt í Hvíta húsinu, orðið sam-
kvæmt lögum. Robert Dole seg-
ir þau hjón hafa rætt þennan
möguleika í gríni, en þetta komi
auðvitað aldrei til greina.
En setjum okkur í spor þess-
arar konu. Hún er metnaðar-
gjörn, vinsæl og hefur reynslu í
pólitík. Hún vill ná völdum. Ef
eiginmaður hennar verður
frambjóðandi, er nánast óhugs-
andi að hún fái líka að vera í
framboði. Ef hann bíður hins
vegár lægri hlut fýrir George
Bush í samkeppninni um fram-
boðssætið er öruggt að margir
munu vilja fá hana sem varafor-
seta. Hún væri góð í ffamboð
með George Bush, því hún er
kona og hún er ffá Suðurríkjun-
um og af hvorugu þessu getur
Bush státað sjálfúr.
En hvernig liti það út í augum
almennings ef hún færi í fram-
boð með Bush, sem hefði sigrað
eiginmann hennar? Það þætti
íhaldssömum Ameríkönum trú-
lega jafnast á við framhjáhald.
Slíkt gæti aldrei orðið.
Elísabet Dole verður því ekki
varaforseti mannsins síns, því
hún er konan hans, og hún verð-
ur ekki varaforseti andstæðings-
ins, því hún er giff þeim sem þá
hefði tapað. Það er því hugsan-
legt að sú kona, sem fyrst banda-
rískra kvenna eygir raunveru-
legan möguleika á því að verða
kosin inn í Hvíta húsið, verði af
því vegna þess að hún er giff
manni sem ætlar sér það sjálfur.
Ef eiginmaður
Elísabetar Dole
býður lægri hlut
f}rrir George
Bush í sam-
keppninni um
framboðssætið
er öruggt að
margir munu
vilja fá hana sem
varaforseta.
VIKAN 11