Vikan


Vikan - 29.10.1987, Side 22

Vikan - 29.10.1987, Side 22
Enn einn skipulags- glæpurinn Trúlega á mörlandinn langt í land með að rækta með sér skilning á og smekk fyrir skipulagi í um- hverfi, samræmi hiuta og bygginga á tilteknu svæði, samhengi við landslag og sögulega þróun og uppbyggingu í nútíð. En þótt fákunnátta um umgengnishætti og einfalt skipulag eða bara fyrir- komulag hluta í þéttbýli sé áberandi, þá er hitt af- drifaríkara, hversu mjög menn kappkosta að hunsa alla fróðleiksleit og alla þá þekkingu sem einstakl- ingar hafa aflað sér og sótt dýrum dómum til út- landa. Hönnun er nýtt hugtak í íslensku og engin heildarlína til; hér er ekkert til sem kalla mætti „ís- lenska hönnun“, við keppumst hins vegar við að flytja inn finnska, danska, sænska, þýska, franska og jafnvel ítalska hönnun fyrir utan alla smekk- leysu og stílleysu víða að, svo sem frá Bandaríkj- unum. Reykjavík er í heild æpandi dæmi um tilfinningaleysi og vankunnáttu þegar hönnun er annars vegar. Þá áratugi sem borgin heflir verið að byggjast — eða réttar sagt: Þá áratugi sem byggingameistarar hafa klesst úthverfi utan á úthverfi í losara- menningV legu miði út frá gamla kjarnan- um í Kvosinni, hefur öll skipu- lagsvinna verið eins og til bráða- birgða, engin áætlun gerð sem þurft hefur að standa lengur en til næsta árs; eða svo. Vitanlega hafa ýmsir tilburðir verið uppi um skipulag og hönnun. Það hafa jafhvel verið settar á lagg- irnar sérstakar skipulagsstofur og haldið úti nefndum í þeim 22 VIKAN tilgangi að draga upp heildarlín- ur, en trúlega hafa öll þannig apparöt komið of seint til sög- unnar og verið valdalaus þegar á átti að herða: Skipulagsmálin hafa síðast lent í krumlum póli- trukka, einhverra fákunnandi úr pólitíkinni sem fyrst og síðast eru á valdi flokksins og hags- munaaðilanna sem græða á steinsteypu ellegar staðsetn- ingu. Og vita ekki gramm um fagurffæði, stíl, samræmi, sögu- lega þróun eða svo einfalda hluti sem umferðaröryggi. Þróun skipulagsmála í Reykja- vík á þessari öld virðist um margt eitt samfellt slys — sama hvort litið er á heildarsvip eða einstakar byggingar. „Nýi miðbærinn", sem svo hefur verið nefndur, virðist ætla Nú á að klessa steinsteypumonstri ofan í Borgarleikhúsið, svo heildarsvipur þess eyðileggst. (Mynd: m.hj.) að verða dæmi um vanhæfhi okkar hér um slóðir til að skipu- leggja okkar byggingarmál. Kringlumýrin er ekki ýkja víð- áttumikill reitur. Þar rúmast ekki svo óskaplega margar blokkir eða verslanahallir. Og svæðið er reyndar svo afmarkað ffá náttúrunnar hendi, að menn hljóta frá upphafi að hafa haff yfir það góða yfirsýn. En strax blasa við árekstrar í skipulagi. í mýrinni miðri hafa menn yfirbyggt fjölbúðatorg, bráð- nauðsynlegt fyrirbæri á okkar breiddargráðum, og raunar skrítið að við skulum ekki fýrr og af meiri stórhug hafa byggt yfir okkar verslanahverfi. En þessi kramvöruklasi er keyrður ofaní óskilda byggð og hefur þegar búið til umferðarkaos: íbúðablokkirnar hljóta að vera orðnar verðlausar, því það hlýt- ur að vera illþolandi ónæði af allri umferð þarna í gegn. Og þær menningarstofhanir sem settar voru í Kringlumýri eru nú þegar að verða hornreka. Hvers á Borgarleik- húsið að gjalda? Borgarleikhúsið er ein fárra „monumental“-bygginga í Reykjavík. Leikhúsið var hannað af ffamsýni og stórhug, sem sjaldgæfur er þegar íslensk byggingamál eru annars vegar. Og raunar furðulegt með svo stórt hús, að það kostar ekki nema hluta af þeirri upphæð sem flugstöðin á Keflavíkurflug- velli fór fram úr áætluðum bygg-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.