Vikan


Vikan - 29.10.1987, Side 23

Vikan - 29.10.1987, Side 23
\ ingarkostnaði. Leikhúsið er óvenjulegt að ytra útliti — gefiir aðkomumanni hugmynd um að þar innandyra sé trúlega sá ævintýraheimur sem í leikhúsi á að vera. Og bygging eins og leikhús laðar væntanlega að sér mannfjölda dag eftir dag, ár eftir ár. Sá mannfjöldi þarf svigrúm, torg framan við húsið og að- stöðu til að fara kringum bygg- inguna — leikhúsið á að standa á grónu, skipulögðu svæði þar sem það nýtur sín. Því á ekki að klessa niður á milli annarra, óskildra húsa eins og gert var við Þjóðleikhúsið. Eins og kannski sést á með- fylgjandi ljósmynd er verið að fremja skipulagsglæp í Kringlu- mýrinni. Við endann á Hag- kaupshúsinu er kominn grunn- ur að stórhýsi, venjulegu steypu- og stálmonstri sem nær firá verslanahúsinu yfir að Borg- arleikhúsi og mun ekki miklu muna að hægt verði að smeygja sér á milli húsanna þegar óhæf- an verður orðin að veruleika. Að rífa steinhús í skipulagsmálum hefur okkur orðið það hendi næst undanfar- ið að rífa gömul timburhús og reisa á grunni þeirra byggingar, búnar til úr sementi og fjöru- sandi. Steinsteypt hús eru trú- lega svo ódýr lausn sem verða má í byggingarmálum hér á landi. Og þess vegna undarlegt að við skulum nánast hafa átrún- að á steinhúsum, en forakta timburhús og helst rífa þau, verði þau á vegi okkar. Þessu á vitanlega að vera öfugt farið. Við eigum að kappkosta að skoða hin fágætu timburhús með það fyrir augum að varðveita þau, en sérhvert steinhús af eldra mó- deli á að líta grunsemdaraugum. Og brjótast til grunna, telji menn endurnýjunar þörf. Ætli það hefði ekki orðið okkur til sóma, hefðum við til dæmis rifið gamla Vesturver (þar sem Mogginn er), en leyft Fjalakett- inum að standa? Arkitektaskóli Trúlega verða íslensk yflrvöld seint frædd um umhverfismál með því einu að benda þeim á syndir forfeðranna. Það er eins og það liggi í hinu tækifærissinn- aða eðli stjórnmálamannsins að skilja aðeins eitt í dag og svo annað á morgun. Hér þarf vitan- lega að koma á fót hönnunar- skóla, akademíu fyrir arkitekta framtíðarinnar, hefja markvissa athugun á íslensku borgar- og þorpsumhverfi í þeim tilgangi meðal annars að venja okkur við að taka tillit til umhverfis okkar og þar með hvers annars. — GG. T T ugmyndaflugi sumra JL JL manna eru engin tak- mörk sett. Og heldur engin takmörk fýrir því sem fólki dettur í hug að taka sér fyrir hendur í sjálfboðavinnu. Ragnar Thorseth, norskur ævintýramaður, sigldi einu sinni kringum jörðina á vík- ingaskipi. Nú ætlar hann að hafa vetursetu í 58 feta langri skútu vestan við Svalbarða. Þar eru einmitt uppáhalds „beitilönd" hvítabjarna. Þarna ætlar hann að húka fjarri öllu sólskini og grannar hans verða aðeins refir, birn- ir og selir. Reyndar verður Ragnar ekki einn, því fjöl- skylda hans hefur látið til- leiðast að dúsa þarna með honum í vetur. Konan hans heitir Kari, synirnir Njáll og Eiríkur, 12 og 14 ára. Og til að skóla- ganga strákanna fari ekki í steik verður fjölskyldan með telefax-samband við sið- menninguna. Telefax? Var Friðþjófur Nansen með soddannoget? jölfestufélagið hefur XV áreiðanlegar heimildir fyrir því að Pavarotti, heims- söngvari allra heimssöngvara (fyrirgefðu, Kristján!), hafi lést um 37 kíló. Reyndar koma þessar upplýsingar úr Corriera della Sera, sem er dagblað gefið út í Mílanó. Og í Mílanó er La Scala, óper- an góða. (Þetta vissum við, Kristján!) Lf ins og allir vita eru JLj störflögreglunnar erfið og krefjandi. Og margur lögginn sligast undir þessu. í Japan er víst óskapelga erfitt að vera lögga, enda eru lög- regluþjónar í því vísa landi þekktir fyrir fullyndi og ljótt orðbragð. Hideo Ymada, lögreglu- foringi í Tókíó, hefur nú íþyngt sínum mönnum enn frekar með því að skipa þeim að verða kurteisir þegar í stað og hætta að bölva og ragna og hreyta ónotum í borgarana. Nýlega var gerð könnun í Japan og kom þá firam að fólki var yfirleitt illa við lögg- una og taldi löggumenn ókurteisa rudda. Það er víst eitthvað annað hér á landi, ekki satt? i VIKAN 23

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.