Vikan


Vikan - 29.10.1987, Side 37

Vikan - 29.10.1987, Side 37
Aldraður Líbani, grár íyrir járnum, stendur vörð um heimili sitt. Enginn er óhultur því sprengjur og byssukúlur fara ekki í manngreiningarálit. Stuttu seinna var þessi maður hrofinn til feðra sinna. Konur og börn, eru þau fórnarlömb borgarstríðsins, sem verst verða úti. Hér stendur ung kona með barn sitt fyrir framan heimili þeirra, sem var lagt í rúst af stríðandi fylkingum. Afgangur fjölskyldunnar iiggur grafinn undir rústunum. Morð, stríð, náttúru- hamfarir og stjórnarbylt- ingargefa, í orðsins fyllstu merkingu, daglegt brauð fyrir franska Ijósmyndar- ann Jean Louis Cholet, sem hefur komið tvívegis til íslands í starfi sínu fyrir vestur-þýsku fréttastofuna Action Press. Fyrir fréttaljósmyndara heims- pressunnar eru slæmar fréttir góðar fréttir. Óhugnaðurinn er dýrmæt söluvara. Því óhugnan- legri sem fréttin og myndin eru þess meiri er eftirspurnin. Verkefni Jean Louis Cholet á íslandi voru án blóðsúthellinga og átaka enda voru þau næstum barnaleikur miðað við mörg önnur störf hans fyrir Action Press. Jean Louis Cholet á Austur- velli. Eins og sjá má á fánunum í bakgrunni, er myndin tekin á meðan á ieiðtogafúndinum stóð í október í fyrra. Frá Hölða lil Heljar Franski Ijósmyndar- inn (Jean Louis) í fremstu víglínu. LJÓSM.: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON TEXTI: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON Vélin átti að fara frá Kefla- víkurflugvelli eftir klukkutíma og kortér - og Jean Louis Cholet var ennþá á Þingvöllum. Það var ekið af stað og bensínið stigið í botn. Svitadroparnir spruttu fram á enni hans því ef hann ntissti af flugvélinni myndu myndirnar sem hann hafði tekið af heimsókn Silvíu drottningar fallá í verði. Töf þýddi stórtap. Enn var gefið í og landslagið þaut hjá á meðan mínúturnar tif- uðu frá honum. í stað þess að aka alla leið til Keflavíkur stökk Cholet upp í flugvél á Reykja- víkurflugvelli sem átti að skutla honum í miliilandaflugið til Hamborgar, en þar er fyrirtæki hans staðsett. Strákarnir hjá flug- skólanum Flugtaki höfðu boðist til að skutla honum með hraði og hann hafði hálffíma til stefnu. Á meðan hringdi blaðamaður til Keflavíkur og bað um að tekið yrði á móti Cholet þannig að tryggt yrði að hann næði fluginu örugglega. „Það er ekkert mál. Það er tveggja tíma seinkun ...“ Úff... Cholet náði því flugvélinni auðveldlega og komst tímanlega til Hamborgar, þaðan sem myndunum var dreift um allan heim. Streitan er hluti af daglegu starfi hans sem er ljósmyndara í samkeppni við bestu fréttaþjón- ustuaðila heims og ævintýrin sem þeir lenda í eru margvísleg. Sumir sleppa ekki lifandi frá þeim, en Cholet hefur verið heppinn. Verkefni hans hérlend- is var að fýlgja eftir Silvíu Svía- drottningu í opinberri heim- ^ sókn hennar og Karls Gústafs til r VIKAN 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.