Vikan


Vikan - 29.10.1987, Side 38

Vikan - 29.10.1987, Side 38
Borgarhlutar Beirut skiptast í yfirráðasvæði hinna ólíkustu hópa vopnaðra trúarhópa. Trúin flytur íjöli, en tærir monnum lítinn frið í þessum helmshluta. Hér hefúr einn hópurinn komið sér upp götuvígi, svo betur megi verjast nágrannanum. landsins, sem var auðvelt miðað við mörg fyrri störf - nánast frí. „Ljósmyndarar eru vinsœlt skotmark öfgamanna“ „Starf fréttaljósmyndara á al- þjóðamarkaði er gífurlega strembið og harðsvíruðustu ljósmyndararnir ná oft bestum árangri. Þeir svíkja kollegana og viðmælendur sína, en það er ekki minn stíll. Það eru margir svartir sauðir í ljósmyndarastétt- inni í Evrópu. Þó halda t.d. franskir ljósmyndarar hópinn þegar þörf krefur og hjálpa hver öðrum úr nauðum milli þess sem þeir keppa hver við annan. í mörgum löndum þarf að vera vel á varðbergi, ekki síst í Mið- Austurlöndum. Arabar eru skot- glaðir, skjóta í allar áttir, og eng- inn er óhultur ef þeir fá skyndi- lega þörf fyrir útrás. Ljósmyndar- ar eru vinsælt skotmark öfga- manna og trúarofstækismanna. Þegar stríð geisar á þessum slóð- um þá er hrikalegt að mynda þar. Líbanon hefur verið stríðs- hrjáð lengi, Beirút er í rúst og fólkið þekkir ekki eðlilegt líf lengur,“ sagði Chalet þegar blaðamaður spjallaði við hann 38 VIKAN kvöld eitt á meðan á Islandsdvöl hans stóð. „Mannslíf eru einskis metin í Líbanon. Sem betur fer hef ég ekki komið þangað oft, síðast fyrir tveimur árum. Það hefur enginn stjórn á hlutunum þar. Óteljandi öfga- og glæpahópar vaða þar uppi og oft fara með- limir þeirra hamförum og skjóta á allt kvikt. Þarna er vonlaust að finna hjálparmenn, maður er einn á báti og feginn að sleppa í burtu lifandi. Fyrir tveimur árum var ég staddur í miðri byltingu í Chad og reyndi eins og aðrir að fá brottfararleyfi, því landinu var lokað fyrirvaralaust. Utanríkis- ráðherra landsins var staddur á flugvellinum og menn voru að múta honum með miklum fúlg- um til að komast burt. Ég hafði hins vegar enga peninga til slíks. Það er hræðileg spilling í þess- um löndum. Ég var alveg að gef- ast upp þegar mér datt í hug að reyna að plata ráðherrann. Ég byrjaði að taka myndir af honum í gríð og erg, sagðist vera að mynda hann fyrir heims- frægt blað í Vestur-Þýskalandi og að ég ætlaði að skrifa grein um hann. Hann féll fyrir þessu og leyfði mér að mynda sig með ýmsum mönnum og í öllum stellingum. Að þessu loknu beið ég smástund og spurði hann síð- an hreint út hvort ég væri strandaður þarna, þá kæmust myndirnar ekki á prent. Hann veitti mér fararleyfi og ég stökk upp í næstu vél. Ef ég hefði ekki komist í burtu þá hefðu myndir sem ég hafði eytt nokkrum vik- um í að taka orðið ónothæfar, úreltar. Filmurnar af ráðherran- um hélt ég ekki upp á.. En það eru ekki einungis stríðslirjáð lönd sem eru ljós- myndurum hættuleg. Á mörgum stöðum þar sem fátækt ríkir verða menn að vera á varðbergi. í Brasilíu ganga þjófaflokkar oft um í mannþrönginni á götunum og taka útlendinga á beinið. Þeir koma kannski 3-4 saman og maður getur ekkert gert, verður að aflienda allt sem maður hefur. Ég hef einu sinni myndað kjötkveðjuhátíð í Rio dejaneiro. Það er hreint brjálæði. Glæpa- menn voru á hverju horni enda mannfjöldinn mikill og auðvelt fyrir þá að láta sig hverfa. Lög- gæslan var ekki upp á marga fiska og löggunum yfirleitt mút- að til aðgerðarleysis." „Suður-Ameríka er oft vett- vangur slæmra frétta. Þar eru byltingar og náttúruhamfarir al- geng fyrirbrigði. Ég fór eitt sinn til Kolumbíu þegar eldfjall var í þann mund að gjósa. Hitinn hafði brætt stóra snjófláka sem ruddust fram í formi vatns og drullu yfir eitt þorpið. Þarna lét- ust um 23-000 manns. Þorpið var allt á kafi í vatni og drullu, aðeins þök húsa og trjátoppar stóðu upp úr og allt var á tjá og tundri. Foreldralaus börn sáust á víð og dreif og uppi á húsþök- um. Ég var um borð í þyrlu frá Rauða krossinum og fylgdist með í gegnum linsuna. Skyndi- lega skynjaði ég smá hreyfingu í drullusvaði, höfuð á barni stóð upp úr. Ég öskraði: Það lifir, það lifir! og björgunarmenn þyrl- unnar náðu barninu um borð. Á meðan tók ég myndir, fyrst þar sem sést í höfuð barnsins og önnur höndin veifar á hjálp. Þetta er ein besta mynd sem ég hef tekið og hún var mikið not- uð í evrópskum tímaritum. Þetta eru fréttir sem blöðin vilja, vondar fréttir með góðu ívafi. Björgun barnsins var það góða sem hægt var að segja frá í öllum ömurleikanum. En þótt myndirnar lýsi ömur- leikanum og séu kannski ekki upplífgandi, þá geta þær oft hjálpað. Eþíópía er gott dæmi. Ef

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.