Vikan


Vikan - 29.10.1987, Blaðsíða 39

Vikan - 29.10.1987, Blaðsíða 39
Hjúkrunarfólk barðist við að bjarga lífi barnsins úr leðjunni. Björgunarfólkið hafði orðið að horfa vanmáttugt upp á dauða þúsunda, svo líf barnsins var þeim óskaplega dýrmætt. ekki hefðu komið til allar hinar hræðilegu ljósmyndir af ástand- inu og hungrinu þá hefði hjálp- arstarf aldrei hafist eða vakning orðið fyrir því sem þarna gerðist. En þetta gleymist furðu fljótt, hjálparstarfið varð tísku- fyrirbrigði. Allir vildu láta tengja sig hjálparstarfinu; stjórnmála- menn, popparar, kvikmynda- stjörnur - en svo gleymist þetta. Furðulegt." Alltaf á flakki — flaug 87 sinnum í fyrra Cholet flakkar gífurlega vegna starfs síns, milli allra heims- horna og oft fyrirvaralaust. Hann kom t.d. til íslands þegar Reagan og Gorbachev hittust hér. Hann var þó ekki búinn að dvelja hér lengi þegar hann var sendur með næsta flugi til San Salvador, þar sem hafði orðið slæmur jarðskjálfti. „Fyrst í stað var mjög gaman að þvælast um heiminn, því maður kynntist mörgu nýju, en nýjabrunið fer fljótt af þessu, þegar maður er sífellt í flugvél- um. í fyrra fór ég 87 sinnum í flug og er því farinn að þekkja þá marga flugvellina. Það er nræðilega leiðigjarnt að hanga á flugvöllum, bíða eftir leigubíl- um, tékka sig inn, sækja farang- urinn. Á sumum flugvöllum tek- ur þessi athöfn á þriðja tíma, til dæmis í Singapore, því þar er allt yftrfullt af ferðamönnum. Maður sefur mest í rútum og Ieigubílum eða flugvélum, minnst heima í rúmi. Það horflr öðruvísi við þegar maður flýgur í frí einu sinni á ári. Ég hef þó lítið verið í fríi, er alltaf að. Fyrstu sex mánuði árs- ins var ég heima samtals í 30 daga, þá yfirleitt nýkominn og á leið í burtu," sagði Cholet. „Þetta verður til þess að maður er vina- fár. Ég á marga kunningja en enga eiginlega vini og sakna þess. Margir gamlir vinir hafa gefist upp á mér. Ég hef kannski mælt mér mót við einhvern og er fyrirvaralaust kominn til Afríku. Einn dag hætti ég þessu stressi og fer að lifa fyrir sjálfan mig. Maður er líka oft að tapa peningum þar sem maður er alltaf að skipta um gjaldmiðil. ís- lensku peningarnir sem ég er með verða einskis virði ef ég hef ekki tíma til að skipta þeim aftur áður en ég fer heim ...“ Samkeppnin mikil — getur ekki slakað á „Þetta flakk er náttúrlega sjálf- skaparvíti, en samkeppnin er það mikil að maður getur ekki slakað á, ekki enn. Frakkland á marga af bestu ljósmyndurum heims. Fréttastofúrnar Ciba, Gamma og Sigma eru gífurlega sterkar. Aðalmálið er að vera fyrstur á staðinn. íslendingar muna sjálfsagt eftir ferjuslysinu undan ströndum Belgíu, þegar ferjunni Zebrugge hvolfdi með hræðilegum afleiðingum. Ég leigði þyrlu og flaug beint á staðinn á meðan aðrir Ijósmynd- arar biðu eftir flugi. Þegar þeir komu á staðinn var aðalbjörgun- arstarfinu lokið. Rétta stundin var liðin og bestu myndirnar farnar fyrir bí,“ sagði Cholet. Gott dæmi svipað þessu henti á meðan Cholet dvaldi hér og myndaði Silví. Hann fór fyrstur allra ljósmyndara heim. Annar franskur ljósmyndari bað hann fyrir fílmur til Þýskalands en Cholet neitaði, því þessi maður hafði rægt hann í ferð til Egypta- lands árið áður. Hann átti því engan greiða inni og tapaði á því, en Cholet varð fyrstur heim með nýjustu myndirnar. Kókaín stöðutákn ríkra „Það sem erlendir fjölmiðlar og þar af leiðandi lesendur sækj- ast mest eftir eru vondu fréttirn- ar og svo fréttir af konungsfjöl- skyldum og ríka fólkinu, kvik- myndastjörnum og milljóna- mæringum. Furstafjölskyldan í Mónakó er alvinsælasta efnið ásamt Díönu prinsessu. Al- menningur vill upplifa eigin drauma með því að lesa um þetta fólk. í Vestur-Þýskalandi er Silvía drottning vinsælt fréttaefni og þess vegna kom ég hingað. Mér finnst ekkert sérstaklega gaman að fýlgjast með ríka lið- inu. Það lifir margt ekki öfúnds- verðu lífi, er hundelt og oft óhamingjusamt. Á sumrin dvel ég tvo mánuði á Marbella á Spáni því þar hittist margt af þessu fræga fólki. Þar flýtur allt í kókaíni. Þeir sem ekki nota það þykja ekki ríkir eða menn með mönnum. Það er orðið eins konar stöðutákn að nota kókaín og mikið um villt partí og blöðin þess vegna áhugasöm. Svo koma alltaf ein- hverjir bubbar með sérþarfir sem búa má til fréttir um. Einn partíkóngurinn er eigandi Billy Smart sirkussins fræga. Einhvern tímann var hann á veitingastað og pantaði bjórflösku en fékk flösku með brotnum stút. Þjónn- inn vildi taka flöskuna aftur en kappinn harðneitaði, vildi fá innihald þessarar flösku. Þjónn- inn varð að fara í leiðangur og finna síu til að fjarlægja glerbrot- in af botni flöskunnar. Á meðan urðu allir aðrir gestir að bíða - í tæpan klukkutíma... Svona uppákomur eru algengar og ríka fólkið gerir í því að búa til vand- ræði. Að eltast við ríka fólkið er hluti af starflnu og maður fær smáfrí í sólinni á milli. Mér finnst skemmtielgast að mynda börn og fólk sem vill láta mynda sig. Taka fallegar myndir, en slíkt selur bara ekki. Ótíðindi er það sem fólk vill, það er líf press- unnar. Núna er það mitt líf. Seinna slappa ég af, skrepp í langan bíltúr til Noregs. Þar er fallegt kvenfólk, lítt spillt land og fegurð. Eftir alla fréttamennsk- una um alla heimsbyggðina þarf maður kyrrð og fegurð. Hvenær það rætist er svo annað mál...“ sagði Cholet hugsi. WAN .“30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.