Vikan - 29.10.1987, Síða 49
kæmu oftar og reglulegar í eftir-
lit og þeir nytu lengur næringar-
legrar ráðgjafar.
Lokaorð:
Ég hef haft ánægjuleg kynni af
mörgum sjúklingum með offltu.
Það er mín reynsla, að þetta fólk
hefiir flest innsæi í sín vanda-
mál, er andlega heilbrigt og vek-
ur hjá manni samúð, ekki
andúð. í ljósi þess hve alvarleg
fötlun og heilsubrestur getur
fylgt offitunni hljótum við öll að
hafa löngun til að hjálpa. Við
skulum hafa í huga að hefð-
bundin megrun við sjúklegri
offltu er gríðarlegt og sársauka-
fullt átak, sem of sjaldan gefur
árangur. Enn sem komið er er
magamálsminnkun eina sæmi-
lega árangursríka fækningin við
sjúklegri offitu, sem jafiiffamt
er tiltölulega fylgikvillasnauð.
Læknavísindin munu halda
áfram að leita fullkomnunar í
þessu sem öðru.
Vmncm
lengir líf
Lífslíkur atvinnuleysingja
eru mun minni en fólks
sem hefur vinnu. Sérstak-
lega eru það ungir atvinnu-
leysingjar, sem eru í hættu
að deyja fyrir aldur fram,
segir í grein í breska
læknatímaritinu British
Medical Joumal.
í greininni, sem er eftir
danskan lækni, Lars Iversen,
segir að rannsóknir gerðar á
dönskum atvinnuleysingjum á
árunum 1970 til 1980 hafi
leitt í ljós verulegt samhengi á
milli dánartíðni og atvinnu-
leysi í Danmörku.
Atvinnuleysi er veldur alvar-
legri streytu, sem ógnar bæði
sjálfsmynd einstaklingsins og
félagslegri stöðu, að ekki sé
minnst á efnahaginn. Ástæðan
fyrir hærri dánartíðni atvinnu-
leysingja virðist því vera að
atvinnuleysið hefur í för með
sér þunglyndi og skort á sjálfs-
trausti, sem getur á endanum
leitt til þess, að lífslöngun
hverfur.
Slæmt sálarástand atvinnu-
leysingjans getur einnig gert
hann viðkvæmari fyrir líkam-
legum sýkingum.
29. OKTÓBER - 4. NÓVEMBER
Hrúturinn
(21. mars - 20. apríl)
Skemmtun, daður, veislur,
athygli; allt þetta kemur í
þinn hlut í vikunni og ekki ólíklegt
að þú stofnir til nýs ástarsam-
bands. Gættu þess samt að eyða
ekki um efni fram. Vinnan er krefj-
andi, en góðar hugmyndir gætu
hjálpað til við að gera hana léttari.
Nautið
(21. apríl - 21. maf)
Þú getur farið að slaka á,
mestu erfiðleikarnir eru að
baki. Njóttu þess að vera með fjöl-
skyldunni og öðrum ástvinum og
hlustaðu vel á það sem þau hafa
að segja. Þú verður að reyna að
læra að vera ekki svona viðkvæm-
ur gagnvart gagnrýni annarra á
verk þín.
Tvíburarnir
(22. maí - 22 júní)
Þú verður I essinu þínu
þessa viku og ert mikið á
ferðinni, samt gefurðu fjölskyld-
unni meiri tíma en vanalega, öllum
til ánægju.
Krabbinn
(23 júní - 23 júlí)
Nægir peningar virðast
langt undan og þessa vik-
una leggurðu aðaláhersluna á að
eignast meira af þeim. Þú gerir þér
grein fyrir því að þér er nauðsyn-
legt að opna þig meira gagnvart
öðrum, tala um hlutina, til að sam-
skiptin gangi betur.
Ljónið
(24. júlí - 23. ágúst)
Miskilningur á sér stað,
vinarhót eru tekin fyrir
eitthvað meira og erfitt verðurfyrir
þig að snúa þér út úr þessu. Þú
færð upplýsingar í vikunni sem
eiga eftir að koma sér vel fyrir þig.
Meyjan
(24. ágúst - 23. sept.)
Taktu því rólega og íhug-
aðu vel hvað þú ætlar að
taka þér fyrir hendur á næstunni.
Gættu þess að eyða ekki of mikl-
um peningum í dauða hluti, þeir
koma aldrei í staðinn fyrir ham-
ingju.
Vogin
(24. sept. - 24. okt.)
Hikaðu ekki við að leita
ráða og trausts hjá vinum
þínum, þetta er ekki rétti tíminn til
að standa einn í öllu. Tækifæri til
að ferðast er líklegt til að bjóðast,
neitaðu því ekki.
Sporðdrekinn
(25. okt. - 23. nóv.)
Þér finnst gaman að vekja
athygli og allar líkur benda
til þess að þér takist það svo um
munar í þessari viku. Gættu þess
að láta ekki skapið hlauða með þig
í gönur, sérstaklega heima fyrir.
Bogamaðurinn
(24. nóv. - 22. des.)
Eitthvað gerist sem gerir
það að verkum að kunn-
ingsskapur breytist í vinskap milli
þín og einhvers kunningja þíns.
Farðu mjög varlega í peningamál-
um og mundu að ekki er allt gull
sem glóir.
Steingeitin
(23. des. - 20 janúar)
Haltu áfram að berjast, erf-
iðleikarnir verða brátt að
baki. Persónutöfrar þínir koma til
með að hjálpa þér í erfiðleikunum
og reynslan mun koma þér til
góða.
Vatnsberinn
(21. janúar - 18 febrúar)
Þér fellur ekki að þurfa að
treysta á aðra, en neitaðu
ekki ef þér býðst hjálparhönd.
Ástin blómstrar og þeir sem ekki
eiga sér fastan förunaut mega eiga
von á að hitta Kfsförunautinn um
helgina.
Fiskarnir
(19. febrúar - 20. mars)
Vertu sérstaklega góður
við sjálfan þig þessa vik-
una. Njóttu þess að borða góðan
mat, hvlla þig og ekki skaðar að
hreifa sig dálítið úti við. Láttu ekki
daður eyðileggja það góða sam-
band sem þú átt við maka þinn.
VIKAN 49