Vikan


Vikan - 29.10.1987, Síða 55

Vikan - 29.10.1987, Síða 55
 . * w ' ' JÍ" y' ' \< >' iiiiillllil a morgnana íslenskum texta og erlendu tali, sem er talsverður galli á því. Ólæs börn sitja nefnilega límd fyrir framan skjáinn og horfa dol- fallin á alla „aksjónina", en skilja ekki nema brot af því sem fram fer. Yfirleitt eru þessir þættir líka hasarteiknimyndir þar sem hið góða sigrar ætíð. Þegar komið er undir hádegi tekur svo við leikinn ástralskur barna- og unglinga- þáttur sem er helst við hæfi þeirra elstu þar sem sagt er frá fremur vafasömum ævintýrum söguhetj- anna. Dagskráin er byggð upp á svip- aðan hátt á sunnudögum. Hún hefst með efni fyrir þau yngstu þar sem allt er með íslensku tali, sögð eru myndskreytt ævintýri og hugljúfar teiknimyndir af sætum fígúrum sýndar. Eftir það tekur síðan við þáttur fyrir eldri börn sem er til mikillar fyrirmyndar, Al- bert feiti. Þar er sagt frá Albert og vinum hans og þá fyrst og fremst vandræðum sem þeir lenda (. Inn á milli kemur svo fyrirmyndarfað- irinn sjálfur, Bill Cosby, og ræðir við áhorfendur um hvort sögu- hetjurnar hafi breytt rétt og hvern- ig ætti að leysa vandann. Þessir þættir eru mjög góðir að því leyti að þeir fá krakkana til að hugsa um rétt og rangt og gera kröfur til þeirra sem áhorfendur, en mata þá ekki bara með léttmeti. Eftir Albert koma svo teiknimyndir ( anda He-Man og dagskránni lýkur svo, eins og á laugardögum, með leiknum áströlskum ungl- ingaþætti. Eins og sjá má er efnið sem börnunum er boðið upp á af ýmsu tagi og gæðin á ýmsu þeirra um- deilanleg. Þó er efnið fyrir yngstu börnin til fyrirmyndar og svo ein- staka þáttur fyrir þau eldri. Hvað sem öðru líður kunna bæði börn- in og ekki síður foreldrar þeirra vel að meta barnadagskrá á morgnana og það er furðulegt að ekki skuli hafa verið boðið upp á það fyrr. Siðasta vetur fengu foreldrar hér á landi loksins að kynnast þeim lúxus að hafa barnaefni ( sjónvarpi á laugardags- og sunnudagsmorgnum og geta þeir þakkað Stöð 2 fyrir það. Reyndar er óskiljanlegt að Ríkissjónvarpið skuli aldrei hafa séð ástæðu til að bjóða upp á þessa þjónustu. Ég held að allir foreldrar sem hafa að- gang að ruglaðri dagskrá Stöðvar 2 geti borið vitni um hve þægílegt það er að hafa frið fyrir börnunum á morgn- ana um helgar, og þó deila megi um hversu jákvætt það er að nota sjónvarpið sem „barnapíu" hlýtur það að vera ( lagi í hófi. En nú er alls ekki sama hvernig efni börnum er boðið upp á frekar en fullorðnum og jafnvel meiri ástæða til að vanda valið fyrir þau, þar sem þau eiga verr með að leggja mat á efnið sjálf. Því miður er margt af því barnaefni sem sést á skjánum ekki beint til fyrirmyndar, en inn á milli eru virkilega góðir þættir sem eru uppbyggilegir og jafnvel fræð- andi. Meðal barnaefnis á laugar- dags- og sunnudagsmorgnum kennir margra grasa og er ást- æða til að líta aðeins nánar á það. Fyrst á morgnana er efni sem er ætlað yngstu börnunum og er það vel til fundið þar sem þau vakna að jafnaði fyrst. Á laugar- dögum er rúmlega eins og hálfs klukkutíma þáttur sem heitir „Með afa“ og er til fyrirmyndar fyrir yngstu áhorfendurna. Falleg- ar blómasögur, Litll folinn og fleira hugljúft efni ber fyrir augun og allt er bað með íslensku tali. Á eftir Afa kemur svo mjög góð- ur fræðsluþáttur um dýraltf í Eyja- álfu sem er bæði skemmtilegur og fræðandi fyrir börnin. Eftir þann þátt kemur efni sem er heid- ur við hæfi eldri barna þó ekki væri fyrir annað en að það er með VIKAN 55

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.