Vikan - 29.10.1987, Qupperneq 55
.
* w ' ' JÍ" y' ' \< >'
iiiiillllil
a morgnana
íslenskum texta og erlendu tali,
sem er talsverður galli á því.
Ólæs börn sitja nefnilega límd
fyrir framan skjáinn og horfa dol-
fallin á alla „aksjónina", en skilja
ekki nema brot af því sem fram
fer. Yfirleitt eru þessir þættir líka
hasarteiknimyndir þar sem hið
góða sigrar ætíð. Þegar komið er
undir hádegi tekur svo við leikinn
ástralskur barna- og unglinga-
þáttur sem er helst við hæfi þeirra
elstu þar sem sagt er frá fremur
vafasömum ævintýrum söguhetj-
anna.
Dagskráin er byggð upp á svip-
aðan hátt á sunnudögum. Hún
hefst með efni fyrir þau yngstu
þar sem allt er með íslensku tali,
sögð eru myndskreytt ævintýri og
hugljúfar teiknimyndir af sætum
fígúrum sýndar. Eftir það tekur
síðan við þáttur fyrir eldri börn
sem er til mikillar fyrirmyndar, Al-
bert feiti. Þar er sagt frá Albert og
vinum hans og þá fyrst og fremst
vandræðum sem þeir lenda (. Inn
á milli kemur svo fyrirmyndarfað-
irinn sjálfur, Bill Cosby, og ræðir
við áhorfendur um hvort sögu-
hetjurnar hafi breytt rétt og hvern-
ig ætti að leysa vandann. Þessir
þættir eru mjög góðir að því leyti
að þeir fá krakkana til að hugsa
um rétt og rangt og gera kröfur til
þeirra sem áhorfendur, en mata
þá ekki bara með léttmeti. Eftir
Albert koma svo teiknimyndir (
anda He-Man og dagskránni
lýkur svo, eins og á laugardögum,
með leiknum áströlskum ungl-
ingaþætti.
Eins og sjá má er efnið sem
börnunum er boðið upp á af ýmsu
tagi og gæðin á ýmsu þeirra um-
deilanleg. Þó er efnið fyrir yngstu
börnin til fyrirmyndar og svo ein-
staka þáttur fyrir þau eldri. Hvað
sem öðru líður kunna bæði börn-
in og ekki síður foreldrar þeirra
vel að meta barnadagskrá á
morgnana og það er furðulegt að
ekki skuli hafa verið boðið upp á
það fyrr.
Siðasta vetur fengu foreldrar
hér á landi loksins að kynnast
þeim lúxus að hafa barnaefni (
sjónvarpi á laugardags- og
sunnudagsmorgnum og geta
þeir þakkað Stöð 2 fyrir það.
Reyndar er óskiljanlegt að
Ríkissjónvarpið skuli aldrei
hafa séð ástæðu til að bjóða
upp á þessa þjónustu. Ég held
að allir foreldrar sem hafa að-
gang að ruglaðri dagskrá
Stöðvar 2 geti borið vitni um
hve þægílegt það er að hafa
frið fyrir börnunum á morgn-
ana um helgar, og þó deila
megi um hversu jákvætt það
er að nota sjónvarpið sem
„barnapíu" hlýtur það að vera (
lagi í hófi.
En nú er alls ekki sama hvernig
efni börnum er boðið upp á frekar
en fullorðnum og jafnvel meiri
ástæða til að vanda valið fyrir
þau, þar sem þau eiga verr með
að leggja mat á efnið sjálf. Því
miður er margt af því barnaefni
sem sést á skjánum ekki beint til
fyrirmyndar, en inn á milli eru
virkilega góðir þættir sem eru
uppbyggilegir og jafnvel fræð-
andi. Meðal barnaefnis á laugar-
dags- og sunnudagsmorgnum
kennir margra grasa og er ást-
æða til að líta aðeins nánar á
það.
Fyrst á morgnana er efni sem
er ætlað yngstu börnunum og er
það vel til fundið þar sem þau
vakna að jafnaði fyrst. Á laugar-
dögum er rúmlega eins og hálfs
klukkutíma þáttur sem heitir
„Með afa“ og er til fyrirmyndar
fyrir yngstu áhorfendurna. Falleg-
ar blómasögur, Litll folinn og fleira
hugljúft efni ber fyrir augun og allt
er bað með íslensku tali.
Á eftir Afa kemur svo mjög góð-
ur fræðsluþáttur um dýraltf í Eyja-
álfu sem er bæði skemmtilegur
og fræðandi fyrir börnin. Eftir
þann þátt kemur efni sem er heid-
ur við hæfi eldri barna þó ekki
væri fyrir annað en að það er með
VIKAN 55