Vikan - 29.10.1987, Qupperneq 59
Víllingurinn
Bruce Willis
Pó að Bruce Wlllls sé orð-
Inn súperstjarna f sjónvarps-
og kvlkmyndahelminum
hefur gæfan ekkl alltaf bros-
að vlð honum. Fyrir örfáum
árum var hann stöðugt svo
blankur að hann varð að fá
lánaða peninga hjá vlnum
sínum fyrlr sígarettum. Eftlr
að hafa slegið í gegn í þátt-
unum Hasarlelkur þarf hann
vlssulega ekkl að hafa alvar-
legar áhyggjur af fjárhagn-
um, en áhyggjuefnin eru
samt næg fyrlr þvf, allavega
fyrir framlelðendur hans.
Þrátt fyrir alia peningana og
trægðina hefur Willis ekkert róast
- fremur þveröfugt. Nú hefur
hann loksins efni á að halda eins
villt partý og hann langar til, og
það gerir hann ósvikið. Lögreglan
kemur yfirleitt heim til hans einu
sinni í viku til að hafa afskipti af
brjáluðum gleðskap og sjá til
þess að nágrannarnir fái
svefnfrið. Ekki nóg með það,
heldur á kappinn nú von á fang-
elsisdóm fyrir að slá lögregluþjón
í jörðina. Það yrði þá ekki í fyrsta
sinn, því hann hefur setið inni
vegna eiturlyfjaneyslu.
Þessi ungæðingslega hegðun
hefur Ifka sett mark sitt á vinnslu
sjónvarpsþáttanna, og nú er Cyb-
ill Shephard sem leikur á móti
honum í þeim víst orðin svo lang-
þreyttu á honum að hún þolir
hann jafnvel ekki lengur. Willis
virðist eiga verulega erfitt með að
fullorðnast og heldur áfram að
haga sér eins og þegar hann var
unglingur, en eitt af uppátækjum
hans þá var að hlaupa allsnakinn
frá skóla sínum og eftir aðalgöt-
unni í bænum heim til sín til að
vinna veðmál upp á einn dal.
í dag er Willis 32ja ára og lítur
jafnvel út fyrir að vera eldri, með
há kollvik, þunnt hár og andlit
sem synd væri að kalla smáfrítt.
Hvers vegna hefur honum þá tek-
ist að slá út kappa eins og Don
Johnson, Tom Selleck og hinum
tíu árum yngri Tom Cruise og
Rob Lowe í keppninni um hylli
kvenkynsins? Það sem virðist
duga Willis svona vel er þessi
grófi, karlmannlegi sjarmi, sem er
ekki ósvipaður og hjá Jack Nick-
olson, að viðbættri hæfilega geð-
veikislegri framkomu.
Eins og er selst allt sem strák-
urinn kemur nálægt, og má meðal
annars nefna myndina Blind Date
þar sem hann lék gegn Kim Bas-
inger. Sú mynd gekk mun betur í
Bandaríkjunum en tvær síðustu
myndir Basingers þrátt fyrir að í
þeim lékju ekki minni spámenn
en Mickey Rourke og Richard
Gere. Platan hans, The Return of
Bruno, rennur út þrátt fyrir að
gagnrýnendur séu á einu máli um
að Willis geti alls ekki sungið.
Einn þeirra gekk svo langt að
segja, „Ef hann getur sungið er
afi minn betri en Bruce Spring-
steen".
Þó kærleikur vlrðist vera með
þeim skötuhjúum á myndinni,
er Cybili Shepherd orðin
iangþreytt á fíflalátunum f
Bruce Willis.
Vondu strákarnir tveir f
Hollywood fóru á skrall saman
um daginn tll að athuga hvor
fengi fieiri sénsa. Bruce Willis
tapaði og Don Johnson varð
100 dollurum rfkari.
VIKAN 59