Vikan


Vikan - 29.10.1987, Blaðsíða 60

Vikan - 29.10.1987, Blaðsíða 60
Friðrik Indriðason Arnold ★ ★★ Vöövabúntiö með háu greindarvísitöluna, Arnold Schwarzenegger, hefur nú til dags ekkert nógu illvígt til að berjast viö á jarðrlki þannig að hann leitar út fyrir sólkerfið til að finna verðugan andstæðing í þessari nýjustu mynd sinni, Predator, sem sýnd er I Bíó- höllinni. Arnold og félagar eru sendir til Mið-Ameríku að hjálpa nokkrum bandamönnum sem eru í vanda staddir og lenda þá í baráttu við skrímslið, vélvætt óargadýr sem getur breytt sér í allra kvikinda líki. Fyrir aðdáendur Arnolds er þetta ómissandi mynd og aðrir gætu einnig haft gaman af enda er þessi mynd mun betur gerð en marg- ar aðrar myndir kappanna. Fáguð ★★★★ Tin Men I Bíóborginni er fáguð gamanmynd af bestu gerð þar sem Richard Dreyfuss er aftur kominn í sitt besta form eftir nokkur ár í dópneyslu og rugli. Samleikur hans og Danny DeVito er með afbrigðum góður undir leik- stjórn Barry Levinson (Diner) sem á undan- förnum árum hefur haslað sér völl sem einn af toppleikstjórum Bandaríkjanna., Svipað og flestar aðrar myndir Levinson gerist þessi í upphafi sjöunda áratugarins og fjallar um baráttu tveggja sölumanna á ál- klæðningum eftir að þeir lenda í árekstri. Hvor vill ná sér niðri á hinum vegna árekstursins og er öllum brögðum beitt. Levinson skrifar sjálfur handritið sem er eitt hið besta sem undirritaður hefur kynnst í gamanmynd. Skassið í megrun ★ ★ Nokkra ágæta punkta er að finna í þessari nýjustu mynd þeirra Jim Abrahams og Zuker- bræðra sem slógu í gegn með Airplane- myndunum. Danny DeVito leikur hér rudda- legan kaupsýslumann sem verður fyrir því láni að skassinu konu hans (Bette Midler) er rænt af tveimur áhugamönnum í faginu. Hann hefur engan áhuga á að fá hana aftur og vill helst að mannræningjarnir komi henni undir græna torfu. Ágætis vinskapur tekst svo milli skassins og mannræningjanna er í Ijós kemur að skassið hefur grennst mikið í vistinni hjá þeim, sem var henni áður ómögulegt, og þau ákveða að leika á eiginmanninn. Traust skemmtun. KVIKMYNDIR Vélmenni ★ ★ Hollenski leikstjórinn Paul Verhoeven hefur nú slegið í gegn á Bandaríkjamarkaði og myndin Robocop er nýjasta verk hans, sýnd í Háskólabíói. Svipað og fyrri myndir hans er magnað of- beldi það sem einkum setur svip á verkið. Myndin er nánast ein skothríð frá byrjun til enda og góð afþreying fyrir þá sem hafa gam- an af slíkum hasar. Söguþráðurinn er nokkuð staðlaður. Mynd- in gerist í Detroit í náinni framtíð er lögreglan er byrjuð að nota vélmenni til að fást við glæpamenn, vélmenni sem fátt eitt fær grandað. Myndir sem við mælum með The Witches of Eastwick ★★★★ Lethal Weapon ★★ Eureka ★★★ Gardens of Stone ★★★ Betty Blue ★★★★ Peter Weller sem vélmennið MYNDBÖND Hryllingsbúðin ★ ★★ Hin upphaflega gerð af Litlu hryllingsbúðinni, sem söngleikurinn var síðan byggður á, verð- ur tvímælalaust að teljast myndband vikunnar einkum vegna hins geðveikislega húmors sem finna má í henni. Það var B-myndakóngurinn Roger Corman sem gerði þessa mynd árið 1960, en nú orðið er hún einkum þekkt sem fyrsta myndin sem Jack Nicholson lék í. Það er ódýr sölumennska að hafa Nichol- son á framhlið myndbandsins því hann kemur aðeins fram í nokkrar mínútur í myndinni, en er óborganlegur að vanda. Þótt myndin sé aðeins 70 mínútur að lengd er vel þess virði að skoða hana enda margar persónur, hver annarri geggjaðri, í henni sem ekki eru í söngleiknum. James Dean ★ ★★★ Á mörgum myndbandaleigum má fá myndir sem bera titilinn The James Dean Collection eða James Dean safnið og hafa að geyma all- ar hans myndir. Af öðrum ólöstuðum má benda á myndina East of Eden, en fyrir hlut- verk sitt í þeirri mynd var Dean útnefndur til óskarsverðlauna. Elia Kazan leikstýrir myndinni sem byggð er á einni af þekktustu sögum John Steinbeck. Dean fer hér á kostum sem útskúfaði sonur- inn í fjölskyldunni eða svarti sauðurinn á bú- garði föður síns skömmu eftir síðustu alda- mót. Elia Kazan er einn fremsti leikstjóri Banda- ríkjanna fyrr og síðar og þessi mynd telst til klassískra verka hans. 60 VIKAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.