Vikan


Vikan - 29.10.1987, Page 62

Vikan - 29.10.1987, Page 62
Dægurmáladeild Rásar 2. Leifur Hauksson, Guðrún Gunnars- dóttir, Ævar Kjart- ansson, Kolbrún Halldórsdóttir, Stef- án Jón Hafstein og Hreinn Valdimars- son tæknimaður. Á myndina vantar Sigurð Þór Salvars- son, Einar Kárason og Sverri Gauta Diego. Nýr valkostur Eins og margir lesendur hafa sjálfsagt orðið varir við hefur Ras 2 breytt dagskrá sinni verulega undanfarið, og vegur þar þyngst stofnun Dægur- málaútvarps sem sér um rúm- lega 6 klukkustunda utsend- ingar á öllum virkum dögum. Efnið sem boöið er upp á i dagskrá Dægurmálaútvarpsins er i mörgu frábrugðin því sem verið hefur, og nú er lögð mun meiri áhersla á talað mál en áður var. Aö sögn Stefáns Jóns Haf- stein, sem er einn aðstandenda Dægurmálaútvarpsins, var ákveðið að gera þessa tilraun þar sem hlustendur virtust vera orðnir leiðir á tónlistarsíbyljunni og vildu eitthvað annað talmál í utvarpið en kynningar á lögum og að sagt væri frá þvi hvað klukkan se. „Við teljum okkur ekki róa á sörnu mið og Stjarnan og Bylgjan með Dægurlagaútvarpinu. Vissulega erum við að bregðast við sam- keppni, en sá hlustendahópur sem við stílum upp á er einna helst sá sem virðist ekki hlusta á útvarp eins og er samkvæmt könnunum. Þessi hopur er orðinn leiður á sibyljunni og heldur þvi fram að allar stöðvarnar séu eins. Við erum að bjóða þeim nýjan og áhugaverðan valkost þar sem mikið er lagt upp ur vönduöu og fjölbreyttu dægurmálaefni." Það má til sanns vegar færa að fjölbreytnin sé i fyrirrúmi hjá þeirri átta manna hópi sem stendur að Dægurmálaútvarpinu. Mikið er reynt að fá efni utan af landi og haft er samband við fréttaritara og aðra tengiliði út um allan heim í leit að áhugaverðu efni Þá eru fastir dalkahöfundar og reglulegir gestir og má þar meðal annarra nefna Flosa Ólafsson og llluga Jökulsson. Ekki má heldur gleyma heilsuþættinum Megrun- arlögreglan né fréttunum um „nippana" (sbr, uppana) sem sagðar eru á mánudöqurn. Ljósm.: Lárus Karl Dægurmálaútvarp Rásar 2 Hvað gefufþjl konunni sem kveikir kertaljós á síðkvöfdiðn, nuddar á þér bakið og geymir ennþá fyrsta bréfið frá þér? 62 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.