Vikan - 09.02.1939, Page 12
12
VIKAN
Nr. 6, 1939
Gissur gullrass gefur afmælisköku.
Erla: Heyrðu, pabbi minn. Ertu búinn að
gleyma, hvaða dagur er í dag!
Gissur gullrass: Þetta hefir verið góður og
rólegur dagur, en hann er nú ekki liðinn enn!
Erla: Það er afmælisdagurinn hennar
mömmu!
Gissur gullrass: Pú-hú! Ég þakka þér fyrir
að þú skyldir minna mig á það!
I
Gissur gullrass: Eg hringdi til vinkonu
Rasmínu, og hún sagði mér, að ég skyldi
gefa henni afmælisköku með jafnmörgum
kertum og Rasmína er gömul!
Búðarmaðurinn: Við eigum því miður ekki
til svona mörg kerti í augnablikinu, en eftir
klukkutíma skal ég senda yður heim, það
sem á vantar, hr. Gissur!
Gissur gullráss: Já, það er ágætt!
Gissur gullrass: Það var heppilegt, að frú
Prjála skyldi hjálpa mér. Rasmína talar
alltaf svo illa um hana, þó að hún sé bezta
vinkona hennar. Ég ætla nú samt að segja
Rasmínu, hvað hún var almennileg!
Gissur gullrass: Þeta er alveg ljómandi
kaka! Hún hlýtur að verða ánægð! Jæja, nú
er allt til! Bara að hún komi nú, áður en
kertin eru útbrunnin!
Rasmína: Nei, en hvað þetta er falleg af-
mæliskaka! Hún er frá Gissuri! Hann hefir
þá munað eftir deginum! Ég sem hélt, að
hann hefði gleymt honum!
Rasmíná: Allar vinkonur mina munu
öfunda mig af kökunni, þegar þær koma
hingað í dag. En hvað er þetta (telur).
Fjörutíu kerti! Þvílík frekja!
Rasmína: Þegiðu, fólið þitt! Hvemig vogar
þú þér að setja fjörutíu kerti á kökuna!
Gissur gullrass: Já, Rasmína, en — heyrðu,
það er verið að hringja!
Sendisveininn: Afsakið, að ég ónáða, en —
Gissur gullrass: Nei, það er ekkert!
Rasmína: Hvað eruð þér að gera hingað?
Hvað eruð þér með í bögglinum?
Sendisveininn: Ég er með nokkur kerti.
Maðurinn yðar bað um sextíu kerti, héma em
þessi tuttugu, sem á vantaði!
Rasmína: Sextíu! Ræfill! Þú hefir þá ætlað
að móðga mig!
Gissur gullrass: Frú Prjála sagði . . .
Rasmína (niðri): Þú leggur þá lag þitt við
verstu óvini mina. Þarna er þér rétt lýst!
Gissur gullrass: Þú hefir margsagt, að hún
væri bezta vinkona þin!