Vikan - 09.02.1939, Page 14
14
VIKAN
Nr. 6, 193^
(^ýegimí og JÖízka
Nýlega voru gefin saman í hjónaband ungfrú
Jóhanna Alexandersdóttir og hr. Isleifur Þorkels-
son, verzlunarmaður. Heimili ungu hjónanna er
á Skeggjag. 19. (Sig. Guðmundsson ljósmyndaði).
Auk þessa er nauðsynlegt að hreinsa
tanna-millibilin einu sinni í viku með sterk-
um hörtvinna. Munið að bursta tennurnar
jafn vel að innanverðu eins og að utan-
verðu.
Svona — ekki svona.
Ef þér hafið falleg eyru, skuluð þér um
fram allt ekki fela þau. Nú er í tízku að
%
suvtuk
: ifo.)
\ Suvna
m
greiða hárið upp frá eyrunum og hnakk-
anum og láta það hggja í lokkum uppi á.
höfðinu. #
Ef þér eruð famar að verða hrukkóttar
í andliti, skuluð þér ekki ganga með dökka
kraga eða hatta. Þér getið vel notað ljós-
íÁkx s uzma
S uprvtx
bláa og dumbrauða hatta og einnig haft
ljósan kraga í svipuðum lit, þá fer þetta
afar vel.
Munið eftir því, að gráhærðar konur
klæðir ekkert eins vel og dökkbláir eða
veik-rauðir litir.
Augnabrúnirnar.
pf þér eruð sambrýndar, þá skuluð þér
*-J ekki hika við að bæta úr því með því
að kippa burtu brúnahárunum yfir nefinu
með háratöng. Þér fríkkið við það. Sam-
vaxnar augnabrúnir eða mjög loðnar eru
ótvíræð andlitslýti og ónauðsynleg, auk
þess gera þær svipinn hörkulegan. Eðh-
legastar og fegurstar augnabrúnir fást
með því að bera á þær vasilín, strjúka
þær síðan og mjókka með þumal- og vísi-
fingri. Því næst takið þér háratöng og
kippið þeim hárum burt, sem eru utan við
brúnalínuna og jafnframt þeim, sem ekki
fást til að leggjast að hinum. Of loðnar
augnabrúnir afskræma jafnvel fegursta
andlit. Hitt verður jafnan álitamál, hvort
fegurst sé: eðlilegar augnabrúnir, beinar
eða bogadregnar, háar eða lágar. Þar verð-
ur fegurðarkennd hvers einstaklings að
ráða.
Um lögun augnabrúnanna skal þetta að
lokum tekið fram, að augnatóftin ákveð-
ur hæð þeirra yfir innri augnakróknum,
en brúhalínan smá hækki eftir því, sem
fjær dregur nefinu, beggja vegna og endi
beint uppi yfir ytri augnakrók.
Varirnar.
Haldið vörunum fyrst og fremst mjúk-
um með því að rjóða á þær hvítu vaselíni
á kvöldin eða volgu viðsmjöri og núið það
vel inn í slímhúðina.
Burstið varirnar á morgnana með mjúk-
um bursta, það örfar blóðrásina og vam-
ar því, að þær hreistri. Þerrið ætíð vel af
þeim gamla varalitinn, áður en þér rjóðið
á þær nýjum lit.
Tízkudans ársins.
Fimmta sporið í Lambeth Walk.
Nýtízku samkvæmiskjóll.
Þessi kjóll er úr þykku, ljósbláu satini.
Hann er í átta stykkjum, sem faha vel að
að ofan, en víkka síðan, svo að pilsið verð-
ur ákaflega vítt. Yfir axlirnar eru engin
bönd, svo að kjólnum er haldið uppi með
teinum. Stóra blómið að framan er tvílitt,
dökk- og ljósblátt.
Tennurnar.
Fátt prýðir konu meira en fagur munn-
ur með blómlegar, rjóðar varir og
óskemmdar, drifhvítar tennur.
Notið ávalt íbjúgan tannbursta. Lang-
bezta tannhreinsunarmeðalið er mulin
krít, lítið eitt blönduð piparmyntudufti til
bragðbætis. Hún fæst í öllum lyfjabúðum
og er mjög ódýr. Úr þessari blöndu burstið
þér tennurnar á morgnana.
Á kvöldin notið þér fínt salt. Hellið dá-
litlu í lófa yðar og dýfið tannburstanum
í það. Látið ekki tanngarðinn verða útund-
an, en hreinsið hann og nuddið umfram
allt með fingurgómunum.
Burstið tennurnar ætíð lóðrétt, en aldrei
þversum, því að þá losið þér tannholdið frá
tönnunum, en það getur haft þær afleið-
ingar, að tannholdið ýfist smám saman
svo, að tannrótin sjálf komi í ljós, til ht-
illar prýði.
Sé tannholdið svo viðkvæmt, að úr því
blæði eftir hverja burstun, þá er því nauð-
synlegra að bursta það vel og núa, kvölds
og morgna, til að herða það. Sé það gert,
þá hættir von bráðar að blæða. Undir þess-
um kringumstæðum er saltið beztameðalið.
Séu tennumar gular og óbragðlegar, þá
er ágætt ráð að nudda þær með sítrónu-
sneið.