Vikan - 30.03.1939, Síða 14
14
VIKAN
Nr. 13, 1939
0
0
Nú fara allir, sem vettlingi geta valdið, á skíði, sér
til hressingar. En það er margs, sem þarf að gæta,
og margar kröfurnar, sem vetraríþróttirnar gera.
Fyrst og fremst klæðnaðurinn. Auðvitað verður
fólk, sem stundar skíðaíþróttina, að klæða sig vel,
en byrjendum hættir við að klæða sig of vel, svo að
þeir eiga bágt með að hreyfa sig og verða fljótt
þreyttir og sveittir. En það er líka hættulegt að búa
sig illa. Ullarföt og skinnföt eru lang hentugust.
Til að forðast snjóblindu, sem ultrafjólubláu sólar-
geislarnir á fjöllunum valda, er bezt að nota græn
eða grá sólargleraugu, sérstaklega í marz og apríl.
Ef þér farið ekki rétt með andlitshúð yðar, getur
hún stórskemmzt. Sérstaklega varimar. Þessvegna
skuluð þér nota feitt varasmyrsl og andlitssmyrsl á
ferðalaginu. Það hefir enga þýðingu að nota þessi
venjulegu dagsmyrsl, því að í þeim er oftast vatn,
og frostið hefir áhrif á þau. En á kvöldin getið þér
notað dagsmyrsl og andlitsduft, eins og þér eruð
vanar.
Hendumar verða einnig fljótlega rauðar og
gprungnar, ef þér gætið þess ekki í tæka tíð að bera
á þær handáburð. .
Þó eru það sérstaklega fætumar, sem þér þurfið
að hugsa um. Það er ágætt að nudda þá með fóta-
dufti, ef þeir em sárir af kulda, svita, eða særðir
undan stígvélunum.
Þess þarf að gæta við skíðaíþróttina — eins og
við allar líkamsæfingar — að byrja gætilega. Blóð-
rásin og andardrátturinn þurfa að venjast loftinu
og erfiðinu. Ef þér hafið ekki gaman af að renna
yður á skíðum, er það áreiðanlega af því, að þér hafið
ofboðið hjarta yðar og lungum, og til þessa þurfið
þér að taka tillit.
H erraherbergi.
Hér er laglegt herraherbergi. — Húsgögnin eru úr svörtu
mahogni, og eru bæði falleg og sterkleg. Legubekkurinn og
stólamir eru klæddir grænu efni. Við gluggann er hentugt
skrifborð, sem lítið fer fyrir.
Gæfa fylgir góðum hring.
Kaupið trúlofunarhringana hjá
Sigurþóri. Sendið nákvæmt mál.
SIGUBÞÖB
Hafnarstræti 4. Reykjavík.
CcuvúMícl
Dömubindi
og
Belti.
Gúmmíhanzkar,
Leguhringar
og
Hitapokar.
Edinborg
Tilkynning.
Hin hollu og bætiefnaríku
brauð og kruður úr heil-
möluðu hveiti, era ávallt
til í brauðsölum minum,
fyrir utan allar þær brauð-
tegundir, sem ég áður hefi
bakað, og hafa farið sig-
urför um borgina.
Fást á eftirtöldum
stöðum:
Bræðraborgarstíg 16.
Bræðraborgarstíg 29
(Jafet).
Blómvallagötu 10.
Vesturgötu 27.
Ásvallagötu 1.
Keykjavíkurveg 19
(J. Bergmann)
Laugamesveg 50
(Kirkjuberg).
Jón Símonarson,
Bræðraborgarstíg 16.
Sími 2273.
Nýlega voru gefin saman í hjónaband ungfrú
Fríða Jónasdóttir og hr. Ingólfur Rögnvaldsson
jámsmiður. Heimili þeirra er á Bergstaðastrætl
30. (Sigurður Guðmundsson tók myndina).
Það segir sig sjálft, að aðeins grannvaxnar stúlk-
ur geta gengið i þessum þverröndótta kjól. Hann
er úr dökkbláu efni með hvítum röndum. Fallegur
kjóll fyrir háar og grannar stúlkur.
Dökkhærðar stúlkur gabba oft, en Ijóshærðar
stúlkur svíkja alltaf. Octave Uzanne.
■ *
Konan er grimmari en maðurinn í ást og hatri.
Nietzche.
*
Ef eitthvað er sagt í gamni, er óheiðarlegt að
taka það alvarlegar. Plautus.
*
Ástin deyr þegar hún hættir að vaxa.
Chateaubriand.
*
Hinn reyndi unnandi veit, að þrisvar sinnum
nei þýðir já. Compoamor.
•
Kvartaðu ekki undan náttúrunni, hún hefir
gert sitt. Milton.