Vikan


Vikan - 30.03.1939, Síða 20

Vikan - 30.03.1939, Síða 20
20 V IK A N Nr. 13, 1939 Jóhann Hjaltason: Fyrir fjörutíu árum Eins og sjá má í hinu merka riti Jóns Aðils, „Einokunarverzlun Dana á íslandi“, voru lengi fram eftir öld- um aðeins tveir verzlunarstaðir við Húna- flóa, þ. e. Skagaströnd og Kúvíkur í Reykj- arfirði hinum syðra á Ströndum norður. Að þessu var, eins og nærri má geta, geysilegt óhagræði fyrir flestalla íbúa hinna stóru héraða, sem að þessum kaup- stöðum lágu og hggja. En ekki bættist úr þeim meinum fyrr en á s. 1. öld, og það ekki hvað Strandasýslu snerti, fyrr en rétt undir aldamótin 1900, að föst verzlun kom á Hólmavík, en áður hafði þá um nokkur ár komið lausakaupmaður á Skeljavík og legið þar nokkrar vikur að sumrinu. Slíkir kaupmenn voru nefndir „spekú- lantar“ og skipin „spekúlantsskip“. Eigi höfðu bændur þá aðra framleiðslu til að verzla með við „spekúlantana" en ull og svo dún, lýsi og selskinn frá hlunn- indajörðum. Allur almenningur gat því lítið keypt af útlendri vöru. Það voru stór- bændurnir einir, er gátu birgt sig upp með kornvöru, kaffi og sykri o. fl. til ársins. Fátækari bændur við Steingrímsf jörð urðu því eftir sem áður að sækja norður í kaup- stað, sem svo var nefnt, þ. e. norður í Kúvíkur eða vestur að Djúpi. 1 byrjun jólaföstu fóru margir vestur að Amgerðareyri með einhvem píring af smjöri og mör til að kaupa fyrir glaðning upp á jóhn, kaffi og sykur og tár af víni. Skal þér nú sagt frá einni slíkri ferð, er tveir Steingrímsfirðingar fóm á jóla- föstu rétt eftir 1890. Þeir lögðu upp snemma dags í sæmi- legri færð, en ekki góðu veðurútliti. Þeir drógu sleðakjagg lítið og þar á smjör og mör, er þeir ætluðu að kaupa fyrir á Am- gerðareyri. Þeir fóru svonefnt Hólatagl, sem er styttri leið en upp frá Kleppustöð- um. Um fullbirtu tekur að dimma að með hríð og er þar skemmst af að segja, að innan skamms skellur á þá stórhríðarbylur með miklu frosti, og sjá þeir ekki annan kost vænni en skilja þar eftir sleðann og snúa við og freista þess að ná lausir til byggða. Það gera þeir og farnast vel. En í sex daga stóð hríðin svo að varla var uppstytta. Á sjöunda eða áttunda degi gerir gott veður og leggja þeir þá enn á stað. Finna þeir sleðakútinn, komast vest- ur og ljúka þar erindum sínum, og gista á einhverjum bæ í nánd við Arngerðar- eyri. Um nóttina gerir hláku og em suðvest- an hryðjur, er þeir leggja upp frá nátt- stað sínum. Er þeir hafa skammt farið, gerir svo mikla úrkomu af bleytukafaldi, að þeir sjá ekki annan úrkost en leita skjóls á bæ einum, er þar var nærri, enda vom þeir lítt búnir að hlífum og þá meir til að mæta frosti en vætu. Á bæ þessum er þeim boðið til baðstofu, sem er lág undir loft, súðarlaus og aðeins reft á langbönd og sperrur, svo sem nú tíðkast í fjárhús- um. I baðstofunni er margt fólk, böm og unglingar. Innst við gafl liggur bóndi í rúmi sínu og er hann ber, að svo miklu leyti, sem þeir sjá, með brekán og gæm- skinn ofan á sér. Og allsstaðar voru skinn yfir rúmum, því að baðstofan lak mjög. Er 'þeir hafa þarna langa stund verið, án þess við þá væri talað, kemur kona bónda með rjúkandi saltsteinbít í trogi, er hún setur á kistil við rúm bónda síns. Rís hann þá upp við olnboga og skammtar hverjum af þeim, sem inni var, sinn skerf úr trog- inu á þjótur og trédiska, en engin voru þar önnur mataráhöld, hvorki hnífur né gaffall. Bræddur mör fylgdi, og dyfu ahir í sama bollann. Eigi fengu þeir þar ann- an beina. Enda var það tíðast í þá daga, að vest- urferðamenn, hvort sem það voru nú ver- menn eða aðrir, höfðu með sér mat í nesti að heiman og hfðu að mestu á því. Þó var yfirleitt næturgestum borinn matur, sem oftast var grautur og mjólk. Muna margir eldri vermenn eftir því, að það var lengi siður á minni háttar bæjum vestan heiðar, að bera grautinn fram í tarínum eða smáum trogum, þar sem tveir voru um hvert ílát og stundum fjórir. Kaffi var þá lítið notað og því sjaldan borið ferðamönnum. Þegar af létti hryðjunni fóru Steingríms- firðingarnir að hugsa til ferðar, þökkuðu fyrir sig og kvöddu heimafólk. Hafði bóndi þá aftur hlúð að sér gæru- skinnunum og leizt þeim svo sem hann. myndi eitthvað krankur vera. Þeir komust að Lágadal um kvöldið og voru þar þá nótt. Daginn eftir var frost og norðvestan ágangsél, þó lögðu þeir á heiðina snemma dags, en þá var Stein- grímsf jarðarheiði sæluhúslaus og htt vörð- uð, og því nokkuð annað að fara hana en nú. Annar þessarra ferðamanna var nokk- uð við aldur, en hinn ungur og kapps- fullur og eigi svo búinn að skjólklæðum sem skyldi. Þeir fóru fram svo nefndan Kúludal og stefndu á Sótavörðuhæð, sem er nær miðri heiði. Er þeir koma alllangt fram á dalinn, gerir él eitt mikið, og vill hinn eldri þá aftur hverfa og freista að ná Lágadal. Hinn kveður það aldrei skulu henda og verði nú fram að halda svo sem horfi, að hverju sem það verði. Hlýtur hann að ráða og halda þeir nú áfram um hríð eftir tilvísun stormsins. Gamli maðurinn er við og við að þreyfa á búnaði félaga síns um handleggi, háls og hendur og hafa orð á, að þunn séu klæðin og muni þau brátt frjósa, en hann kala og gefast upp. Pilturinn kveður það enn óséð, hvorn fyrr þrjóti gönguna, og því bezt að geyma allar hrakspár. Eigi miklu síðar birtir nokkuð í lofti og verða þeir þess þá vísari, að þeir eru komnir undir Sótavörðuhæð og hafa lítið eða ekkert afleiðis farið meðan á stóð hríð- inni. Fór veðrið batnandi úr því og komust þeir norður og heim um kvöldið við góðan leik, og þótti sín för giftusamleg eftir at- vikum. Suðurlands Reykjavík. Sími 1249 (3 línur). HEILDSALA: Lindargötu 39. Niðursuðuvörur, kjöt, íiskmeti, Allskonar pylsur og annar áskurður á brauð. SMÁSALA: Matardeildin, Hafnarstræti 5. Sími 1211. Matarbúðin, Laugaveg 42. Sími 3812. Kjötbúðin Týsgötu 1. Sími 4685. Kjötbúð Austurbæjar. Sími 1947. Kjötbúð Sólvalla. Sími 4879. Konan: Ég skil ekki, hvernig þú fórst að hlæja að allri þeirra vitleysu, sem úr honum vall. Hann: Ég varð. Ég skulda honum 100 krónur! * Jón: Það er mað- ur, sem kann að halda ræðu, prest- urinn okkar. Hann talaði svo ljóst og kunnuglega um hel- víti, að það var eins og hann væri fædd- ur þar og uppalinn. Gunnar: Þó að það sé nú ef til vill ýkjur, að hann sé alinn þar upp, þá var samt auðheyrt, að hann var dável kunnugur þar neðra

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.