Vikan


Vikan - 13.04.1939, Blaðsíða 5

Vikan - 13.04.1939, Blaðsíða 5
Nr. 15, 1939 VIKAN 5 eimssýningin — og heimur framtíðarinnar. Eftir ALEKO E. LILIUS. I eftirfarandi grein er sagt frá fyrir- komulagi Heimsýningarinnar í New York og hinum mörgu og furðulegu byggingum og æfintýralegu uppfinn- ingum, sem þar getur að líta. IjHJjJ vor mun fólk streyma hvaðanæfa að til að vera við- statt heimssýninguna í New York 1939, mestu sýn- ingu þessarrar aldar. í Bandaríkjunum er allt meira, betra og dýrara en á nokkrum öðrum stað í heiminum. Og það verður heims- sýningin í New York 1939 einnig — bæði betri, mikilfeng- legri og dýrari en nokkur önnur heimssýning, sem haldin hefir verið. Það, sem er aðalhugsjón þessarrar sýningar, er að sýna heim framtíðarinnar. Hún hirðir lítið um fortíðina eða nú- tíðina — það er þróunin, sem menn hafa áhuga á — hvernig mennirnir á komandi tímum munu hagnýta sér efnin, vís- indin, vélarnar, samgöngutækin, náttúruauðæfin, fæðuteg- undirnar o. s. frv. Rafmagnið verður áreiðanlega mikið notað. Kannske verður hægt að þrýsta á hnapp í vasa sínum, hvar sem maður er staddur, og fá í sömu andrá ultra-stuttbylgju- samband við einhvern, sem mann langar til að tala við í gegnum vasa-talsímann, sem maður getur hæglega haldið á í lófanum. I hinni hendinni gæti maður svo haldið á fjar- sýnis-áhaldi á stærð við venjulega púðurdós og séð þann, sem maður er að tala við. En við skulum halda okkur við sýninguna. Ég byrja á að kynna ykkur fyrir vini mínum, Jasper Svendsen. Ég hefi farið oft og mörgum sinnum um sýningarstaðina með Jasper Svendsen. — Jasper Svendsen er nálægt fer- tugu. Þriggja ára gamall kom hann með föður sínum til Ameríku. Afi hans var finnskur, amma hans norsk, faðir hans danskur og móðir hans sænsk, svo að Jasper skoðar sig ósvikinn Skandinava, og það er hann líka. Hann hefir blá augu, hörgult hár og er rúmlega 2 metrar að hæð. — Jasper hefir, eins og flestir Skandinava-Ameríkumenn, gegnt ýmsum störf- um. Þegar hann hafði lokið við skólann, fór hann í háskóla. En lífið brosti ekki við honum. Hann fékk ekkert að gera, svo að hann fór í sveitavinnu. Því næst reyndi hann fyrir sér eins og Knut Hamsun sem vagn- stjóri í Chicago, og síðar fetaði hann í fótspor Jack London og fór til Alaska, þar sem hann gerðist fiskimaður. Hann hefir líka verið skógarhöggsmaður í British Columbia og auglýsingastjóri blaðs í Settle. Jasper er víðlesinn maður og talar svo vel ensku, að það er unun á að heyra. Það er háskólamenntuninni að þakka. Eftir heimsstyrjöldina gekk hann í þjónustu stjórn- arerindrekanna. Hann hefir aldrei viljað tala um, hvaða starf hann hafði þar. — Þar sem við erum báðir Skandin- „Trylon" og „perisphere", miðbyggingar heimssýning-arinnar. „Trylon“ er 210 m. hár, þrístrendur pyramídi, en ,,perisphere“ 60 m. há kúla, og í henni er borg framtíðarinnar ,,Democra-City“.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.