Vikan - 26.10.1939, Side 4
4
V í K A N
Nr. 43, 1939
Flosi þakkaði honum (þ. e. Hrafnkeli á
Hrafnkelsstöðum) ok fór í braut ok á
Bersastaði (í Fljótsdal). ... Þaðan (þ. e.
frá Bersastöðum) fóru þeir á Valþjófsstaði
(í Fljótsdal).... Fóru þeir þá í braut (þ. e.
frá Valþjófsstað) ok fengu þar enga lið-
veizlu. Fóru þeir fyrir neðan Lagarfljót
ok um heiði til Njarðvíkr. . . . Flosi þakk-
aði þeim vel (þ. e. Njarðvíkurbræðrum)
ok fór þaðan til Vápnafjarðar, ok kom til
Hofs......Síðan fór Flosi (þ. e. frá Hofi)
til Krossavíkr (í Vopnafirði).....Þaðan
(þ. e. frá Krossavík) fór Flosi norður til
Vápnafjarðar ok upp í Fljótsdalshérað ok
gisti at Hólmsteins Spak-Bersasonar (þ. e.
á Bessastöðum í Fljótsdal) .... Flosi fór
upp Fljótsdal ok þaðan suðr á fjall um
Öxarhraun ok ofan Sviðinhornadal ok út
með Álptafirði fyrir vestan, ok lauk eigi
fyrr en hann kom til Þváttár, til Halls
mágs síns. Þar var Flosi hálfan mánuð ok
menn hans ok hvílðu sik.“ (Njála, útgáfa
Finns Jónssonar 1908).
Það, sem fyrst verður augljóst við at-
hugun á ferðasögu Flosa er þetta, að þegar
hann kemur austur fyrir Breiðdalsheiði, er
alveg hætt að greina frá dagleiðum, og
náttstaðir aðeins nefndir hjá höfðingjun-
um, er hann heimsótti. Á leiðinni frá Svína-
felh og austur í Heydali er þetta aftur á
móti nákvæmlega tilfært hvort tveggja, og
hefir Flosi og menn hans verið í 9 daga að
fara þá leið, og má af því glöggt marka,
hve hratt þeir hafa farið yfir, enda eru
flestar dagleiðirnar alveg nægilega langar
fyrir gangandi menn í skammdeginu. Frá
Heydölum að Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal
eru 3 dagleiðir á þessum tíma árs. Sú
fyrsta frá Heydölum og upp undir Breið-
dalsheiðina, 25—28 km., önnur að Arnalds-
stöðum í Skriðdal, og sú þriðja þaðan að
Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal, yfir Buðl-
ungavallaheiði á Hallormsstaðahálsi.
Milh Valþjófsstaðar og Njarðvíkur eru
einnig 3 dagleiðir. Á þeirri leið hafa þeir
Flosi gist á tveimur bæjum, öðrum í Eyða-
þinghánni, t. d. Eyvindará, hinum í Hjalta-
staðaþinghánni, t. d. Hjaltastað eða Kó-
reksstöðum.
Þá er sömuleiðis 3ja daga ferð úr Njarð-
vík að Hofi í Vopnafirði — yfir Hróars-
tungu og Smjörvatnsheiði — og er sú síð-
asta löng og erfið yfir Smjörvatnsheiði,
sem talin er þingmannaleið, 37 Vá km. Lík-
legastir gistingarstaðir á þessari leið, eru
Kóreksstaðir og Fossvellir í Jökulsárhlíð.
Er þaðan langt upp á heiðina.
Frá Krossavík í Vopnafirði að Bessa-
stöðum í Fljótsdal eru varla minna en 4
dagleiðir, hvort sem farið er yfir Smjör-
vatnsheiði og Hróarstungu, og svo inn
Fellin inn í Fljótsdalinn, eða Tungu- og
Jökuldalsheiði, t. d. að Hákonarstöðum á
Jökuldal, og þaðan yfir Fljótsheiði að
Bessastöðum. Á þessum þremur löngu
leiðum, er nú hafa verið tilfærðar, eru
hvergi tilfærðar dagleiðir, og gistingar-
staðir, nema aðeins hjá höfðingjunum, sem
Flosi leitaði til — og þar með algjörlega
Framh. á bls. 20.
hðsbónina frá Svínafelli og norður í Vopna-
fjörð gefur glögga hugmynd um þetta.
Njála skýrir þannig frá þessu ferðalagi.
[Hér er sleppt samtali Flosa við höfðingj-
ana að mestu. Það, sem er innan sviga, er
sett til skýringar:]
„Nú líðr vetrinn, þar til er lokit var
jólum. Flosi mælti þá til sinna manna. . . .
Skulu vér nú fara í liðsbón . . . Síðan
bjogguz þeir heiman allir. Flosi var í
leistabrókum, því at hann ætlaði að ganga.
Vissi hann ok, at þá myndi öðrum minna
fyrir þykkja at ganga. Þeir fóru heiman
(þ. e. frá Svínafelli) á Knappavöll, en
annat kveld til Breiðár, en frá Breiðá til
Kálfafells, þaðan í Bjarnarnes í Horna-
fjörð, þaðan til Stafafells í Lón, en þá til
Þváttar til Síðu-Halls.......Flosi dvalðiz
þar þrjár nætr ok hvíldi sik ok fór þaðan
(þ. e. frá Þváttá) austr til Geitahellna ok
svá til Beruf jarðar. .. . Þaðan fóru þeir
austr til Breiðdals í Heydali. . . . Flosi fór
þaðan (þ. e. frá Heydölum) Breiðdalsheiði
ok svá á Hrafnkelsstaði (í Fljótsdal) . . ..
- sýna leið Flosa eins og hann er láttinn fara í Njálu.
sýna þá leið, er kunnugur maður myndi láta Flosa fara.