Vikan


Vikan - 26.10.1939, Blaðsíða 19

Vikan - 26.10.1939, Blaðsíða 19
Nr. 43, 1939 VIK A N 19 Ijrir Barnasaga Einu sinni um haustið 1461 gekk fátæk- ur bóndadrengur hugsandi eftir veg- inum, sem lá til Montitz-les-Tours- kastalans í Frakklandi. Hann nam staðar öðru hvoru og þurrkaði svitann af andliti sér. Hann hélt á stórum, þungum poka í hendinni. Hann var að koma að kastalan- um, sem hinn nýkrýndi konungur, Lúðvíg II. dvaldi í um þessar mundir, þegar hann mætti feitum, einkennisklæddum aðals- manni. Drengurinn nam staðar og tók kurteislega ofan. Hann kannaðist við að- alsmanninn. Þeir voru í rauninni nágrann- ar. Faðir drengsins, sem var garðyrkju- maður, hafði nefnilega á leigu nokkrar jarðir, sem voru rétt hjá aðalsmannssetr- inu. Feiti aðalsmaðurinn stöðvaði hest sinn. — Ert þú ekki sonur Antons garðyrkju- manns? spurði hann. — Jú, yðar hátign, svaraði drengurinn feimnislega. — Ég heiti Páll. — Og hvert ert þú að fara? Til kastal- ans? — Já, yðar hátign. Faðir minn sendi mig með gjöf til kóngsins. Aðalsmaðurinn fór að hlæja. — Gjöf til kóngsins, endurtók hann háðslega. •— Hvað getur faðir þinn gefið konungi Frakklands? Drengurinn roðnaði. — Það — það er rófa, stamaði hann. — Stór rófa. Aðalsmaðurinn ætlaði að springa af hlátri. — Rófa handa kónginum? hrópaði hann. — Ha-ha. Stór rófa. Honum þykir áreiðanlega gaman að því. Ha-ha! Hann sló skellihlæjandi í hestinn og hélt leiðar sinnar um leið og hann muldraði eitt- hvað um, hvað bændur og garðyrkjumenn væru heimskir. Páll nam staðar og horfði á eftir honum. — Já, hæðstu bara að honum, tautaði hann. — Aðalsmaðurinn veit ekki, að þegar kóngurinn var krónprins heimsótti hann föður minn oft og hafði mikinn áhuga á garðrækt. Hann hefir heldur enga hugmynd um, að þetta er ekki venju- leg rófa. Þetta er blátt áfram stærsta róf- an í öllu Frakklandi. Faðir minn sendir kónginum hana sem dyggur þegn. Þegar Páll hafði létt þessu af hjarta sínu, tók hann upp pokann og hélt leiðar sinnar. Hann kom til kastalans, þar sem allir þekktu hann, því að faðir hans seldi þangað grænmeti. Hann var svo heppinn að hitta lífvörð konungsins, sem vissi, að konungurinn þekkti föður drengsins, og hann lofaði drengnum að leiða hann fyrir konunginn, og það efndi hann. Lúðvíg II., sem var fölleitur, grannvax- inn, dökkklæddur maður, sat við skrif- borð sitt, þegar Páll gekk inn. Hann leit upp úr skjölum sínum. — Þú ert sonur Antons, sagði hann. — Hvert er erindi þitt? Ég man eftir föður þínum. Hann er duglegur maður. — Faðir minn sendi mig með þessa gjöf, svaraði drengurinn og hneigði sig djúpt. — Hún er úr garðinum hans — stærsta rófan, sem vaxið hefir í Frakklandi. Hann leysti frá pokanum og tók upp rófuna, sem var sú stærsta rófa, sem kóng- urinn hafði nokkurn tíma séð. — Nei, sko! hrópaði kóngurinn. — Aldrei hefi ég séð annað eins. Hann brosti. — Þetta var fallega gert af Antoni, tautaði hann. — Annars gefur enginn mér gjafir. Ég verð meira að segja að berjast við að ná eignum krúnunnar. Hart á móti hörðu. Krókur á móti bragði. En þeir skulu verða að láta undan —, þó að ég verði að loka þá inni í járnbúri. Hann varð hugsi. Það fór hrollur um Pál, þegar hann sá hinn kuldalega glampa i augum hans. Loksins varð kóngurinn blíðari á svipinn. — Þessi gjöf er góð viðvörun, sagði hann ánægjulega. — Eins og faðir þinn hefir búið til stærstu rófuna mun ég búa til stærsta Frakkland. Það er sagt, að ég sé nízkur, en hérna, drengur minn, eru laun handa föður þínum. Eitthvað fyrir eitthvað. Hann hló lágt og opnaði járnkistil, sem stóð á skrifborðinu. — Tíu gullpeningar, hélt hann áfram um leið og hann taldi pening- ana. — Færðu föður þínum þá. Páll þakkaði fyrir og flýtti sér í burtu. Hon- um leið hálf illa. Á heimleiðinni hugs- aði hann um, hvað faðir sinn yrði glaður við að fá alla þessa peninga. Allt í einu heyrði hann hófadyn, nam staðar og tók ofan. Þetta var feiti aðals- maðurinn. — Jæja, sonur sæll, sagði hann. — Hvað fékkstu þá fyrir rófuna? — Tíu gullpeninga, svaraði Páll og sýndi aðalsmanninum þá. — Tíu gullpeninga fyrir eina rófu? stamaði hann. — Er kóngurinn svona gjafmildur. — Að minnsta kosti við mig, svaraði Páll. Aðalsmaðurinn sneri við til kastalans og gerði boð fyrir kónginn. Hann hélt, að sér hefði dottið snjallræði í hug. Hann ætlaði að gefa kónginum hestinn sinn. Úr því að hann gaf tíu gullpeninga fyrir eina rófu, hlaut hann að gefa miklu meira fyrir hest. Þegar kóngurinn kom bað aðalsmaður- inn hann að þiggja af sér smágjöf. Lúðvíg konungur skoðaði hestinn úr glugga sín- um. Síðan horfði hann á aðalsmanninn og sagði: — Ég þigg gjöfina, en eitthvað fyrir eitthvað. Sko hér er stærsta rófan, sem til er í Frakklandi. Þér megið eiga hana. Aðalsmaðurinn varð að fara heim með rófuna. — Páll skildi aldrei, hvers vegna aðals- maðurinn horfði svona reiðilega á hann í hvert skipti, sem hann mætti honum, og flýtti sér í burtu. Ameríkumaður einn hefir tekið sér einkaleyfi á hentugri uppfinningu, sem hlýtur að fá áhangendur á meðal margra verzlunarmanna og skrifstofumanna, sem vilja hafa hreina samvizku þegar þeir „verða að vinna eftirvinnu“. Uppfinningin er grammófónn, sem er í sambandi við síma og getur svarað. Verzlunarmaðurinn talar t. d. inn á plötuna: — Já, mér þykir það leiðinlegt, elskan mín, en því miður verð ég að vinna lengi í kvöld. — Vertu sæl, elskan mín! * I bænum Columbus í Montana, U. S. A., fær hver maður, sem tekur ekki ofan fyrir borgarstjóranum á götu, sekt fyrir ókurt- eisi. Maður einn, sem hafði setið í mörg ár í fangelsi í Chicago, strauk þaðan einn góð- an veðurdag á ákaflega einfaldan hátt: Hann tók sóp dyravarðarins og tók að sópa. Varðmaðurinn hélt, að þetta væri daglaunamaður og lét hann fara leiðar sinnar.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.