Vikan - 01.08.1940, Page 6
6
VIKAN, nr. 31, 1940
in væri til sölu, og að verðið væri 7000
dollarar. Sama daginn fór hann aftur til
Hills Ranch, eftirvæntingarfullur eins og
skóladrengur og fastákveðinn í að kaupa
jörðina.
,,Ég hefi heyrt, að þér hafið boðið Chau-
vet jörðina fyrir 7000 dollara,“ sagði Jack
við eigandann, herra Hill.
,,Já,“ svaraði Hill, „það er verðið, sem
ég setti upp fyrir tíu árum.“
,,Ég vil gjarnan kaupa jörðina,“ sagði
Jack.
„Við skulum ekki fara að neinu óðslega,“
sagði Hill. „Farið nú heldur heim og hugs-
ið málið í tvo daga.“
Þegar Jack var farinn, sagði Hill konu
sinni, að hann hefði krafizt 7000 dollara
af Chauvet, af því að Chauvet hefði ætlað
að nota vatnsréttindin, en af því að Jack
ætlaði sér að yrkja jörðina, gæti hann ekki
með sanngirrii krafizt meira .en 5000 doll-
ara af honum. Daginn eftir kom Jack
aftur. Ráðagerðimar viðvíkjandi búgarð-
inum höfðu haldið vöku fyrir honum um
nóttina.
„Ég vildi gjaman tala við yður um verð-
ið“ _ byrjaði Hill.
Jack spratt upp og hrópaði reiður: „Það
getið þér ekki verið þekktur fyrir! Ég læt
ekki bjóða mér slíkt! Þér getið ekki hækk-
að verðið! Það gera sér allir að skyldu
að okra á mér. Sjö þúsund er það, sem
þér sjálfur settuð upp og ég er fús til að
borga það.“
Hill beið þangað til Jack var búinn að
rausa út og sagði svo rólega: „Gott og
vel, herra London, þér skuluð þá fá hann
fyrir það verð, sem þér viljið.“
Mörgum ámm seinna, þegar Hill og
Jack vom orðnir góðir vinir, sagði Hill
honum hvemig hann hefði snuðað sjálfan
sig um 2000 dollara. Jack hló hjartanlega
og sagði, að það ætti að kenna sér að hafa
stjórn á sjálfum sér, en reyndin varð
önnur.
Jack skrifaði Brett og bað hann um
7000 dollara til að kaupa búgarðinn, og
þó að Brett væri mjög óánægður með, að
Jack færi að gerast jarðeigandi, sendi
hann þó peningana sem fyrirframgreiðslu
á ágóðanum af „Ulf Larsen“. Svo réði
Jack til sín vinnumann, keypti búfé og
verkfæri og komst að raun um, þegar hann
hafði keypt, það sem hann þurfti, að hann
átti ekki einn dollar eftir, og að hann gat
ekki átt von á að fá peninga frá „Mac-
millan“ um langt skeið.
Þó að Jack fengi meira en eina milljón
dollara fyrir ritstörf sín, tókst honum
aldrei alla sína æfi að ná því takmarki að
eiga raunvemlega peninga, þegar þeir bár-
ust honum 1 hendur. Hann var alltaf bú-
inn að nota þá fyrir fram og varð svo að
brjóta heilann um, hvar hann ætti að fá
peninga til daglegra þarfa.
Haustið 1905 var Jack London í fyrir-
lestrarferð, sem öll Ameríka fylgdist með
af miklum áhuga. Laugardaginn átjánda
nóvember var hann staddur í Chicago,
þegar hann fékk skeyti um, að skilnaður
hans við Bessie væri kominn í kring. Hann
sendi skeyti til ungfrú Kittredge, sem var
stödd í Iowa, og sagði henni að kom strax,
svo að þau gætu gift sig. Hún kom til
Chigago á sunnudag klukkan fimm, en
Jack hafði ekkert giftingarvottorð. Bæjar-
skrifstofunni var auðvitað lokað, og Jack
leigði sér því vagn og ók af stað til að
Jack London tók brosandi öllu hneykslistalinu í
sambandi við giftingu sína og Charmian Kittredge.
leita að einhverjum kunningja, sem gæti
hjálpað honum. Loksins tókst honum að
ná í mann, sem þekkti einn af bæjarstjórn-
arfulltrúunum. Bæjarfulltrúinn sagði, að
hann skyldi glaður gera allt, sem hann
gæti, til að hjálpa Jack London, en hvers
vegna lægi svona mikið á? Því gæti hann
ekki beðið til morguns? Jack neitaði að
bíða, og honum tókst loks að fá bæjar-
stjómarfulltrúann til að setjast upp í
vagninn og aka með sér til lögmanns, sem
þeir svo dróu fram úr rúminu, og óku með
til ráðhússins, og þar voru þau Charmian
og Jack gefin saman í heilagt hjónaband.
Fram að þessu höfðu menn haldið, að
Bessie og Jack hefðu skilið, af því að þau
hefðu orðið ósátt og hefðu því ekki getað
búið saman lengur. En nú varð mönnum
1 jóst, að hann hafði lagt heimili sitt í rústir
vegna annarrar konu. Blöðin, sem öll höfðu
verið honum vingjarnleg á laugardaginn,
komu út á mánudaginn með stórum fyrir-
sögnum um þetta síðasta hneyksli Jacks.
En ekki nóg með það. Á þriðjudagsmorgun
viss öll þjóðin, að hjónaband Jacks London
var ólöglegt, af því að nýju hjónabands-
lögin í Illinios voru þannig, að ekkert
hjónaband var löglegt, nema að liðið væri
minnst eitt ár frá því að skilnaður við
fyrri eiginmann eða konu gekk í gildi.
Þegar blaðamennirnir komu til að tala við
Jack, sagði hann: „Ef það er nauðsynlegt,
skal ég láta gifta mig í hverju einasta
ríki í Bandaríkjunum, eins fljótt og ég
get.“
Hefði hann beðið rólegur í tvo mánuði
hefði hann komizt hjá öllum vandræðum.
I stað þess var nú prédikað gegn honum í
kirkjunum og bækur hans bannaðar á opin-
berum bókasöfnum í sumum bæjum. Mörg
kvenfélög neyddust til að aflýsa fyrirlestr-
um hans, og Charmian var ásökuð fyrir
að hafa eyðilagt hjónaband hans og
Bessiear.
Blöðin hrópuðu: „Þannig er þá jafnað-
arstefnan! Hleypur frá konu og börnum
. .. Hampar siðleysinu . . . leiðir til full-
komins glundroða.“ Það dugði ekki, þó að
vinir hans mótmæltu með því að segja:
„Það er ekki hægt að kenna jafnaðar-
stefnunni um hverflyndi Jacks London!
Jafnaðarstefnan fordæmir alveg eins slíka
framkomu og auðvaldsstefnan." Félagar
Jacks héldu því fram í fullri alvöru, að
hann hefði seinkað hinni socialistisku
byltingu um minnst fimm ár. En Jack
svaraði brosandi: „Þvert á móti, ég held,
að ég hafi flýtt fyrir henni um minnst
fimm mínútur.“
Hver var nú ástæðan fyrir þessari und-
arlegu óþolinmæði? Ein ástæðan hefir
vafalaust verið sú, að honum hefir fund-
izt þetta viðeigandi endir á hinu róman-
tíska tilhugalífi þeirra. Auk þess var hann
þannig gerður, að hann gaf sér aldrei tíma
til að hugsa um, hvernig framkoma hans
yrði túlkuð, og enda svo mikill Iri, að hann
lét sig slíkt engu skipta. Að lokum hefir
þessi skyndigifting verið tilraun til að
friða samvizkuna, vegna þess ranglætis,
sem hann hafði beitt Bessie og þá um leið
allar eiginkonur. ’
I veizlu einni í New York hafði gestunum
verið uppálagt að koma þannig klæddir,
að lesa mætti út úr því titilinn á einhverri
frægri bók. Eldri kona fékk einróma
fyrstu verðlaun. Hún hafði fest stóra mynd
af kanadísku fimmburunum þvert yfir
kjólinn sinn. Bókin, sem það átti að tákna,
var hin fræga bók Sinclair Lewis „It can’t
happen here“. („Það getur ekki komið
fyrir hérna“).
*
I New York hefir, að því er menn bezt
vita, verið búinn til sá stærsti þjóðfáni,
sem menn þekkja. Þessi „Stars and
Stripes" kostaði 9000 krónur og var um
það bil 9300 fermetrar að stærð.
*
Nýlega sýndi lífeðlisfræðingurinn
Dietrich Bodenstein í Stanfordháskólanum
í Californíu lifandi fiðrildi, sem var að
hálfu leyti fullvaxið og að hálfu leyti púpa.
Á vissu þroskastigi púpunnar hafði hann,
með uppskurði, lokað fyrir „þroskavökva"
þann, sem breytir púpunni í fiðrildi og
kemur frá heilanum. Afleiðingin varð sú,
að höfuð, augu og frampartur, þar sem
vængirnir vaxa út úr, náðu fullum þroska,
en bakhlutinn varð óbreyttur á púpustig-
inu.