Vikan - 13.02.1941, Síða 2
2
VIKAN, nr. 7, 1941
Pósturinn. rsi
Til útsölumanna Vikunnar.
6. tbl. blaðsins, með mynd af Þor-
steini ö. Stephensen á forsíðu, seld-
ist upp á svipstundu í Reykjavík, svo
að það er ekki til á afgreiðslu blaðs-
ins. Margt manna hefir ekki getað
fengið það og eftirspumin er mikil
og biðjum vér því alla umboðsmenn,
sem kynnu að hafa hjá sér óseld ein-
tök af 6. tbl. að senda afgreiðslunni
þau eins fljótt og unnt er.
Gissur og Rasmína.
Vegna óviðráðanlegra orsaka getur
myndaflokkurinn um Gissur og Ras-
minu ekki birtzt í þessu blaði. Mynd-
ir þessar eru teiknaðar í Ameriku og
koma þaðan. Skipaferðir eru strjál-
ar og svo mun sending til vor hafa
farið forgörðum með skipi að vestan.
En áskrifendur blaðsins mega þó vera
vissir um að sjá Gissur, þennan vin-
sæla og skemmtilega kunningja allra
lesenda Vikunnar, innan skamms aft-
ur, og að öllum líkindum í næsta
blaði.
Efni bladsins m. a.:
Einmana konur, merkileg grein
eftir ameríska konu.
Liðnar stundir. Smásaga eftir
Aðalheiði Jónsdóttur.
Frægar konur. Xanthippe og
Bertha von Suttner.
Bréfið. Smásaga eftir Ingólf
Kristjánsson frá Hausthús-
um.
Hver sökkti skipinu? Ný fram-
haldssaga.
Vippasaga. — Fréttanayndir.
AUt í gamni. — Krossgáta
o. m. m. fleira.
Faðir hans
afneitar honum.
Dr. Samuel C. May, prófessor við
Berkeleyskólann, hefir opinberlega
afneitað syni sínum og gert hann
arflausan, vegna þess að hann er
yfirlýstur kommúnisti og starfar
mjög mikið í þágu þeirra. Sonurinn
sést hér á myndinni. Hann heitir
Kenneth May og er aðstoðarkennari
við háskóla í Kalifomíu.
Fjórða barnið.
Það þykir ekki miklum tíðindum
sæta, þótt konur hversdagslegra
manna eignist fjórða barnið. En það
er fylgst með hverju fótmáli frægra
manna. Þessi mynd er af konu Lind-
bergh, frægasta flugkappa veraldar-
innar. Hún átti nýlega fyrstu dóttur-
ina á spítala í New York og er það
fjórða bamið þeirra. Kona Lind-
berghs er dóttir Dwight Morrow,
fyrrverandi sendiherra Bandaríkj-
anna í Mexico og giftist flugmann-
inum árið 1929.
V i k a n
HEIMILISBLAÐ
Ritstjóm ogafgreiðsla: Kirkju-
stræti4. Sími 5004. Pósthólf 365.
Verð: kr. 2,40 á mánuði,
0,60 í lausasölu.
Auglýsingum í Vikuna veitt
móttaka í skrifstofu Steindórs-
prents h.f., Kirkjustræti 4.
Prentsm.: Steindórsprent h.f.
Frægur andstæðingur
nazista.
Lion Feuchtwanger, sem þessi
mynd er af, er heimsfrægur, þýzkur
rithöfundur. Hann er Gyðingur og
svarinn andstæðingur nazista, enda
brenndu þeir bækur hans. 1 Frakk-
landi hélt hann áfram baráttu sinni
gegn Hitler, en myndin er tekin af
honum í New York, éftir að honum
hafði tekizt að flýja á æfintýralegan
hátt úr frönskum fangabúðum. Það
er sagt, að amerískur vinur hans
hafi hjálpað honum til þess að kom-
ast undan og frá Lissabon komst
hann á amerísku skipi til Bandarikj-
anna.
Nýtt kort af Reykjavík,
utan Hringbrautar, er nýútkomið. Þar eru tilgreindir
þekktir staðir og hverfi í bæjarlandinu, utan Hringbraut-
ar, byggðir og óbyggðir, og ennfremur gatnakerfi með
götunöfnum í vestur, austur og suður.
Þeir áskrifendur Vikunnar, sem skuldtausir eru
við blaðið 1. febrúar s. 1. fá uppdrátt þennan
ókeypis ef þeir óska.
Afgreiðsla VEKUNNAK,
Kirkjustræti 4.
i
't
Varnings og starfsskrá
s___________ _________________
Frímerki.
Kaupi notuð íslenzk frímerki.
Sigurður Kjartansson, Lauga-
vegi 41. Sími 3830.
Notuff íslenzk frímerki kaupi
ég ávallt hæsta verði. Duglegir
umboðsmenn óskast um land
allt. Há ómakslaun. Sig. Helga-
son, frím.kaupm. Pósthólf 121,
Reykjavík.
Saumastofur.
TAU OG TÖLUK
Lækjargötu 4. Sími 4557.
Stimplar og signet.
Gúmmístimplar eru búnir til
með litlum fyrirvara. Sömu-
leiðis signet og dagsetningar-
stimplar. Steindórsprent h.f.
Kirkjustræti 4, Reykjavík.
Signeta-gröft og ýmiskonar
annan leturgröft annast Bjöm
Halldórsson, Laufásveg 47,
Reykjavík.
Bækur - Blöð - Tímarit
Vikan er heimilisblaðið yðar.
Gerist áskrifandi og mun blað-
ið þá verða sent yður heim á
hverjum fimmtudegi. Afgreiðsl-
an er í Kirkjustræti 4, Reykja-
vik. Simi 5004. Pósthólf 365.
Vasa-orðabækur: Islenzk-ensk
og ensk-íslenzk fást í öllum
bókaverzlunum. Hver sá, sem
þessar bækur hefir um hönd,
getur gert sig skiljanlegan við
Englendinga, þótt hann kunni
ekki ensku. Verðkr. 3,00 og 4,00.
Borð - A Imanök
fyrir árið 1941 selur
Steindórsprent
Kirkjustrœti 4.
Tilgangur félagsins er aff
gefa út, eftir þvi sem
efni leyfa, rit, er heitir:
Landnám Ingólfs,
safn til sögu þess.
Félagið hefir þegar gef-
ið út III bindi í 10 heft-
um. Þessi rit fá meðlimir
ókeypis. Ennfremur hefir
félagið gefið út Þætti úr
sögu Reykjavíkur. Bók
þessi fæst hjá bóksölum.
Þeir, sem gerast viljá
meðlimir, snúi sér til af-
greiðslunnar: Steindórs-
prent h.f., Kirkjustræti 4.
Reykjavík.
Félagið INGÓLFUK
Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4, sími 5004, pósthólf 365.