Vikan


Vikan - 13.02.1941, Blaðsíða 10

Vikan - 13.02.1941, Blaðsíða 10
10 VIKAN, nr. 7, 1941 Heimilið Matseðillinn. Flaiielsgrautur. 1% líter mjólk. 100 gr. smjör. 200 gr. hveiti. Hveitið er hrært út í nokkuru af mjólkinni og búinn til þykkur jafningur; afgangurinn af mjólk- inni er soðinn og jafningurinn hrærður út í hana smátt og smátt og stöðugt hrært í, þar til sýður. Þá er smjörið látið saman við og soðið í 3—5 mínútur. Það má vel hafa vatn í stað mjólkur, en nota verður þá meira smjör. Framreiddur með kanel og sykri. Saftblanda eða mjólk höfð með. • Kjötrönd. 250 gr. kjöt, 1 egg, 15 gr. hveiti, 10 gr. karftöflumjöl, % líter köld mjólk, salt, pipar. Kjötið er hakkað 9 sinnum. Deigið má vera lint, þegar það er látið í mótið. Vel smurt hring- form er fyllt með deiginu (% af mótinu) og soð- ið í vatnsbaði í 45 mínútur. Þegar kjötröndin er framreidd, er henni hvolft á kringlótt fat. Innan í hringinn er Játinn græn- metisjafningur eða kartöflusalat. Hvítkál í jafningi. 1 hvítkálshöfuð, 25 gr. smjör, 25 gr. hveiti, 3 dl. mjólk, hvítur pipar á hnífsoddi. Yztu blöðin eru tekin af kálhöfðinu og það síð- an skorið í fjóra hluta. Stilkurirm er skorinn burtu. Kálið er látið yfir eld í sjóðandi saltvatni og soðið í 30 mínútur. Þá er það tekið upp og skorið. Hveitið er þynnt út með mjólkinni og blandað saman við kálið ásamt smjörinu; suðan látin koma upp. Pipar eftir smekk. (Helga Thorlacius: Matreiðslubók. TJtgefandi: H.f. Deiftur). Húsráð. Ef erfitt er að fá bamið til að drekka mjólk- ina sína, látið þá hunang eða sýróp í glasið. Eftirmiðdagskjóll. Þessi eftirmiðdagskjóll er frekar látlaus, en þó mjög smekklegur og er úr fjólubláu flaueli. Brúnn kasmírkjóll. Hér er brúnn kasmírkjóll með sjali úr sama efni. Blússan er hneppt að framan með brúnum beintölum og rykkt í mittið. Mjótt belti, bundið í slaufu að framan. Langar ermar með uppslagi. Frægar konur: Xanthippe. Xanthippe hefir löngum verið tekin sem dæmi um hina reiðigjömu, skilningslausu og skömm-- óttu eiginkonu. En það mun mikill vafi, að hún hafi átt þetta skilið. Hún var, eins og kunnugt er, gift gríska spekingnum Sókrates, og það er ekki ósennilegt að hrifning manna af heimspek- ingnum mikla hafi orðið þess valdandi, að þeim sást yfir, að það var engin sælustaða að vera kona hans. Sagan segir í rauninni fátt um Xan- thippe. Þó vita menn, að eitt sinn, er hún hafði haldið þmmandi skammaræðu yfir manni sínum, hvolfdi hún úr fullri vatnsfötu yfir höfuð honum. Sókrates var hinn rólegasti og sagði: „Ég vissi, að eftir þmmuveðri kemur regn.“ Þvi ber auð- vitað ’ekki að neita, að þetta tiltæki hennar var nokkuð ofsafengið. En hins vegar er hægt að skilja óþolinmæði hennar gagnvart manni þess- um, því að hann vann sér ekkert inn með starfi sínu og auk þess höfðu margir samtíðarmenn hans hann að háði og spotti. Xanthippe mim litla hugmynd hafa haft um mikilleik manns síns, en hún var trygg honum og þegar hann var dæmdur til dauða, gerði hún allt sem hún gat til þess að bjarga honum. En þegar hún kom í heimsókn til hans í fangelsið með böm þeirra, tók hann ekki sérlega vel á móti þeim. Sókrates var í djúpri samræðu við vin sinn og ekki í skapi til að hlusta á harmagrát hennar og bað fangavörðinn að láta hana fara, sem hann og gerði. Bertha von Suttner. 4 Bertha von Suttner var fædd 1843 í Prag. 1876 giftist hún von Suttner fríherra og hóf skömmu síðar rithöfundarstarfsemi. Sögur hennar vom mikið lesnar, en þó varð hún einkum fræg fyrir bókina „Niður með vopnin", sem kom út í mörg- um útgáfum og var þýdd á mörg mál. Hún vann mikið starf í þágu friðarhugsjónarinnar og ferð- aðist víða um Evrópu tli þess að tala máli frið- arins. 1905 fékk hún friðarverðlaun Nobels. SKRÍTLUR. Það var barið harkalega að dymm hjá stúlk- unni, sem var að æfa sig undir næsta söngtíma. TJti stóð lögregluþjónn. „Hvar er maðurinn, sem verið var að misþyrma hérna?" „Ha, hvað eigið þér við?“ „Engar vífilengjur! Ég veit, að það hefir eitt- hvað hræðilegt farið fram hér, og ég ætla að komast til botns í því. Það hringdi maður á lög- reglustöðina og sagði, að það væri verið að mis- þyrma hræðilega manni að nafni Kaldalóns hér í húsinu, og ég fer ekki fyrr en ég hefi náð í sökudólginn." o Yngstu bömin áttu að læra utan að ýmsar spumingar úr kristinfræði. Fyrsta spummgin var: „Hver skapaði þig?“ og svarið: „Guð.“ Önn- ur spumingin var: „Hver endurleysti þig?“ o. s. frv. En við eitt tækifærið var drengurinn, sem átti að svara fyrstu spumingunni, ekki í sæti sínu, og kennarinn spurði því annan dreng: „Hver skapaði þig?" Drengurinn hikaði eitt augnablik og hvísl- aði svo að kennaranum: „Drengurinn, sem guð skapaði þurfti að skreppa snöggvast út í port.“ o Stúlkan (við píanóið): „Mér er sagt, að þér hafið vit á hljómlist." Ókurteisi maðurinn: „Það gerir ekkert til. Haldið þér áfram samt."

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.