Vikan


Vikan - 13.03.1941, Page 10

Vikan - 13.03.1941, Page 10
10 VIKAN, nr. 11, 1941 Heimilið Matseðillinn. Bollumjólk. l/2 1. mjólk, 1 teskeið salt. 1 boll- urnar: 40 gr. smjör, 50 gr. hveiti, 1 dl. vatn, 1—2 egg og salt á hnífs- oddi. Smjörið er brætt og hrært saman við hveitið ásamt vatninu og egginu. Hrært þar til það losar sig við skeið og skál. Úr deiginu eru búnar til litl- ar bollur með skeið. Þær eru látnar í sjóðandi vatn og soðnar í 3—4 mín., síðan teknar upp með gataskeið og iagðar á fat þar til mjólkin er framreidd. Þá eru bollumar látnar í skál og sjóðandi mjólk hellt yfir. Kanel og sykur bor- inn með. vatni, sem í hafa verið settar þrjár teskeiðar af hreinsuðum vínsteini. Ef súkkulagi hefir hellzt ofan í hvítan dúk, má ná því burtu með því að strá á blettinn boraxi og vinda hann svo upp úr köldu vatni. Steiktar villiendur. 2 endur, flesk, feiti, salt, 2 dl. jurta- seyði, 2 dl. mjólk, i/2 úl. rjómi, 20 gr. hveiti, 1 teskeið sykur, 1 teskeið ribs- berjahlaup, sósulitur. Endumar em hamflettar, skolaðar vel, lagðar í mjólk, skolaðar síðan í köldu vatni og þerraðar vel með hreinum klút. Því næst em þær spik- þræddar með fleskinu, fylltar með hráum kart- öflum, brúnaðar vel í potti og salti stráð yfir. Síðan er mjólkinni og jurtaseyðinu helit. í pott- inn og soðið með öndunum í 1% klst. Soðið er síað og jafnað með hveitinu og rjómanum, sykur og sósulitur og ribsberjahlaup er notað eftir smekk. Áður en endumar eru framreiddar, em þær skomar sundur. Brúnaðar kartöflur og salat berist með. Bjargfugla og fleiri villta fugla má matreiða á sama hátt og endur. (Helga Thorlacius: Matreiðslubók. Útgef. Leiftur) Húsráð. Bletti á borðplötum, sem komið hafa eftir heit ílát, könnur eða föt, er gott að nudda með hús- gagnaáburði, vaxi eða camfóruolíu. Þurrkið síðan áburðinn burtu með mjúkum, hreinum klút. Vind- ið svo mjúkan klút úr hreinu, volgu vatni, látið þrjá dropa af ammoníaki drjúpa í hann og nuddið blettinn vandlega með því. Farið svo strax á eftir yfir með hreinum klút, vættum í hús- gagnaáburði eða öðm því um líku. Ef hvít flik hefir gulnað, má fá hana hvíta aftur með því að sjóða hana fimmtán mínútur í Heimakjóll. Þessi skrautlegi heimakjóll (negligee) er úr mjúku, ljósrauðu ullarefni. Axlirnar eru skreytt- ar með samlitum storkfjöðmm (marabou). Meðferð ungbarna Hér birfast tvær myndir af því, hvernig EKKI á að fara með börn á fyrsta ári, sem em aö byrja að fá mátt í hyggvöðva og aðra vöðva líkamans. Þriggja mánaða gamalt bam látið sitja á sléttu gólfi. Af því að hryggvöðvamir eru ekki orðnir nógu stæltir kemur beygja í hrygginn. Ef bömin em iátin sitja í halla, er þeim hætt við að fá hryggskekkju. Þessi mynd er af bami, sem er með hryggskekkju, af því að það hefir mikið verið borið og alltaf á sama handleggnum. Getur nokkra undursamlegri sjón en heilbrigt bam, sem brosir á móti birtu og sól? Sænski myndhöggvarinn Elmquist hefir túlkað þetta dá- samlega í höggmynd sinni „Sólarroð", sem hér birtist mynd af. Faðirinn: ■— Ég heyri, að þú sért alltaf neðst- ur i bekknum þínum. Geturðu ekki fengið annað sæti? Sonurinn: Nei, öll hin sætin em upptekin. Málarinn: — Ég mála ekkert nema andlits- myndir nú orðið. Hvemig finnst yður þessi mynd? Gesturinn. — Jú ... hún er nauðalík ... e ... hver er það?

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.