Vikan


Vikan - 24.04.1941, Blaðsíða 4

Vikan - 24.04.1941, Blaðsíða 4
4 VIKAN, nr. 17, 1941 Saklaust r sta er tæplega fertug. Hún er lát- laus kona í öllu dagfari og lætur lítið yfir sér og á fáar kunningja- konur og enga nána vinkonu. Hún hefir allt sitt líf verið dul og hlédræg og er ró- lynd að eðlisfari og skiptir í rauninni aldrei skapi. Hún er mjög hneigð til sauma og listfeng í þeim sökum og situr við hann- yrðir öllum stundum, þegar hún þarf ekki að vera við heimilisstörf, Ásta giftist á tvítugsaldri. Hún var fædd og uppalin í Jökulfjörðum vestra og kynntist mannsefni sínu á ísafirði, er hún dvaldi þar eipn vetur, þegar hún var átján ára. Hann var þá formaður á litlum mótor- bát, en er nú stýrimaður á allstóru eim- skipi, sem er í millilandasiglingum. Hún hefir aldrei fellt ást til neins annars manns og aldrei með öðrum verið og þeim hjón- unum hefir alla tíð fallið vel. Hinar löngu f jarvistir hans eru eini skugginn á sambúð þeirra. Þau eiga tvö börn, pilt og stúlku. Drengurinn er átján ára, telpan sextán. Meðan börnin voru ung, leiddist henni sjaldan, þó að maðurinn væri mestan hluta ársins að heiman. Þegar hann fékk frí, fóru þau oftast vestur á land og það voru hennar sólskinsdagar, hvernig sem viðr- aði. Eftir að börnin tóku að stálpast og eignast vini og kunningja og vera úti með þeim, þá leiddist henni oftar og meira en áður, jafnvel þótt hún sæti við sauma og stundum greip hana óyndi og einhver órói. Ásta hugsaði mjög vel um heimili sitt og gerði sér far um að vanda á allan hátt uppeldi barna sinna. Sonur hennar var í Menntaskólanum, hafði sérstakt herbergi heima, var mjög bókhneigður og fékk hjá henni tiltölulega mikið af peningum til þess að kaupa fyrir bækur, enda átti hann gott bókasafn. Hann var dagfarsgóður, hlýðinn og nærgætinn við móður sína. Ástu hafði aldréi langað að skemmta sér eða leita dægrastyttingar utan heimil- isins með öðrum en manninum sínum. En þrjú undanfarin ár hafði dálítið sérstakt komið fyrir einu sinni á ári. I fyrsta skipti var það alger tilviljun. Hún ætlaði að heim- sækja gamla konu, sem hún þekkti að vestan, en bjó nú við þröng kjör í Reykja- vík og Ásta hafði hugsað sér að færa henni nokkrar krónur. Hún gerði það oft kvöldið eftir að maður hennar fór á sjóinn. Það var laugardagskvöld og klukkan að ganga níu og hún sagði börnunum, að hún myndi ef til vill sitja svolitla stund hjá henni Jakobínu gömlu og þau höfðu bæði sagt, að hún skyldi ekki neitt flýta sér heifn þeirra vegna. Þau voru alltaf góð við hana, blessaðir krakkarnir. Ásta nam augnablik staðar fyrir framan glugga bókaverzlunar í Austurstræti. Hún gerði það oftast, þegar hún fór niður í bæinn, til þess að geta talað um bækurn- ar við son sinn, er heim kom og stundum œfintýri. SMÁSAGA EFTIR JÖN H. GUÐMUNDSSON. fékk hún honum þá strax peninga til að kaupa bók, sem henni hafði litizt vel á. Nú stóð hún þarna við gluggann. „Sæl vertu,“ var sagt fyrir aftan hana og hún kannaðist vel við málróminn, en hafði aldrei áður heyrt hann í Reykjavík. Henni hlýnaði um hjartaræturnar og hún leit við og brosti. Það var eins og góður ilmur úr grasi að heyra þessa rödd úr heimahögunum. Þetta var sveitungi henn- ar og jafnaldri, nú búsettur útgerðarmað- ur á ísafirði. Hann var viðfeldinn maður og þau höfðu kunnað vel hvort við annað í gamla daga, en ekki verið nánir kunn- ingjar. En nú glöddust þau bæði yfir því að hittast. Hann spurði, hvert hún væri að fara. Er hún hafði sagt honum það, bauðst hann til að fylgja henni þangað. Þau höfðu um margt að tala. Hann beið meðan hún skrapp inn til gömlu konunnar og síðan gengu þau kringum tjörnina og röbbuðu saman. Er þau höfðu gengið nokkurn tíma og virtust hafa óþrjótandi umræðuefni, stakk hann upp á því, að hún kæmi snöggvast með honum á hótelið, þar sem hann bjó, svo að þau gætu fengið sér hressingu. Hún nam staðar á götunni og hugsaði um þetta boð hans. „Þér er það alveg óhætt. Ég geri þér ekkert mein,“ sagði hann og brosti. „Lofarðu því?“ sagði hún og brosti á móti. „Já — og efni það!“ Svo fóru þau upp í herbergið hans og sátu og drukku létt vín til klukkan ellefu. Þá stóðu þau á fætur, tókust í hendur og þökkuðu hvort öðru hjartanlega fyrir skemmtunina og síðan fylgdi hann henni langleiðina heim. Þetta var í fyrsta skipti, sem þau hitt- ust í Reykjavík. Hún sagði engum frá þessu, þótt hún vissi, að hún þyrfti ekki að leyna því, að hún hafði eytt kvöldinu á þennan hátt með gömlum sveitunga. Næsta ár, þegar hann kom í bæinn, hringdi hann til hennar og þau voru sam- an eitt kvöld á hótelherbergi hans og skildu klukkan rúmlega tólf — og allt fór jafn saklaust fram og áður. Nú var það í þriðja sinn, sem þau hitt- ust. Þau höfðu setið í rúman klukkutíma og talað saman og dreypt á víninu, þegar síminn hringdi. Hann tók tólið, sagðist muna eftir þessu, en ekki vita, hvort hann gæti komið. Hann varð hálf-vandræðaleg- ur og tók að skýra henni frá, hvað mað- urinn í símanum hefði viljað. Það væri ungur sonur stórkaupmanns, er hann skipti við. Þeir væru góðir kunningjar. Hann hafði komið vestur og dvalið hjá sér þrjá daga. Nú vildi pilturinn endilega, að þeir skemmtu sér saman í kvöld. Ásta stóð upp og vildi endilega, að hann færi til piltsins. En sveitungi hennar bað hana blessaða að sitjast aftur. Hann færi ekki fet nema hún kæmi líka. Hún hló og sagði, að það gerði hún ekki. Þau sátu enn um stund og töluðu um sitt sameiginlega hugðarmál, sveitina heima. En svo vék maðurinn aftur að piltinum, sem hringdi. Hann var hrifinn af þeim ná- unga. Hann var efni í duglegan kaupsýslu- mann. Og ráðagóður var hann. Heima hjá foreldrum sínum hafði hann ágætt her- bergi, en leigði annars staðar með öðrum pilti, sem líkt var ástatt um, herbergi, sem . þeir einungis notuðu til þess að skemmta sér í, án þess að nokkur vissi það heima hjá þeim og þangað hafði hann boðið hon- um í kvöld. Ástu þótti þetta smellið uppátæki í strákunum og það varð úr, er þau höfðu en drukkið drykklanga stund og rætt mál- ið, að hún lét það eftir, að koma með hon- um til strákanna. Henni var óhætt að vera lengur en vant var núna, af því að bæði börnin hennar höfðu ætlað á dansleik. Þau fóru í bíl. Herbergi piltanna var í stórri byggingu, þar sem voru eintómar skrifstofur. Á leiðinni þangað sagði hann henni og bað hana fyrirgefningar á því, að þeir vissu, að hann kæmi með gest — sem ekki mætti minnast á við nokkurn mann, að hefði verið í fylgd hans. Hún fyrirgaf honum þetta brall á bak við tjöldin. Þetta var saklaust æfintýri allt frá upphafi og átti að vera það til enda. Og þau hlógu bæði. Hann barði að dyrum og þau gengu inn í herbergið. Þar var rautt ljós, sem bar daufa birtu, í einu horninu. Inni voru tveir piltar og tvær stúlkur og þau stóðu öll upp, þegar hann var að loka hurðinni. Ásta hafði gengið á undan honum og var byrj- 'uð að taka af sér hanzkann til þess að heilsa — en svo stóð hún eins og stein- gerfingur og það varð þvinguð þögn nokkur augnablik, þangað til eitt orð brauzt fram af vörum annars piltsins: „Mamma!“ I Vltið pér pað? : 1. Hvenær réðust Þjóðverjar inn í Noreg : i og Danmörku ? i 2. Hvað heita hin tvö þróunarstig skor- I dýra, áður en þau verða fullvaxin ? i : 3. Hvað heitir næststærsta borgin i Pól- | landi ? = i 4. Hvaða þjóð var það, sem dýrkaði Seif : Í sem sinn æðsta guð ? = : 5. Hve hratt getur skautahlaupari farið ? i 1 6. Hver er 4. landskjörinn þingmaður? : 7. Hvað þýðir orðið ,,amen“ ? : 8. Hvaða litir eru í þýzka fánanum ? i 9. Hvað þarf vindhraðinn að vera mikill, : til þess að fárviðri sé ? = 10. Hvar er Locarno? : Sjá svör á bls. 15. 1 =

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.