Vikan


Vikan - 29.05.1941, Qupperneq 1

Vikan - 29.05.1941, Qupperneq 1
Nr. 22, 29. maí 1941. Sigrún Magnúsdóttir Pað er eins og sumar manneskjur séu í heiminn bomar til þess að létta öðr- um stundimar á leiksviði lífsins. Þær ganga brosandi um meðal manna og mýkt og yndisþokki einkennir framkomu þeirra og ljúfa lund — þær em eins og „meyjan af ókunna landinu" í kvæðinu eftir Schiller. Hún kom í „dal þar hjarðfólk örsnautt undi“: „Hún aldin bar og ótal blóma, sem annar foldarreitur gaf, við æðri sólar ahð ljóma og eðli sælla getið af. Ástgjafir rétti hún öllum gumum, ávexti þessum, hinum blóm,. unglingi jafnt sem öldung hmmum, svo einskis hönd fór þaðan tóm.“ Sigrún Magnúsdóttir leikkona er ein af þeim, sem dreifir frá sér „ástgjöfum" list- arinnar, leikandi létt og brosandi, svo að ómögulegt er annað en hrífast — og dást að hæfileikum hennar. Það hefir ekki verið látið hátt um leik- starfsemi Sigrúnar, enda mun hún sjálf hafa lítinn vilja á að hampa sér. Hún hefir tekið Ustarhlutverk sitt alvarlega — að vísu með bros á vör — og lagt á sig mikið erfiði, eins og flestir hinna hæfustu íslenzku leikara, og getur verið hreykin af árangrinum. Af því að Vikunni em Ijósar hinar miklu og vaxandi vinsældir Sigrúnar Magnús- dóttur, fór hún á fund leikkonunnar og bað um mynd af henni sjálfri, eins og hún lítur út, þegar hún brosir framan í ljós- myndarann — án alls „leikaraskapar". En það leit næstum út fyrir, að hún hefði aldrei tíma til að láta taka myndina, því að íslenzkir leikarar verða að vinna meira og lengur en flest annað fólk. Þeir em varla einhama í þreki sínu og áhuga. Myndin var tekin, og birtist hér í allri sinni dýrð, en þá hafði leikkonan ekkert að segja um sjálfa sig — að henni fannst. En lesendur Vikunnar eru forvitnir, þegar um fólk eins og Sigrúnu ér að ræða og hér fara á eftir nokkrar upplýsingar um leikkonuna, sem fengnar vom í sam- tali við hana. Framhald á bla. 7. er af leikurum komin og afi hennar var leikrita- höfundur — og sjálf tekur hún hlutverk sitt alvar- lega, pó að hún leiki pað brosandi.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.