Vikan


Vikan - 21.08.1941, Qupperneq 7

Vikan - 21.08.1941, Qupperneq 7
VIKAN, nr. 34, 1941 7 Churchill á Íslandí Forsætisráðherra Bret- lands, Winston Churc- hill, steig á land í Keykjavík laust fyrir hádegi síðastliðinn laug- ardag. í fylgd með hon- um var F. D. Roosevelt, sonur Roosevelts Banda- ríkjaforseta, og margt stórmenni úr brezka hernum. egar Reykvíkingar héldu til vinnu sinnar laugar- dagsmorguninn 16. ágúst, mátti greinilega sjá, að mik- ið stóð til hjá brezka setu- Jiðinu. Hermenn stóðu víða í fylkingum með alvæpni. Churchill stígur á land. Churchill heilsar her Bandaríkjamanna á Islandi. Churchiil á heiðurspalli þeim, sem hermannaraðirnar gengu farm hjá. Churchill á Suðurlandsbrautinni að aflokinni hersýningunni. Aðrir stóðu fyrir utan skálana og burst- uðu skó sína, sem mest þeir máttu. Morg- unblöðin fluttu þá fregn, að hersýning ætti fram að fara hjá setuliðinu, og að um tíu- leyti myndi eitthvað ske niður við höfn, sem bæjarbúar kynnu að hafa gaman af að sjá. — Menn drógu fljótt þá ályktun, að ein- hver meiriháttar móttaka myndi eiga fram að fara og nefndu ýms stórmenni í sam- bandi við hana, svo sem hertogann af Kent, Beaverbrook lávarð, Winston Churchill og Roosevelt Bandaríkjaforseta. Hver og einn trúði svo því, sem honum þótti sennilegast. Klukkan ellefu renndi tundurspillir upp að „Sprengisandi", og kom þá í ljós, að sagan, sem flestum þótti ótrúlegust, reynd- ist rétt. Winston Churchill steig á land ásamt syni Roosevelts og ýmsum háttsett- um mönnum úr brezka hernum. Gekk hann fyrst á fund ríkisstjóra og ráðherra í alþingishúsinu, ávarpaði mannfjöldann af svölum hússins með nokkrum orðum og fór svo á hersýningu innan við bæinn. Þessu næst heimsó.tti hann ýmsar bækistöðvar hersins í grend við Reykjavík, og steig loks aftur á skipsfjöl um klukkan fimm. Her- mann Jónasson forsætisráðherra stóð á bryggjunni, þegar Churchill fór um borð og skiptust þeir á nokkrum kveðjuorðum. SKRÍTLUR. Grænlandsfarinn, sem er nýkominn heim: ,,I>að voru nú meiri fiskveiðarnar. Við þurftum ekki annað en kasta færunum út og draga þau strax upp aftur. Það voru miljónir af fiskum, og stærðin á þeim, maður lifandi!“ Áheyrandi (háðslega): ,,Það hafa kannske ver- ið hvalir?“ Grænlandsfarinn: „Nei, heyrið þér nú! Hval not- uðum við aðeins sem beitu.“ * A: „Hafið þér komið til Egyptalands ?“ B: „Nei.“ A: „Þá hljótið þér að þekkja bróður minn, hann hefir ekki heldur komið til Egyptalands."

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.