Vikan - 21.08.1941, Blaðsíða 9
VIKAN, nr. 34, 1941
9
Frétta-
myndir
Frank Leaky er nýr knattspyrnu-
þjálfari við Notre Dame háskól-
ann í Bandarikjunum. Hann tók
við af Elmer Layden, sem var
gerður að forseta knattspyrnu-
sambands Ameríku. Leaky var
■áöur aðalþjálfari við Boston há-
skólann.
Stýrir innrás Þjóðverja í Rúss-
land. Johannes von Blaskowitz
hershöfðingi, sem er gamall pólsk-
ur hermaður, er sagður stjóma
Sprengjum kastað á íbúðarhús í Moskva. Þýzk sprengja kom niður á hlið þessa íbúðarhúss og reif
vegginn frá eins og beittur hnifur hefði flett honum frá, svo að allar íbúðirnar komu í ljós. Mynd þessi
var send frá Moskva til að sýna fram á, að Þjóðverjar valda ekki tjóni á hernaöarlegum stöðum.
innrás Þjóðverja i Rússland. Sagt var, að hann hefði sett aöalbæki-
stöð sina í Brunn í Moravia, á meðan nazistahersveitirnar ryðjast
fram gegn Rauða hernum.
Abbesiníumenn sverja keisara sínum hollustu. Mynd þessi sýnir hluta .
af hersveitum Ras Ababa Aragai höfðingja, þegar þeir voru að sverja
keisaranum hollustueið fyrir framan keisarahöllina í Addis Abeba.
1 þau fimm ár, sem Italir stjórnuðu Abessiníu, var keisarahöllin að-
setursstaður hertogans af Aosta, sem gafst upp fyrir Bretum við
Ambar Alagi.
Vel æfðir. Á myndinni sjást menn úr brezku Hampshire-hersveitinni
vera að stökkva yfir varnarskotgröf í árásaræfingum. — Stöðugt er
verið að æfa og herða mennina, svo að þeir fái fulllcomna líkams-
herðingu.
Brezlt skipaiest. Brezku skipin sigla örugg út á opið hafið í sitipa-
lestum í fylgd með tundurspillunum, sem stöðugt eru á verði óg gæta
þeirra. •— Ný aðferð Breta að láta kafbáta fylgja skipalestunum
hefir reynzt vel í orustunni um Atlantshafið.