Vikan


Vikan - 09.03.1944, Blaðsíða 5

Vikan - 09.03.1944, Blaðsíða 5
VIKAN, nr. 10, 1944 5 Framhaldssaga: 15 Vegir ástarinnar- Eftir E. A. ROWLANDS Mary lofaði að hlýða lækninum og fór svo út að ganga í góða veðrinu, og Cameron læknir fór, og lofaði að líta til sjúklingsins seinna um dag- inn. Þegar læknirinn var farinn fór Mary í kápu sína og fór svo aftur inn i sjúkraherbergið, til þess að lita einu sinni enn til Sergíu. Hún ætl- aði að fara að læðast út úr herberginu aftur, þegar hún heyrði Sergíu hvísla eitthvað, og þegar hún hafði heyrt fyrstu orðin, stóð hún sem steini lostin. „Já, ég hefi misst allt — allt,“ hvíslaði Sergía — en hvað er það á við allt það sem hann hefir misst mín vegna! Julian — Julian, elskan mín!" stundi hún.í örvæntingu sinni. Nú skildi Mary allt. Hún skildi hvers vegna Julian hafði farið til Ástralíu svona skyndilega og að því er virtist að ástæðulausu, það hafði verið svo ólikt honum, og hún skildi nú, hvers vegna Sergia lá hérna í djúpri örvæntingu. Mary var svo hissa á öllu, sem hún hafði heyrt, að hún hugsaði ekki um að fara. „Ég verð að fara héðan,“ sagði Sergía lágt. „Ég verð vitlaus, ef ég á að vera héma. Ó, þessi ömurlegi staður minnir mig alltaf á, að ég hafi ■eyðilagt eitt mannslíf. Hann hefir misst atvinnu sína, heimili sitt — allt — allt — vegna mín. Ég hefi sært hjarta þitt Julian -— og þó elska ég þig svo innilega — en ég gat ekki gert ann- að. Hefði ég vitað það fyrr, að þú elskaðir mig, þá hefði allt verið öðruvísi." Hún sagði þessi síðustu orð svo lágt, að Mary heyrði þau varla — en hún hafði líka heyrt nóg. Sergia hafði sagt frá leyndarmáli sinu í óráðinu, og nú vissi Mary, hvers vegna veslings vinkona hennar hafði orðið svona veik, og hvers vegna hafði liðið yfir hana, þegar Mary hafði minnst á, að Julian væri farinn, og tárin runnu niður kinnar hennar, þegar hún læddist út úr stofunni. Hún hélt áfram að gráta, þegar hún gekk á heiðinni. Það hafði fengið á hana að heyra um þennan sorgarleik, sem hafði átt sér stað, án þess að hana grunaði neitt. Hvernig gat hún líka verið svona blind, að taka ekki eftir því, hvernig tilfinningar Julians höfðu breytzt í garð Sergiu! Svo mundi hún allt í einu eftir því, hvað Juli- an hafði verið breyttur í útliti og framkomu, þegar hún kom heim frá Sunleigh. Það hlaut að hafa verið honum kvöl aö hlusta á allar spurn- ingar hennar um Sergiu. En hvað hún vorkenndi þeim báðum, og hún vildi svo gjarnan hjálpa þeim! Hún gat ekki hugsað sér meiri hamingju en ef þessar tvær manneskjur, sem hún elskaði svo heitt mundu bindast hvor annari. „Það lagast,“ hugsaði hún svo vongóð; „maður þarf ekki að gefa upp vonina fyrir fólk, sem elsk- ar hvort annað. Þvi, áð hvað sem fyrir kann að koma, þá sigrar ástin alltaf, það geta verið erfiðleikar, tár og örvænting, en að síðustu hlýtur ástin að sigra. Ég verð bara að vera þolinmóð og biðja fyrir þvi, að þau megi bráðum verða hamingjusöm, því að þau eiga það skilið." Og svo fór hún að gera allskonar áætlanir, eins og ungar stúlkur gera oft, og eftir stutta stund hafði hinn ferski vindur heiðarinnar þurrk- að tárin, og nýr roði var kominn í vanga hennar. Allt i eínu fann hún vindlalykt, og áður en hún vissi, stóð Sir Allan við hlið hennar. Mary nam staðar og roðnaði, þegar ungi maðurinn' leit rann- sakandi á hana. Sir Allan brosti, um leið og hann kastaði frá sér vindlinum. „Það er mikill léttir að sjá yður,“ sagði hann. „Þér vitið það auðvitað ekki, að ég hefi verið hálfhræddur um yður.“ Mary leit alvarlega á hann. „Ó, þér .hafið talað við Cameron lækni,“ sagði hún. „Það var heimskulegt af honum." „Já, ég get sagt yður það, að hann hefir lesið yfir mér,“ sagði Sir Allan. „Hann sagði, að ég bæri ábyrgð á yður, ungfrú Mary, og þér megið trúa því, að ég skal gæta yðar héðan í frá, nú þegar skyldutilfinning min er vakin. Ég vil biðja yður um að gæta yðar vel, ef þér viljið þá ekki, að ég þjáist af hræðilegu samvizkubiti." „Hvernig dettur yður í hug að segja þetta,“ sagði Mary og hló, en hlátur hennar var ekki eðlilegur, og hún átti bágt með að stilla sig um að gráta ekki. Orð Sir Allans og framkoma hans gerðu hana ruglaða og hún gramdist honum fyrir að gera grin að sér, og hún gramdist sjálfri sér fyrir að þola það ekki. „Þetta er engin vitleysa," hélt Sir Allan áfram, „því að mér mundi þykja það mjög leitt, ef eitt- hvað skyldi koma fyrir yður. Ég mundi taka það mjög nærri mér, ef þér yrðuð veikar.“ Hann sagði þetta svo alvarlega; að Mary varð alveg rugluð og leit niður. „Svona megið þér ekki tala,“ hvíslaði hún, mér líður ágætlega. Ég er bara svo hrygg yfir nokkru, sem læknirinn sagði um Sergíu, og Sergía sagði í óráðinu." Þegar Mary hugsaði um þetta, gat hún ekki stillt sig um að gráta, og hún fól andlitið í hönd- um sér. En þær voru strax teknar frá. „Mary,“ sagði Allan — „Mary litla —“. Mary komst við af þessum vingjamlegu orðum hans, en á þessu augnabliki hugsaði hún ekki um sjálfa sig heldur aðeins um Sergiu og bróður sinn. „0,'hvað ég vildi óska,“ sagði hún „að Julian kæmi heim aftur.“ Ungi maðurinn, sem hafði stöðugt horft á hana eins og frá sér numinn, virtist nú allt i einu skilja orð hennar, og það birti yfir andliti hans. „Sergia hefir þá sagt yður frá öllu?“ spurði hann ákafur, „þér vitið það þá, Mary?“ Mary horfði á hann eitt augnablik og var á báðum áttum, henni leið illa. En hvað hún var hugsunarlaus og miskunnarlaus við þennan mann. Hvernig gat hún gleymt því, að Allan elskaði líka Sergiu. En hvemig stóð á því, að hann var svona glaðlegur? Orð hennar höfðu þá ekki sært hann. „Vissuð þér það líka?“ spurði hún loks. Sir Allan kinkaði kolli. „Já, ég gat mér til þess,“ sagði hann, „en ég vildi ekki minnast á það við yður, af því að ég vissi ekki, hvort Sergia kærði sig um það. En nú er það allt annað mál, og ef þér viljið nú segja mér allt, sem þér vitið, þá getum við fundið eitthvað ráð, sem gerir allt gott aftur. Ég held, að það væri einfaldast að skrifa Juliani og biðja hann um að koma heim.“ Mary ljómaði. „En hvað þér eruð góðir!“ sagði hún. „Göfugasti og bezti vinurinn!“ Sir Allan horfði rannsakandi á hana; roði færð- ist yfir vanga hennar, þegar hún reyndi að draga til sín hendurnar, sem hann hafði gripið. „Mary,“ sagði hann, „viljið þér hlusta á mig í nokkrar mínútur?" Hún horfði á hann og leit fljótt niður. „Mary,“ sagði hann „ég lít nú á Sergiu sem góða vinkonu mína. Mér þykir vænt um hana á sama hátt og Juliani þykir vænt um yður, og ekkert mundi gleðja mig meira en að hún yrði hamingjusöm. Þér vitið ef til vill, að það var allt öðru visi fyrir ári síðan, og þér megið ekki álíta mig fjöllyndan og óstöðugan af því að ég hefi svona fljótt sætt mig við að vera vinur hennar; en það fór fyrir mér eins og hún spáði. Ég sá fljótlega að hrifning mín var ekki hin innilega. og heita ást, sem sú kona, sem maður vill kvæn- ast, á að vekja hjá manni. Ég var þá hrifinn af fegurð Sergiu, en hrifningin var eins og töfrar, sem hurfu, þegar ég varð hennar góði bróðurlegi vin- ur. Þér verðið að skilja mig, Mary,“ hélt hann áfram, „og þér megið ekki lasta mig fyrir það.“ „Nei, af hverju ætti ég að gera það — ?“ stam- aði Mary. „Ég hefi engan rétt til þess að —.“ „Jú, þú hefir einmitt rétt til þess, elsku litla Mary,“ hvislaði hann „af því að þú hefir kennt mér að gera mun á hinni ímynduðu og sönnu ást. Já, þú mátt segja og hugsa það, sem þú villt, en þú skalt vita það, að ég elska þig, Mary, og ég mun alltaf elska þig, hvort sem þú kærir þig um það eða ekki.“ „Þér elskið mig! — Ó, Allan, þér — þú elskar mig!“ „Já, ég elska þig,“ endurtók hann um leið og hann lagði handlegginn utan um hana, og Mary faldi andlit sitt við öxl hans. „Þetta er eins og draumur," hvíslaði Mary lágt og innilega. „Það dásamlegasta er, að þú elskar mig líka, Mary. Ég get varla trúað þvi.“ Mary leit á hann, með fallegu augunum sín- um, svo innilega að það var nóg sönnun. „Hvernig á ég að geta annað en elskað þig,“ sagði hún lágt, „þú sem hefir alltaf verið hetja mín.“ „Við giftum okkur eins fljótt og hægt er,“ sagði Allan, þegar þau gengu yfir heiðina á heimleið- inni, og þau virtust ekkert taka eftir köldum vindinum. „Það er það bezta, sem við getum gert fyrir Sergiu. Þegar hún er nógu hress til þess að ferðast, þá tökum við hana með okkur. Hvað segir þú um það, elskan min?“ „Ég segi,“ hvislaði hún og leit á hann í senn ástúðlega og glettnislega „að ég — vegna Sérgiu, auðvitað — vil gjarnan giftast þér á morgun.“ Hann tók hendur hennar og kyssti þær, og þar sem þau voru nú alveg komin að húsinu, sagði hann: „Ég verð að skrifa Juliani strax. Hann verður að vita, hvaða alvarlega spor litla systir hans ætlar að taka. Mér finnst það nú vera skylda hans að koma heim.“ „Ef þú segir honum, að Sergia er sjúk og óhamingjusöm, þá kemur hann kannske," hvíslaði hún. En þegar hún hafði kvatt Allan og var aftur komin inn í sjúkraherbergið, fór hún að hugsa um, hvort hún þyrði að gefa vesling veiku vin- konu sinni von um að Julian kæmi. Hún leit nú á framtið sína í skínandi. birtu; en hvað hún vildi óska, að hún þyrði að gefa Sergiu dálitla von.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.