Vikan


Vikan - 09.03.1944, Blaðsíða 12

Vikan - 09.03.1944, Blaðsíða 12
12 VIKAN, nr. 10, 1944 „Við ferðuðumst. Ratchett langaði til að sjá heiminn. En hann kunni engin tungumál. Ég var öllu heldur túlkur en einkaritari.“ Hann horfði frá lækninum á Bouc. „Ha?“ Þið skiljið ekki enn þá? Það er ófyrir- gefanlegt — hann sagði: „Hamingjan eltir ekki þá, sem kunna eingöngu amerísku." „Þú átt við —?“ Bouc var enn þá skilnings- sljór. „Þú vilt að ég segi þér það! Jæja. Ratchett kunni ekki frönsku. En þegar lestarþjónninn kom í nótt til þess að svara hringingu hans, þá var svarað á frönsku, að það væri óþarfi og hann vildi ekkert. Það var meira að segja sagt á alveg réttri og gallalausri frönsku, sem enginn maður hefði getað, sem kynni aðeins lítið í frönsku. „Það er ekkert. Mér hefir skjátlast!" „Það er satt!“ hrópaði Constantine læknir æst- ur. „Við hefðum átt að sjá það. Ég man eftir að þér lögðuð áherzlú á orðin, þegar þér endur- tókuð þau fyrir okkur. Nú skil ég, hvers vegna þér voruð svona tregir að treysta á klukkuna. Ratchett var dáinn, þegar klukkuna vantaði tuttugu og þrjár mínútur í eitt —.“ „Og það var morðinginn, sem talaði!“ lauk Bouc setningunni. Poirot lyfti hendinni. „Við skulum ekki flýta okkur svona mikið. Og við skulum ekki gera ráð fyrir meiru en við vitum. Ég hygg, að það sé öruggt að segja að á þessum tíma — tuttugu og þrjár mínútur yfir eitt — hafi einhver verið inni í klefa Rat- chetts, og að sá hafi annað hvort verið franskur eða talað mjög vel frönsku." „Þú ert mjög varkár, gamli vinur?“ „Það er bezt að þreifa sig áfram fet fyrir fet. Við höfum enga sönnun fyrir því að Rat- chett hafi verið dáinn á þessum tíma.“ „En hrópið, sem vakti þig?“ „Já, það er satt.“ „Þetta breytti eiginlega engu,“ sagði Bouc. Þú heyrðir einhvem hreyfa sig í næsta klefa. Það var ekki Ratchett, heldur hinn maðurinn. Hann hefir eflaust verið að þvo af sér blóð og laga til eftir morðið og brennt bréfinu. Svo hefir hann beðið þangað til allt var kyrrt, og þegar hann heldur að allt sé öruggt, þá læsir hann hurð Ratchetts, og setur slána fyrir að innan, síðan opnar hann hurðina inn til frú Hubbard og læðist út þá leið. 1 rauninni er þetta alveg eins og við höfum hugsað okkur, að undanteknu því, að Ratchett hafði verið myrtur um hálftíma fyrr, og klukkan verið stillt á kortér yfir eitt.“ „Visamir á klukkimni bentu á 1,15 — á þeim tíma hefir morðinginn iiklega farið úr klefanum," sagði Poirot. „Það er satt,“ sagði Bouc, dálítið ruglaður. „Hvað álítur þú þá um klukkuna ?“ „Ef vísunum var breytt — ég segi ef -— þá hlýtur það að hafa haft einhvern tilgang. Það væri því eðlilegast að gruna þá, sem geta ekki sannað fjarveru sína — á þessum tíma, 1,15.“ „Já, já,“ sagði læknirinn. „Það er ágætt.“ „Við verðum líka að gefa þeim tíma gaum, þegar maðurinn kom inn í klefann. Hvenær hafði hann tækifæri til þess ? Ef ekki lestar- þjónninn er samsekur, þá er aðeins á einu tíma- bili, sem hann hefir komizt inn — ‘þegar lestin stanzaði við Vincovei. Eftir að lestin fór frá Vincovei, sat lestarþjónninn í sæti sínu og sneri fram í ganginn, og þar sem sérhver farþegi mundi taka litið eftir lestarþjóni, þá væri hinn rétti lestarþjónn sá eini, sem mundi taka eftir svikara. En þegar lestin stanzaði við Vincovei er lestar- þjónninn úti á stöðvarpallinu.“ „Þá hlýtur það að vera, einn farþeganna, eins og við álítum alltaf,“ sagði Bouc. „Þá kemur aftur spurningin. Hver var það?“ Poirot brosti. „Ég hefi útbúið lista," sagði hann. Ef þú vilt sjá hann, þá getur verið að það rifji upp fyrir þér ýmislegt." Læknirinn og Bouc litu báðir á listann í einu. Hann var skrifaður í sömu röð og farþegarnir höfðu verið yfirheyrðir. Hector MacQueen, amerískur þegn, rúm nr. 6, öðru farrými. Ástæða — ef til vill sú, að losna við að starfa hjá þeim myrta? Fjærvera. — Frá miðnætti til kl. 2 (miðnætti til 1,30 staðfest af Arbuthnot ofursta, og 1,15 til 2 staðfest af lestarþjóninum). Vitnisburður gegn honum. — Enginn. Ástæða til grunsemda. — Engin. Pierre Michel, lestarþjónn, franskur þegn. Ástæða. — Engin. Fjærvera. — Frá miðnætti til kl. 2 (séður af H. P. á sama tíma og röddin heyrðist úr klefa Ratchetts, kl. 12,27. Frá kl. 1 til 1,16 staðfest af tveim öðrum lestarþjónum). Vitnisburður gegn honum. — Enginn. Ástæða til grunsemda. — Lestarþjónsbúning- urinn, sem fannst, virðist hafa átt að varpa gruni á hann. Edward Masterman, enskur þegn, rúm nr. 4, öðru farrými. Ástæða. — Ef til vill, að losna við að starfa hjá Ratchett, en hann var þjónn hans. Fjærvera. — Frá miðnætti til kl. 2 (staðfest af Antonio Foscarelli). Vitnisburður gegn honum eða ástæða til grun- semda. — Engin, nema sú að hann er eini maðurinn, sem lestarþjónsfötin hefðu verið mátuleg á. Á hinn bóginn er það óliklegt, að hann tali frönsku vel. Frú Hubbard, ameriskur þegn, rúm nr. 3, fyrsta farrými. Ástæða. — Engin. Fjærvéra. — Frá miðnætti til kl. 2. Vitnisburður gegn henni eða ástæða til grun- semda. — Frásögn hennar um manninn í klefanum er staðfest af vitnisburði Hard- mans og stúlkunni Schmidt. Greta Ohlsson, sænskur þegn, rúm nr. 10, öðru farrými. Ástæða. — Engin. Fjærvera. — Frá miðnætti til kl. 2 (staðfest af Mary Debenham). Ath. Sá Síðust Ratchett á lífi. Dragomiroff prinsessa, hefir frönsk þegnréttindi, rúm nr. 14, fyrsta farrými. Ástæða. — Var nákunnug Armstrong-fjölskyld- unni. Fjærvera. — Frá miðnætti til kl. 2 (staðfest af lestarþjóninum og herbergisþernunni). Vitnisburður gegn henni, eða ástæða til grun- semda. — Engin. Andrenyi greifi, ungverskur þegn, stjórnarvega- bréf, rúm nr. 13, fyrsta farrými. Ástæða. — Engin. Fjærvera. — Frá miðnætti til kl. 2 (staðfest af lestarþjóninum — þó ekki tíminn frá kl. 1 til 1,15). Andrenyi greifafrú, eins og ofannefndur, rúm nr. 12. Ástæða. — Engin. Fjærvera. — Frá miðnætti til kl. 2. Tók svefn- skamt og sofnaði (staðfest af eiginmanni hennar; svefnlyf í náttborði hennar). Arbuthnot ofursti, enskur þegn, rúm nr. 15, fyrsta farrými. Astæða. — Engin. Fjærvera. — Frá miðnætti til kl. 2. Talaði við MacQueen til kl. 1,30. Fór síðan í klefa sinn og fór ekki þaðan aftur (staðfest af Mac- Queen og lestarþjóninum). Vitnisburður gegn honum eða ástæða til grun- semda. — Pípuhreinsari. Cyrus Hardman, amerískur þegn, rúm nr. 16. Ástæða. — Óþekkt. Fjærvera. — Frá miðnætti til kl. 2. Fór ekki úr klefa sínum (staðfest af lestarþjóninum nema tímabilið 1—1,15). Vitnisburður gegn honum eða ástæða til grun- semda. — Engin. Antonio Foscarelli, amerískur þegn (Itali), rúm nr. 5, öðru farrými. Ástæða. — Óþekkt. Fjærvera. — Frá miðnætti til kl. 2 (staðfest af Eward Masterman). Vitnisburður gegn honum eða ástæða til grun- scmda. — Engin, nema ef það væri vopnið, sem hæfði skapferli hans (Bouc). Mary Debenham, brezkur þegn, rúm nr. 11, öðru farrými. Ástæða. — Engin. Fjærvera. — Frá miðnætti til kl. 2 (staðfest af Greta Ohlsson). Vitnisburður gegn henni eða ástæða til grun- semda. — Samtalið, sem H. P. heyrði, og neitun hennar að útskýra það. Hildegrade Schmidt, þýzkur þegn, rúm nr. 8. öðru farrými. Ástæða. — Engin. MAGGI OG RAGGI. Eftir Wally Bishop. Maggi: Af Úr>'->ö> hverju ertu að gráta, Stjáni minn? Stjáni: Ég var að hugsa um nokkuð og gat ekki annað en farið að gráta. Maggi: Það þýðir ekkert að gráta, ekki lag- ast neitt fyrir það. Þetta, sem þú varst að hugsa um, get- ur ekki verið svona slæmt! Maggi: Þú ættir að segja mér, hvað þetta var, þá kemur þér til að líða betur. Stjáni: Það er bezt ég geri það. Ég var að hugsa um það, að skólinn byrjar eftir mánuð! Maggi: Það er satt! (Fer að gráta). En því þurftirirðu nú endilega að fara að minna mann á það!

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.