Vikan


Vikan - 09.03.1944, Blaðsíða 10

Vikan - 09.03.1944, Blaðsíða 10
uiiiiiiiiitiiiitiiititiiiuiiiikttmttniiiiimiiiiiiiiHiuHmHiiiinuiitiiiiiiu 10 VIKAN, nr. 10, 1944 i? i m ii s n Ki Fatnaður - Húsgögn - Rúmfatnaður. IWWI— Matseðillinn Brauðsúpa. 200—250 gr. rúgbrauð. l'i 1. vatn, 1 matsk. rúaír.ur, 2 sitrónuE? ■r.i'Czr, 2—2 matsk. sykur, mjólk. Gott er að hírur'ta st-. brauð- skorpur og anna- gamalt brauð í þennan rétt. Brauoiö er brytjað og látið liggja í bleyti til næsta dags vatninu, sem á að sjóða það í. Saxað í söxunarvél einu sinni. Látið í pott og soðið við hægan hita, þar til það er jafnt (því betra er það, sem það er soöið betur). Rúsinurnar eru þvegnar og soðnar með síðustu 20 minútumar. Þá er sykurinn látinn i eftir vild. Sítrónusneiðamar eru skornar smátt og látnar út í. Borðað með mjólk eða þeyttum rjóma, eða hvorutveggja. Steikt þorskhrogn. 400 gr. þorskhrogn. Vatn og salt. Eggjahvíta og brauð- mylsna. 50 gr. smjörlíki. Sítr- ónusneiðar. Kapers og síld. Hrognin eru þvegin og vafin innan i þunnt stykki eða klút. Látin i kalt Húsráð. Sópið æfinlega gólfin eftir hverja máltíð. Það er fátt jafn óhirðusam- iegt eins og að sjá brauðmola o. fl. út um öll gólf. vatn með salti og soðin i 1—2 stund- arfjórðunga. Tekin upp og látin vera i klútnum, þangað til þau eru orðin köld. Síðan eru þau skorin í sneiðar, sem eru rúmlega 1 cm. á þykkt. Snú- ið upp úr eggjahvítu og brauðmylsnu. Brúnað á pönnu. Raðað á fat, smjör- inu hellt yfir, sítrónusneiðunum og kapers og síld. Þetta má vera volgt á köldu borði eða heitt með kartöfl- um, sem snúið er upp úr smjöri og tómatmauki hellt yfir. Sleppa má sítrónusneiðunum, kapers og síld. Dökkur skokkur og köflótt blússa. Þessi skokkur er úr dökkbláu eða svörtu ullarefni. Á pilsinu eru tveir stórir vasar. Jafnfallegt er að nota við hann peysu eins og blússu. Fatnaður. Fatnaður karla og kvenna þarf að vera í samræmi við árstiðir og veðráttufar. En satt bezt að segja er öðru nær en siíkt verði sagt um klæðnað ungra kvenna hér á landi, því að þær ganga svo fáklæddar og illa búnar, sérstaklega að nærfötum, að betur hæfði fólki í hitabeltislönd- um en norður við heimskautsbaug. Fatnaður á fyrst og fremst að vera til skjóls, en jafnframt eiga nærfötin að taka við svita og óhreinindum hörundsins. Mega allir sjá, hversu óþrifalegt er að ganga mjög fáklædd- ur, að ekki sé sagt næstum nakinn, undir kjóium eða öðrum utanhafnar- flíkum, sem þá verða að taka við svita og óhreinindum húðarinnar. En utanhafnarföt er dýrt og erfitt að hreinsa, og þvott þola flestir kjólar alls ekki. Getur ekki hjá því farið, ef lengi dregst að hreinsa utanyfir- fötin, að megn svitalykt komi úr föt- unum, en slíkt lýsir mikium skorti á hreinlæti og er raunar öllum and- styggð. Hreinlegast er, að nærfötin séu svo stór (skyrtur með ermum), að þau hylji mestan hluta líkamans og þeim sé skipt vikulega. Sjái kven- fólkið sér ekki fært að klæðast góð- um nærfötum, verða utanyfirfötin að vera úr þvi efni, að þau megi þvo eins oft og nærfötin. Islenzka ull ætti að nota meira til fatnaðar en nú tiðk- ast. Það orkar ekki tvímælis, að hún hentar betur veðurfari hér á landi en nokkur erlend fataefni. Húsmæður skyldu kosta kapps um að klæða Húsráð. Ef þér leggið þurrkaða ávexti í bleyti, áður en þér sjóðið þá, þá skuluð þér aldrei fleygja því vatni, heldur sjóða ávextina i því. Það er miklu heilsusamlegra. Strauið aldrei uilamærföt, þá munu þau endast lengur. börn sín ullarfötum, að minnsta kosti að vetrinum. Og gæta skulu þær þess að verða aldrei svo háðar tízkunni um klæðnað barna sinna, að lífi og heilsu barnanna sé í voða stefnt. Islenzku skinnskórnir, sem lengst af hafa verið notaðir hér á landi, eru nú óðum að detta úr sögunni. 1 þeirra stað hafa gúmskór rutt sér til rúms, einkum til sveita. Þeir eru vatnsheldir, léttir og ódýrir, en hafa þann galla að halda raka að fætin- um. Fjöldi kvenna notar af undar- legum hégómaskap of þrönga skó og of háa og mjóa hæla og fær fyrir það afkáralegt göngulag, auk þess sem skókreppa veldur líkþornum, tá- skekkju og því, að neglur vaxa út í holdið. 1 bleytu eru vatnsleðurskór eða vaðstígvél heppilegasti fótabún- aðurinn, en ekki hælaháir dansskór, eins og hér má oft sjá. Góðir skór hafa þann ókost, að þeir eru dýrir, og fólk hefir ekki tök á að gera við þá sjálft. Athugandi væri, hvort ekki mætti nota tréskó við ýmsa vinnu, einkum heima við. Þeir eru hlýir, léttir og ódýrir og fljótlegt að smeygja sér úr þeim, en að því er mikill þrifnaðarauki að vaða ekki inn í íbúðir á óhreinum skóm. Lipra inni- skó ætti hver maður að eiga. Húsgögn — Rúmfatnaður. Húsgögn eiga að vera látlaus og einföld, svo að hægt sé að halda þeim hreinum. Ánægjulegast væri, að sem flest, sem að húsbúnaði lýtur, væri unnið í landinu sjálfu, svo sem húsgagnaáklæði, gluggatjöld, reflar og gólfábreiður. Islenzka ullin er bezta efni í allt slíkt, en mikið vantar enn á, að framleiðsla á þeim vöruteg- undum sé komin í það horf, sem ósk- andi væri. Þó fer áhugi kvenna á hvers konar heimilisiðnaði nú hrað- vaxandi. Smáskraut og glingur ætti að hverfa úr sögunni. Allir slíkir hlutir eru ryksælir og mikið verk að halda þeim hreinum. Það er ósiður að láta gluggatjöld loka úti birtu og sól. Menn eiga að keppast um að láta sólina skína inn til sín eins og fram- ast er unnt. Hvers konar sýklar þríf- ast illa í sólskini. Sængurdýnur eru beztar úr hross- hári, en notast má við þær úr ýms- um jurtatrefjum. Hálm- Og heydýnur eru óþrifalegar. Þær safna ryki og mygla, ef raki er í íbúðinni, þar að auki eru þær afbragðs verustaður fyrir flær og önnur óþrifadýr. Undir- sængur er erfitt að hreinsa og þess vegna ekki að þeim nein hollusta, enda eru nú margir hættir að nota þær. 1 þeirra stað er bezt að nota ullarteppi. Þau hafa þann kost, að þvo má þau eins oft og þörf krefur. Rúmföt þarf að viðra við og við. Bezt er að gera það í sólskini og hvassviðri. Lökum á að skipta á rúm- um ekki sjaldnar en hálfs mánaðar- lega. (Úr Heilsufræði handa húsmæðr- um eftir Kristínu ólafsdóttur lækni. Útgef.: Isafoldarprentsm.). Nýja ameríska sápan er handsápa hinna vandlátu. F æ s t v í ð a. Öruggasta og — SPHCACt'ÉCpNOMÍQUS bezta handþvottaefnið. MILO HlUllutlfllMt: lin tðauoa. uiuim •

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.