Vikan


Vikan - 29.06.1944, Side 15

Vikan - 29.06.1944, Side 15
VIKAN, nr. 26, 1944 15 Þjóðhátíð Reykvíkinga 1874 Framhald af bls. 7. að með skothrið stórri og margföldu fagn- aðarópi. Landfógeti mælti þá til hans nokkrum orðum og bað hann velkominn, og eftir það var honum flutt kvæði eftir Matthías Jochumsson. Þá er konungur fékk hljóð tók hann til máls og þakkaði fyrir viðtökur þær, er honum væru veittar, lýsti hann og gleði sinni yfir landi og þjóð, og hvað sér næsta kært, að geta sjálfur tekið þátt í þúsund ára hátíð þjóðarinnar, ennfremur minntist hann á hina íslenzku stjórnarskrá og lét í ljósi þá von sína, að hún mundi verða til blessunar og heilla, og að síðustu mælti hann: „Lifi Island! Lifi hin íslenzka þjóð!“ Kváðu þá að nýju við fagnaðaróp. Eftir það tókust ræð- ur f jörugar. Fyrst mælti skáldið Matthías fyrir minni Norðmanna, en því svaraði skáldið Nordal Rólfsen frá Norvegi. Þá mæiti rektor Jón Þorkelsson fyrir minni Svía, en því svaraði aðmíráll Lagerkranz. Þá mælti Eiríkur Magnússon bókavörður í Cambridge fyrir minni Ameríkumanna, en því svaraði skáldið Bayard Taylor frá Ameríku. Þá mælti yfirkennari Helgi Hélgasen fyrir minni Kleins ráðherra, en Klein svaraði aftur. Síðast mælti skóla- kennari Gísli Magnússon fyrir minni kvenna, og þá var sungið minni allra gest- anna. Eftir það var konungi boðið inn í tjald er reist hafði verið handa honum þar á hæðinni; neytti hann þar nokkurra hressinga, og gekk burt síðan með sveit sína; fylgdi honum fagnaðaróp fundar- manna. Þá er konungur var farinn söng söng- flokkurinn enn nokkur kvæði, og var dans- að nokkra hríð; en þá var hátíðinni lokið. Svo hafði verið til ætlað, að flugeldar mikl- ir skyldu fram fara í hátíðarlokin, en eigi varð af því fyrir slys, er til bar. Hermenn 2 danskir er flugeldunum áttu að stýra, höfðu af vangá skotið af sér vinstri hend- urnar í skothríð þeirri, er gjör var konungi til fagnaðar, er hann kom á hátíðastaðinn. Menn þessir voru þegar fluttir á spítala bæjarins, og síðan græddir; þágu þeir all- mikið fé af konungi og bæjarbúum í sára- bætur.“ Þessi mynd af Reykjavík er nokkru eldri en frá þeim tíma, sem hér um ræðir, eða frá því um 1852. Litið er af Hóla- kotstúni niður yfir Tjöm- ina og miðbæinn. TÍMARITIÐ “Ttrvaí flytur ýmiskonar fróðleik og skemmtilegar sögur. Ritið kemur út sex sinnum á ári, vandað að öllum frágangi, 128 blaðsíður i hvert sinn og kostar aðeins 7 krónur heftið. Fæst í öllum bókaverzlunum. • \ Tryggið yður tJRVAL | áður en það selst upp. Fanginn í Zenda eftir ANTHONY HOPE er nýkomin á bókamarkaðinn. Þessi heims- fræga skáldsaga er afburða skemmtileg og spennandi enda talin með beztu skeftimtibók- um, sem ritaðar hafa verið. Fanginn í Zenda fjallar um stórfengleg ævin- týri ensks aðalsmanns, er hann af tilviljun hittir prins einn, sem á að fara að krýna til konungs, en þeir eru svo líkir, að ekki er hægt að þekkja þá sundur. Hvað af því leiðir verður bókin að skýra yður frá. Kaupið FANGANN I ZENDA og aðrar bækur V asaútgáf unnar. Vasaútgáfcsn Hafnarstræti 19. — Sími 4179. Fleiri og fleiri kaupa nújdaglega ■ gróðurhús og vermireiti. GÍSLI HALLDÓRSSON í VERKFRÆÐINGAR & VJ ELASALAR Sími 4477.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.