Vikan


Vikan - 10.08.1944, Blaðsíða 4

Vikan - 10.08.1944, Blaðsíða 4
4 VIKAN, nr. 32, 1944 CAGDURI <=5m d3aga efíír ff. fff fffoBny rjg er fæddnr til ásta, og einkum þeirr- ■L-» ar fómfúsu tegundar ástar, sem gef- ur manninn algjörlega á vald konu, „til góðs eða ills“, þannig að hann er reiðubú- inn til að lifa og deyja fyrir hana. Örlög- in hafa tvisvar leikið mig hart. Fyrra skiptið, er unnusta mín dó skyndilega skömmu fyrir brúðkaup okkar; í síðara skiptið, er stúlkan, sem ég elskaði og virtist elska mig, strauk frá mér með mandolín- leikara frá Chile. Þessi vonbrigði höfðu verið mér svo sár, að ég örvænti algjörlega um framtíðar- hamingju mína. Þau gerðu mig þunglynd- an og drápu í mér allar vonir og allan metnað. Ég dró mig í hlé í einveru eyði- klausturs nálægt Lyons og eyddi dögun- um við að ráfa um geysistóran garð, sem ekki hafði verið snertur ræktarhendi í hundrað ár. Fuglar og smádýr lifðu þar frjálsu lífi innan um blómin og grasið, og tíminn, sem hann hafði legið í auðn, hafði auðgað hann að villijurtum, einkennilegum salamöndr- um og löngum, gljáandi, hlédrægum orm- um. Hjörtur ráfaði um garðinn með hjörð sína; ég get ekki ímyndað mér, hvemig þeir hafa komizt þangað inn. Hann varð brátt einkavinur minn; og dag einn, er ég var ekki fær imi að fara út, gekk hann upp tröppumar, sem lágu að gamla klaustrinu, stóð þar og horfði inn til mín sorgbitnum augum. Ég reikaði um garð þenna snemma morguns og á kvöldin, er sólsetrið virtist kveikja í trjánum með eldbjarma sínum og síðar, er skýin hlóðu upp borgir sínar í óteljandi furðumyndum. En mér var aldrei nein fróun í þessu. Hjarta mitt var jafn ómóttækilegt eins og haustlaufið. Harmagrátur Jeremiasar var ávallt í huga mér. Ég ól sorg mína í þessu fagra umhverfi, þar sem eikur, álmtré og beykitré fléttuð- ust saman í ósnortinn, fagran skóg. Dag nokkurn, er ég hafði reikað garð- inn á enda og stóð undir steinveggnum sá ég dyr opnast á honum og í þeim birtist stúlka. Hún var klædd skarlatsrauðum kjól með gylltum leggingum, sem féll að henni í þungum fellingum; um hálsinn hafði hún undurfagurt nisti; hár hennar, sem féll í björtum liðum yfir axlir virtist vera eins silkimjúkt og köngurlóarvefur. Augu hennar voru með töfrandi grænum blæ, húð hennar hvít og fín, kinnar henn- ar fagurlega ávalar, varir hennar þrungnar yndisþokka, og líkamsvöxtur hennar var mjúkur og fullkominn. Öll þessi fegurð gerði það að verkum, að hún virtist vera huldumær, draumadís, sögudrotning í hinum yndisfagra, gamla garði. Hún virtist vera óttaslegin og leit var- færnislega til mín. Ég var of hissa til þess að geta hreyft mig, en samt vissi ég, hvernig ég átti að sýna þessari fögru obin- berun tilhlýðilega virðingu. „Látið þér yður mig engu skipta," sagði ég sorgbitinn. „Þessi garður er yður al- gjörlega frjáls til afnota, ef þér viljið leyfa mér að dveljast hér!“ Hún brosti, og ég sá, að mér hafði tekizt að sannfæra hana um það, að öllu væri óhætt. „Hann var nefnilega í eyði þessi garð- ur,“ sagði hún, og rödd hennar minnti mig á kristaltært, renandi vatn; „ég hefi oft eytt hér heilum dögum án þess að sjá nokkum mann.“ „Já, hann var í eyði,“ sagði ég, „og við getum sagt, að hann sé það ennþá.“ Við fórum að tala um gömlu trén, hjört- inn og salamöndrumar, og mér fannst einhver töframáttur vera yfir samræðum okkar. Þessi unga dís var svo fögur og heillandi; henni þótti jafn vænt um góðar bækur og fagra náttúmna. Hún var eins vel að sér í öllum leyndardómum víðátt- unnar og skóganna og í skáldsögum George Sand, Lamartine, Bulwer-Lytton og de Vigny. Hún valdi orð sín vel, og jafnvel er hún þagði fannst mér ég vera að hlýða á hana. öðra hverju brá fyrir dreymandi glampa í augum hennar, eins og hún væri að horfa þvert í gegnum vegg- inn og eitthvað langt í burtu. „Á hvað erað þér að horfa?“ spurði ég. „Ekkert sérstakt," svaraði hún, „Það er VEIZTU—? 1. Hvar var bærinn, sem Holta-Þórir var kenndur viB? 2. Eftir hvem er þetta erindi og úr hvaða kvæði: Ég er blónrið, sem óx úr mold þinni, jörð, hið unga blóm, sem sólskinið tók sér í fang! Ég dreifBi minni gleði um þinn viðavang ó, veröld, sem áttir hjarta míns þakkargjörð. ? 3. Hvaða ár var það vopnahlé gert, sem minnst er 11. nóvember? 4. Hver er elzta útvarpsstöð í heimi? 5. Hvað þýðir: flimtan, í fornu máli? 6. Hver samdi þessar óperur: a) Don Juan; b) Töfraflautan; c) Brúðkaup Figaros? 7. Hvar eru „nálar Kleopötru“. 8. Eftir hvem er leikritið „Macbeth"? 9. Hvaða indíánaþjóð réði ríkjum í Perú fyrir landafundi Spánverja? 10. Hvað heitir höfuBborgin í SuBur-Ástra- líu? Sjá svör á bls. 14. í aðeins þetta: Ég skildi eftir líkama miiui í svefnherberginu. Ég er dálítið óróleg vegna þess, að ég er hrædd um, að hann kynni að fara út einn!“ Ég skildi auðvitað strax, að hún hlaut að vera eitthvað geðbiluð, en þetta vakti aðeins frekari áhuga minn fyrir henni. Hún kom aftur; í fyrstu með mjög löngu millibili, síðar hérmnbil á hverjum degi. Ég var viss um, að ekkert væri athugavert við þetta, og hvernig átti ég að sjá við framtíðinni, er ég var allt of kærulaus til þess að gera mér neinar áhyggjur um, hvað um sjálfan mig yrði ? Fyrst leið vorið, svo sumarið, og haustið var að færast yfir. Þá uppgötvaði ég einn septembermorg- unn, að ég, óhamingjusamur útlaginn, hafði vakið þá ást, sem sofið hafði í hjarta veslings, geðbiluðu stúlkunnar. Það var í fyrsta skipti, sem ég komst í hugaræsing eftir að ég hóf einbúalíf mitt, og það vakti hjá mér meðaumkvun og ótta. Ég ætlaði að reyna að láta vinkonu mína gleyma þessari ást, en ég sá, að hún varð fölari og fölari með hverjum deginum, sem leið; og er ég minnist samræðna okkar, þá varð mér ljóst, að hún barsamskonarástí brjósti eins og ég, hún elskaði ekki nema einu sinni og þá að eilífu. Þá fylltist hjarta mitt sorg á ný, og ég sá eftir öllu framferði mínu. „Hví ætti ég ekki að reyna að endur- greiða henni?“ spurði ég sjálfan mig. „Hví skyldi ég ekki eyða því, sem eftir er af mínu ömurlega lífi til þess að annast hana, veslinginn?" Mér hafði varla dottið þessi hugmynd í hug, fyrr en mér fannst eldur renna aftur um æðar mínar. Ég fann þá ást, sem ég hélt, að væri löngu dáin, endurrísa, og enn einu sinni fann ég andblæ vonarinnar. Og hvers vegna ekki? Það vissi enginn um þessa smávægilegu geðbilun Lucienne nema við tvö. Hún bjó hjá fjörgamalli frænku sinni og nokkrum gömlum trygg- um þjónum; engin lagaleg hindrun var fyrir giftingu okkar; framtíð mín var það eina, sem var í veði, og hún var hvort sem var ekki björt eða fyllt glæsilegum vonum. Rökkrið var að skella á, og ský, litfögur sem haustblóm, þöktu himininn. Lucienne færði sig nær mér og saman horfðum við upp á milli greinanna á þessa glæsilegu litfegurð. Hjarta mitt fylltist blíðu og fögnuði. Hin yndislega vinstúlka mín færði mér aftur gleði mína og æsku. Hún virtist mjög óróleg og hugsi. Blíð- lega tók ég í hönd hennar. „Lucienne, litla Lucienne mín,“ sagði ég í hálfum hljóðum, „hvers vegna ættum við ekki að horfa saman á kvöldroðann til æviloka?“ Hún varð enn þá fölari og fór að titra; svo greip hönd hennar fast utan um mína, og hún svaraði mér, eins og í draumi. „Veiztu ekki,“ sagði hún, ,,að mér er sama um allt í þessum heimi, nema því aðeins, að ég geti átt það með þér?“ Framhald á 7. síðu.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.