Vikan - 12.04.1945, Blaðsíða 1
ÁSGRÍMUR JÓNSSON
rnálari.
Lándalag eftir ÁsgTÍm Jónsson.
(Ljósmyndina tók Vigfús Sig-
urgeirsson).
Pað mun ekki vera of-
sagt, að í 4 tugi ára
hafi Ásgrímur Jónsson
verið sá maður, sem borið
hefir einna hæst meðal ís-
lenzkra myndlistarmanna
og ber einkum tvennt til
þess. Hið fyrra er það, að
hann telst til hinna allra
fyrstu, sem ruddu braut-
ina fyrir myndlist okkar
Islendinga, en hitt er með
hve miklum ágætum hann
hefir haldið merki íslenzkr-
ar málaralistar uppi alla
tíð, á sinni löngu starfs-
æfi.
Ásgrímur málari er
fæddur í Rútsstaðahjá-
leigu í Flóa í Gaulverja-
bæjarhreppi. Standa að
honum sunnlenzkar og
norðlenzkar ættir. Móðir
hans Guðlaug Gísladóttir
var úr Hreppunum, af
hinni alkunnu og fjöl-
mennu Bolholtsætt — og
var forfaðir hennar Jón
bóndi í Skipholti, bróðir
Fjalla-Eyvindar, ríkis-
bóndi, sem lét ekki hindra
sig í að rétta hinum
ógæfusama bróður sínum
hjálparhönd í trássi við lög
og rétt, þegar því varð við
komið. Því er við brugðið,
hve snjallt handbragð
Framhald á bls. 3.
Ragnar Ásgeirsson skrifar að þessu sinni
grein um einn elzta og mesta brautryðjanda
íslenzkrar málaralistar. Ásgrímur er nú kom-
inn fast að sjötugu og hefir lengi notið mikillar
virðingar sakir listar sinnar og mannkosta.