Vikan


Vikan - 12.04.1945, Síða 10

Vikan - 12.04.1945, Síða 10
10 VIKAN, nr. 15, 1945 11 iri i ii n i 11 i i • 1 i iti iii iii 11 L 1 ! i íl Fá og góð leikföng eru betri en mörg. Matseðillinn Beinlausir fugiar. 1% kg. læri, kálfa- eða svína- kjöt, 100 gr. flesk, % 1. vatn eða mjólk, 75 gr. smjör, 25 gr. hveiti, 125 gr. kjötfars, 2 laukar, 1 te- skeið salt, V2 teskeið pipar. Kjötið er þvegið, sinar og himnur teknar burtu, skorið í sæmilega stórar sneiðar, barið og stráð kryddi og fint skornum lauk. Dálítill flesk- biti ásamt einni matskeið áf kjöt- farsi látið yfir og kjötinu vafið sam- an utan um það, bandi bundið um, síðan er það brúnað í smjöri. Sjóð- andi vatn eða mjólk er nú látið sam- anvið og allt soðið í þrjú kortér. Fuglarnir teknir upp og böndin leyst. Hveitið er hrært út í dálitlu köldu vatni, helt í soðið og soðið í 5 mín- útur. „Eplapie“. 750 gr. epli, 100 gr. sykur, 60 gr. smjör, 60 gr. sykur, 2 til 3 egg, 60 gr. möndlur. Eplin eru flysjuð og soðin í graut, sem 100 gr. syþur er sett saman við. Smjörið er velgt, hrært hvítt ásamt sykrinúm, og svo eru eggjarauðum- ar (ein í senn) settar saman við, og að lokum eru stífþeyttar hvítumar og möndlumar látnar út í. Mót er smurt, eplagrauturinn látinn í botn- inn og hinu svo hellt yfir. Bakað í vatnsbaði í % klukkustund. Má, ef vill, skreyta með þeyttum rjóma, þegar orðið er kalt. Húsráð. Búið ávallt til gott sápuvatn, það borgar sig, því að þá er miklu léttara verk að þvo þvottinn. Alltaf verður fólki bezt af mat sínum, ef það getur neytt hans reglu- lega, það er að segja, ef það hefir ekki óreglulega matartíma og þarf ekki að flýta sér um of að borða. Það verður aldrei of vel brýnt fyrir fólki að hafa ekki eiturvökva ómerkta á glámbekk. Einkum verður að var- ast að láta slíkt vera þar sem börn geta náð í það. Látið enga eitur- vökva verða á vegi barnanna og merk- ið allar eiturflöskur og glös vel. TÍZKUMYND. Þessi fallegj kjóll er úr svörtu efni. Framan á pilsið er saumað bleikt efni eins og það væri lítil svunta. Sama efni er notáð á ermamar að neðan og saumað eins og tungur.. Hálsmálið er einnig með tungum. Sumstaðar er það siður, að brúðgum- inn beri brúðurina yfir þröskuldinn inn í nýja heimilið þeirra. En hérna er þeim sið snúið við. Konan, sem heldur á manninum sínum er hjúkr- unarkona, en hún kynntist honum á sjúkrahúsi, þar sem hann var sjúklingur. Hann hefir augsýnilega ekki verið orðinn vel styrkur á fótun- um, þegar þau giftu sig. Það barn, sem á ekki of mörg leik- föng, heldur nokkur stykki, er það getur notað á margan veg, er heppið. Kaupið ekki mikið af leikföngum handa barninu yðar. En kaupið nokk- ur góð og sterk. Gætið alltaf vel að því að velja leikföngin við hæfi barnsins. Kaupið líka alltaf sterk leikföng. Ef þér gefið barninu ónýtt leikfang, þá er það fljótt skemmt eða brotið. Brot- in leikföng eru ljót, og barnið hætt- ir að hafa gaman af þeim. Leikfangið er barninu því meira virði sem það getur notað það á margvislegri hátt; það er ástæðan til þess að börnin hafa alltaf svo gam- an af því að leika sér að kubbum, pottlokum og ýmsu fleira af því tagi. Leikföngin slcal velja í samræmi við aldur bamsins. Sum böm móðg- ast beinlínis, ef þeim eru fengin leik- föng, sem em ætluð yngri börnum. Og stundum geta slík Ieikföng að Um tóbak. (TJr Ljósmæðrablaðinu). Nokkur ráð handa þeim forföllnu: 1. Hættið að reykja nokkurn tíma, ef eitranareinkenni gera vart við sig. Það er auðveldara fyrir flesta að hætta alveg að reykja en tak- marka reykingarnar. — Notið þá eitthvað i staðinn, t. d. mentol- vindlinga. 2. Hvílið ykkur helzt 1 til 2 mánuði árlega' á reykingum. Líkaminn þarf nefnilega svo langan tima til að losna við eitrið. 3. Reykið ekki fyrr en á kvöldin. 4. Reykið ekki ofan í ykkur. Þegar fólk reykir ofan í sig, fer reyk- urinn niður í barkann og lungna- pípumar, og þar er slímhúðin sér- staklega viðkvæm og auk þess sumu leyti dregið úr eðlilegum þroska barnsins. En ef aftur á móti leikföngin eru ætluð eldri bömum, þá verður það til þess að foreldram- ir hjálpa börnunum að leika sér, og þau fara þá að treysta á aðstoð þeirra hvenær sem er. Þetta skyldu foreldrar annars varast, því að lang- beztu leiksystkinin eru jafnaldrar bamsins. Leikfang, sem barnið hefir gaman af, þegar það er einsamalt, eða með öðrum börnum, er dýrmætt. En leikfang, sem einhver fullorðinn þarf alltaf að vera með er ekki að- eins gagnslaust, heldur jafnvel skað- legt. Leyfið bömunum líka að eiga leik- föngin ein. Sameiginleg eign getur oft valdið deilum meðal óþroskaðra barna. En svo getur það líka verið prýðilegt að börnin eigi sameiginlega nokkur leikföng og venji sig á að skiptast á um þau; bömin læra á þann hátt að virða annarra eign og rétt. mjög þunn, svo að meira af eitr- inu fer út í blóðið. Reykið ekki of rakt tóbak. Það er meira af nikotini í reyknum, þeg- ar tóbakið er rakt. Þess vegna era vindlinga- og vindlastubbar miklu sterkari en hinn hluti vind- ilsins. 6. Það er vísindalega saxmað, að mjóir vindlar og vindlingar era ekki eins skaðlegir og þeir svera, búnir til úr sama tóbaki. 7. Nikotinlausir vindlar eru ekki til. Til eru veikir og sterkiír vindlar. Það er alltaf hyggilegt að reykja veikt tóbak, en fyrir háls- inn er það jafn skaðlegt og sterkt tóbak. 8. Huggun fyrir konur, sem hafa börn á brjósti og reykja: Við hóf- legar reykingar er ekki hægt að finna nikotin i mjólkinni. ■iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiii Bókin AlmœlSsdagar er komin aftur. Þessi vinsæla og eftirsótta bók fæst nú í öllum bókabúðum, en henni hefir seinkað um skeið, vegna skorts á bókbandsskinni og hlífðarpappír. Afmælisdagar er bezta fermingargjöfin. Bókoútgáfan Huginn. iiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimiiii

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.