Vikan


Vikan - 15.08.1946, Side 2

Vikan - 15.08.1946, Side 2
2 VIKAN, nr. 33, 1946 Á bamaspítala einum í Boston er það venja, að þegar sjúkling- ur fer heim heilbrigður, þá setji hann tölu, títuprjón eða ein- hvem annan lítinn hlut á stóra töflu á spítalaganginum. Þarna sést 18 mánaða snáði vera að stinga nælu í þessa töfiu. Frá milli- landakeppninni. (Sjá forsíðu). Efsta myndin: Forseti íslands (í miðju) gengur inn á völlinn. Benedikt G. Waage, fors. Iþrótta- sambands Islands t. h., Brynjólfur Jóhannesson, form. móttökunefndar t. v. Að baki þeim forseta- ritari. — Myndin fyrir miðju: Báðum liðunum stillt upp. Háskólinn i baksýn. — Neðsta mynd- in: Hinn mikli mann- grúi. Áætlað er, að á vellinum hafi verið um 10 þús. manns. (Ljósm. Vikan). Pósturinn Kæra Vika! Ég er ein af hinum mörgu lesend- um þínum. fig hefi mjög gaman af að læra kvæði og vísur, sem ég hefi aðeins heyrt, en ekki getað náð að læra. fig held að þær byrji svona: 1. Blærinn í laufi, hvíslandi hljótt. 2. Þú kemur, vina mín, í kvöld, er máninn skin. Ég treysti þér til að birta áfram- haldið fyrir mig, ef þú átt það ein- hvers staðar í pokahominu eða getur útvegað það. Með fyrirfram þökk fyrir svarið. Ein ljóðelsk. Svar: ÉG ANN I»ÉB. Þú kemur vina mín, í kvöld, er máninn skin. Við þræðum þekkta slóð — þú ert svo góð. fig ungur unni þér, þín ást er helgust mér, hún vefur sumri og söng um siðkvöld löng. Við hlýðum klökk og sátt á kvöldsins andardrátt er húmið hylur gnmd. Það er heilög stund. Nú veiztu, ástin mín, hve oft ég minnist þín. Nú einan áttu mig. fig elska þig. Kvæðið er tekið úr „Hörpuljóð" og er eftir V. H. Hallstað, en lagið við það er eftir Óskar J. Cortes. Kvæðið „Blærinn í laufi“ birtum við í pósti jólablaðs Vikunnar 13. desember 1945. Kæra Vika. Ég ætla að biðja þíg um að skera úr deilu, sem ég hefi lent í við vin minn, um það hvort Rifstangi eða Hraunhafnartangi nái lengra norður. fig hefi einhvers staðar séð, að sam- kvæmt nýjustu mælingum nái Hraun- hafnartangi lengra norður. Er það rétt ? Tveir fáfróðir. Svar: 1 landafræði Bjarna Sæ- mundssonar segir að samkvæmt síð- ust'u landmælingum nái Hraunhafn- artangi álíka langt norður og Rifs- tangi (66y2° Nbr.). Góða Vika mín! Viltu nú ekki vera svo góð að segja mér eftirfarandi: Hvað er forsetinn okkar, Sveinn Bjömsson, gamall? Hvenær er hann fæddur og hvar? Hvað er forsetafrúin gömul og hvar fædd. Veiztu, hvað lengi þau eru búin að vera í hjónabandi? Svar: Forsetinn er fæddur 27. febrúar 1881 í Kaupmannahöfn, en forsetafrúin 18. janúar 1884 og er frá Hobro á Jótlandi. Þau giftust 2. september 1908. Kæra Vika! Viltu koma okkur í bréfasamband. við pilta og stúlkur á aldrinum 19 —22 ára. Óskum að mynd fylgi bréfi. Hálfdán Haraldsson, Sigrún Haraldsdóttir, Þorvaldsstöðum, Skeggjastaðahreppi, N.-Múl. Kæra Vika! Heldur þú, að þú getir svarað þessum spurningum fyrir mig, því að þú ert svo dugleg að svara í póst- inum þínum. 1) Hvaða daga í vikunni eru flugferðir til Isafjarðar og þarf að panta far fyrirfram og hvað þá löngu fyrirfram? 2) Hvað er gjaldið fyrir fullorðna og hvað fyrir böm frá 1—2 ára? Hvað lestu úr skriftinni minni ? Virðingarfyllst. Isfirzk kona. Svar: Loftleiðir h.f. halda uppi daglegum ferðum milli Reykjavíkur og Isafjarðar, ef veður leyfir. Fyrir- vari á pöntun fars er undir því kom- inn, hvað oft er hægt að fljúga og hversu ferðamannastraumurinn er mikill. Fargjaldið fyrir fullorðna er 210 kr., en fjórði hluti þess fyrir börn 1—2 ára. — Lesum ekki úr skrift. Kæra Vika! Ég er 16 ára gömul og 168 cm. á hæð, hvað á ég að vera þung? Hvað lestu úr skriftinni. Vonast eftir svari í næsta blaði. Helena. Ó. V. Svar: Þér eigið að vega 62,88 kg. Við lesum ekki úr skrift. v V V V V V V v *:< V í ♦ V V V V V V V V V V ►5 ►5 v ►:< v V $ Til ferðalaga: Tjöld, margar stærðir, Bakpokar, $ Svefnpokar, v V V v v v v Hliðartöskur, Hlífðarpokar utanum svefnpoka. Burðarólar, Tjaldhælajárn, Kortahulstur, Brauðkassar, Diskar, Mál, Bollar, Glös, Aliskonar fatnaður til ferðalaga. ALLAK FÁANLEGAR SPORTVÖRUR Á EINUM STAÐ. SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU. m í V V V V V V V V *;< V V *5 v *5 v v V >5 v V V *:< V *J V V V V V v v V V V V >♦< V •♦< iT/ ♦ V •♦< V V *♦< •♦< *:< V ►J ^ $ }♦{ Austurstræti 4. — Sími 6538. * *:< >>»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»>>>>>>>:;t; Útgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. GuSmundsson, Tjarnargötu 4, sími 5004, pósthólf 365.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.