Vikan


Vikan - 15.08.1946, Qupperneq 7

Vikan - 15.08.1946, Qupperneq 7
VIKAN, nr. 33, 1946 7 MYND FRÁ DÁLEIÐSLUSKÓLA IV Hér sést, er dávaldurinn segist vera fyndinn. Hinn skellihlær. Meðan menn eru undir svona sterkum áhrifum finna þeir til einskis, sé þeim skipað það, og þeir skjálfa, ef þeim er sagt að kalt sé, og svitna, ef sagt er að heitt sé. Hann lauk upj> munni sínum, „Sælir eru friðflytjendur, þvi að kenndi og sagði: „Sælir eru syrgj- þeir mimu Guðs synir kallaðir endur, því að þeir munu huggaðir verða.“ verða.“ „Sælir eruð þér, þá er menn atyrða „Sælir eru miskunnsamir, því að yður og ofsækja og talandi ljúgandi þeim mun miskunnað verða.“ illt um yður min vegna." 1 Ameriku hefir karlmönnum, sem e'ru nýlausir úr herþjónustu verið leyfð innganga í kvennaskóla. Er þetta bráðabirgðaráðstöfun, sem gerð var vegna mikillar aðsóknar. Myndin er frá kvennaskóla, þar sem 85 ára venja var brotin á þennan hátt. MYNDIR ÍJR BLADAMANNABÓKINNI. (Framhald af bls. 3). blöð valdhafanna, þurrar og andlausar upptalningar á fyrirmælum þeirra. Þjóð- irnar hafa fyrirfram vitað að þau væru ekki annað en skrifstofufyrirmæli og stjórnarákvarðanir. Slík blaðamennska hefur aldrei flutt vekjandi storm, aldrei brotið nýjar brautir í andlegum og ver- aldlegum efnum, en aðeins haft það hlut- verk að halda því við sem var og liggja sem mara á nýjum gróðri sem allt af hlýt- ur að koma neðan úr þjóðlífinu sjálfu, en ekki að ofan, frá valdhöfum, sem ríkja í mætti ofbeldis og harðstjórnar. Einn fremsti brautryðjandi íslenzkrar blaðamennsku, Björn Jónsson ritstjóri, sagði, er hann hóf starf sitt með útgáfu fsafoldar: „Blöðin eru einskonar opin bréf, ekki frá kansellíinu, heldur frá þjóð- inni til þjóðarinnar, frá öllum til allra. fsafold á að vera þjóðblað . . . ekki ein- ungis blað fyrir alla þjóðina, heldur frá allri þjóðinni . . .“ Og þetta ættu að vera einkunnarorð allra íslenzkra blaðaútgef- enda og blaðamanna. Blöðin eiga ekki að vera opin bréf frá ,,kansellíinu“ heldur frá þjóðinni til þjóðarinnar, vettvangur henn- ar í umræðum um viðfangsefnin á hverj- um tíma, orrustuvöllur fólksins, þar sem það skýlmist með andlegum vopnum á heiðarlegan hátt með aðeins eitt fyrir augum: hag og líf þjóðarheildarinnar, menningu hennar og framtíð." Paganini og ökukarlinn. Margar sögur eru sagðar um hinn fræga fiðlu- leikara Paganini og fer hér á eftir ein þeirra: Dag nokkum veifaði Paganini í vagn og bað ökumanninn að aka sér til hljómleikahússins. t>að var að visu ekki langt þangað, en hann varð að hraða sér, því að áheyrendurnir voru þegar búnir að fullskipa salinn og biðu þess með eftir- væntingu, að listamaðurinn léki fyrir þá á einn streng. „Hvað kostar þetta," spurði hann ökumanninn. Maðurinn, sem hafði þekkt listamanninn, svaraði: „Tíu franka". „Hvað segið þér, eruð þér að hæðast að mér.“ „Alls ekki. Þetta er það sama, sem þér takið fyrir einn miða að hljómleikunum yðar." Paganini þagði um stund, en rétti síðan öku- manninum, vingjarnlegur á svipinn, riflega þókn- un og sagði: „Já, ég er fús til að greiða yður tiu franka þann dag, sem þér akið mér til hljómleikahússins á einu hjóli."

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.