Vikan


Vikan - 19.09.1946, Side 3

Vikan - 19.09.1946, Side 3
VIKAN, nr. 38, 1946 3 Siglufjörður bœr síldarinnar (Sjá forsíðu). Athafnalífið á Siglufirði varðar íslenzku þjóðina miklu. TVTokkrir staðir á þessu landi hafa náð 1 ” því að verða heimsfrægir. Má þar nefna til dæmis Geysi og Heklu. Ekki skal hér fullyrt, að Siglufjörður hafi náð þeirri frægð, að vera þekktur um heim allan, en hitt má fullyrða, að Siglufjörður er sá bær á þessu landi, sem mest er þekktur erlend- is, að okkar kæru höfuðborg undanskilinni. En hvað er það, sem hefir gert Siglufjörð svo frægan sem raun ber vitni ? Það er hin fagra og feita norðlenzka hafsíld, sem flest sumur veður upp að Norðurlandi í tugmilljóna eða tug-biljóna tali. Hundruð innlendra og erlendra veiði- skipa leita til Norðurlandsins strax í júní- lok ár hvert til að draga síldargullið úr djúpi Ægi konungs. Flest árin veiðist mik- ið, en fæst árin er veiðin lítil. Árið í ár og fyrra eru fremur sjaldgæf hvað aflabresti á síldveiðum viðvíkur. Miðstöð allra þessara mörgu skipa á sumrum er Siglufjörður. Á Siglufirði í sumar. Allt í gangi í síldarbænum. Reykháfurinn, sem hæst ber á myndinni, tilheyrir Síldarverksmiðju ríkisins. (Þorsteinn Jósepsson tók myndina). Um hverja helgi leita hundruð erlendra skipa hafnar. Má þar líta norsk, sænsk, finnsk og færeysk skip, auk hinna íslenzku. Er þá stundum þröngt á götum Sigluf jarð- ar, því auk alls þess fjölda sjómanna, sem leitar í land í hvíldartímum sínum, er og allur sá fjöldi verkafólks, sem þangað sækir til atvinnu yfir síldveiðitímann á 1 sumar er búið að salta á öllu Norðurlandi um 150 þús. tunnur, þar af á Siglufirði einum rúm hundrað þúsund. Á myndinni sjást saltsíldartunnur, sem hafa verið fylltar. (Þorsteinn Jóseps- son tók myndina). Siglufirði. Hundruð síldarmeyja, sunnan, vestan, austan og norðan að safnast þar saman. Og ef síldin er næg er líka mikið að þéna, því síldarsöltun þarf að vera hraðvinna og er venjulega vel borguð. Á Siglufirði eru margar síldarverk- smiðjur. Islenzka ríkið hefir reist þar margar • stórar verksmiðjur, og mun sú, er nú er verið að ljúka við, vera ein stærsta í Evrópu. Þá hefir Siglufjarðarbær reist síldarverksmiðju, sem kölluð er „Rauðka“ (gamalt nafn). Þegar allar þessar verksmiðjur eru í gangi, er oft óþefur mikill, sem leggur . hátt til lofts og vítt um f jörðinn. Aðkomu- maður einn sagði, er samferðamenn hans voru að fárast um ólyktina, „ó, þetta er bara peningalykt“. Þegar haustar að hverfa skipin heim, sum langt yfir höfin blá, kvenfólkinu fækk- ar á götunum, síldarbraggarnir tæmast, ólyktin hverfur og Siglufjörður fær aftur sinn venjulega haust-, vor og vetrarsvip. Fyrir heimaverandi Siglfirðinga hlýtur það að vera eitthvað tómlegt, þegar haustar að og allt, sem gaf kaupstaðnum líf og svip, er horfið. En ár kemur eftir þetta ár, næsta vor kemur með vonir um góðan afla. Undirbúningur er hafinn að næstu vertíð. Sumarið kemur og þá kem- ur líka síldin og eins og áður segir flest árin mikil. Skulum við vona að næsta sumar uppfylli betur vonir fiskimannanna um mikla síldveiði, og miklar tekjur en sumarið sem nú er að líða gerði.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.