Vikan


Vikan - 05.12.1946, Page 13

Vikan - 05.12.1946, Page 13
VTKAN, nr. 49, 1946 13 BOLLUDAGURINN BARNASAGA BöRNIN voru boðin á grimudans- leik á bolludaginn. Var það til Andersens stórkaupmanns, sem átti stórt hús. Börn kaupmannsins, Georg og Bodil fengu að bjóða öllum bekkjasystkinum sínum. „Æ, hvað ég vildi að ég ætti eins fallegan búning og Bodil!“ andvarp- aði Inga og lét sig dreyma um allar þær perlur og þann silkiskrúða, sem hin rika kaupmannsdóttir átti að bera. „Ég vildi líka gjarnan eiga fín riddaraföt eins og Georg,“ sagði Axel, „við verðum víst að vera í þeim gömlu frá þvi í fyrra. Ég get varla komizt í fíflbúninginn minn og Rauðhettu-kjóllinn þinn er orðinn leiðinlegur." „Ég ætla að fara upp á geymslu- loftið og vita, hvort ég finn ekki eitt- hvað, sem við getum verið í,“ sagði Inga eftir dálitla umhugsun. Börnin voru á leiðinni heim, úr skólanum, þegar þau voru að tala rnn þetta. Án þess að gefa sér tíma til að fara úr yfirhöfnunum hlupu þau upp á geymsluloftið, þar sem ýmsir gamlir hlutir og föt lágu. „Hvers vegna ætli þessi gamla klukka sé látin standa hérna uppi?“ sagði Inga og horfði á stóru klukk- una, sem var fyrir löngu hætt að ganga. „Ganghjólið i henni er hrokkið í sundur, en pabbi heldur að hægt sé að gera við það og ætlar hann að setja það í viðgerð, þegar hann hef- ir efni á því,“ sagði Axel. „Hjálpaðu mér,“ sagði Inga og togaði í ábreiðu, sem lá ofan á körfu með fötum í. „Ég ætla að hjá, hvað er í körf-----.“ Hvað var nú þetta! — Axel sá tungl og stjörnur i kringum sig, en allt í einu varð albjart í kringum hann og hann sá, að hann stóð fyrir framan undarlegan kofa. „Hvernig hefi ég komizt hingað?" hugsaði hann og gekk að dyrunum til að spyrja til vegar heim. 1 sama bili kom gömul kona út úr „Góðan daginn, drengur minn. Ertu kominn til að heimsækja mig? Eða ætlaðirðu ef til vill að fá hjá mér grimubúning til að vera í á bolludag- inn" spurði kerlingin. Búning? Þetta var góð hugmynd, kerlingin gat þá hjálpað honum. „Ég vildi gjarnan fá Indíánabún- ing, ef hann verður þá ekki of dýr fyrir mig.“ „Dýr? Hann kostar ekkert!" svar- aði kerlingin og hló svo hrottalega, að Axel varð kvíðinn. „En ég get ekki gert þig að Indí- ána,“ hélt kerlingin áfram, „nei, það kofanum — það var eymdarlegasta mannvera, sem hann hafði séð. Þeg- ar hún gekk, studdi hún sig við tvo stafi og á höfðinu bar hún háan, odd- hvassan hatt, sem minnti á sykur- topp, og allur annar klæðnaður henn- ar var mjög furðulegur. Axel hafði aldrei séð nokkurn mann svona til fara og var því hálfórólegur. get ég ekki. — En ég ætla að stinga upp á öðru við þig — hvað segirðu um að verða björn — raunveruleg- ur bjöm?“ „Ég veit ekki------,“ stamaði Axel og var á báðum áttum, en kerling- in hló bara og tautaði nokkur óskilj- anleg orð. Síðan rétti hún fram ann- an stafinn og sló honum í hann. 1 sama bili fann Axel, að hann breytt- ist í björn. • „Æ, hvað er þetta?" ætlaði hann að segja, en gat ekki annað en rum- ið dálítið og þá hljóp hann út í skóg. Hvað átti hann að gera af sér? Enginn vissi að það var Axel, sem reikaði um í líki skógarbjörns — enginn nema viðbjóðslega kerlingin, sem var galdranorn. 1 sorg sinni og örvæntingu tók hann ekki eftir, hvert hann hljóp, og allt i einu rak hann ennið í trjástofn — hann opnaði undrandi augun og litaðist um í kringum sig. „Mamma, Axel er raknaður við,“ hrópaði Inga. Hann sá nú að mamma og Inga stóðu við hlið hans og þvoðu ennið á honum upp úr köldu vatni. „Það var meiri skelfingin, sem greip okkur, drengur rninn!" sagði mamma og lagði blautan svampinn á enni hans, þar sem stór kúla hafði þotið upp. Axel glennti upp augun og starði í kringum sig. Æ, hvað það var yndis- legt að vera aftur kominn í herberg- ið sitt! „Hvernig komst ég heim? Er ég þá ekki skógarbjörn?" spurði hann. „Hvar er kerlingin? Æ, mér er svo illt í höfðinu." „Þú ert ekki ennþá með réttu ráði!“ sagði mamma. — „Gamla klukkan uppi á geymsluloftinu valt um koll og féll á ennið á þér. Þú fékkst slæma kúlu og höfuðverk, það verður allt búið á morgun." Raunar var kúlan lengur, en hún var horfin á bolludaginn. Axel og Inga urðu ofsaglöð, þegar móðir þeirra sýndi þeim nýja, fallega búninga, sem hún' hafði saumað handa þeim. 1 þetta skipti áttu þau ekki að vera í gömlu fötunum. Axel fékk Indíánabúninginn, sem hann h afði óskað sér, en Inga dansmeyjarkjól úr svörtu og rauðu silki. í djörfum leik. Þetta er nafn á bók, sem Hlaðbúð hefir nýlega gefið út og eru það frásagnir af íþróttasigrum eftir Þorstein Jósepsson blaðamann. Fremst í bókinni stendur Væringjar 1. bók, svo að búast má við, að hér sé um upphaf að bókaflokki að ræða. Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi skrifar eftirfarandi formála: „Islendingar hafa ávallt metið mikils frásagnir af afreksmönnum. — Á hinum ýmsu íþróttamótum, sem oftsinnis eru haldin hér og úti í löndum, koma fyrir at- vik í keppninni eða hátíðleg augnablik, sem hafa orðið áhorfendunum ógleymanleg og hafa verið skráð. Bók þessi er safn slíkra frásagna. Höfundur bókarinnar, Þorsteinn Jóseps- son blaðamaður, er landsmönnum kunnur fyrir skemmtilegar ritsmíðar um ferðalög og íþróttir. Þó að hann geti ekki talizt höf- undur frásagnanna að öllu leyti, heldur sé í ýmsum tilfellum um eins konar endur- sagnir að ræða, þá hefur hann fært þær í þann búning, sem þeim má bezt fara yfir íslenzka lesendur. Mér hefir við lestur þeirra fundizt sem ég væri ýmist kominn á áhorfendabekk stórs leikvangs, gripinn af æsingu keppn- innar, eða í spor keppandans, sem með Ame Borg, Svíinn, sem vann frábæra sigra í sundi. Um hann er bráðskemmtilegur kafli í bók- inni „1 djörfum leik“. beitingu hugsunar, vilja og hæfni vöðva, berst við snjalla keppendur til þess að ná sem lengst, hæst eða hraðast. Grunntónn allra frásagnanna er þrautseigjan, dreng- skapurinn og göfugmennskan." Kaflarnir eru þessir: Ólympíuleikar hefjast í Berlín. — Christl Cranz, skíða- drottningin þýzka. — Matti Járvinen, spjótkastarinn með undna handlegginn. — Þegar Arne Borg fór til Ástralíu. — Spiridon Luis, geitahirðirinn, sem gat sér heimsfrægð. — Ólympiskar boðflennur. — Hlaupaþrístirnið finnska, Salminen, Leht- inen, Höckert. — Paavo Nurmi, konungur þolhlauparanna. — Andrew Charlton, sel- urinn frá Sidney. — F. H. Liddell, Skotinn, sem brá sér úr prestshempunni og setti heimsmet í 400 st. hlaupi. — Jesse Owens, svarti methafinn. — Hjátrú íþróttamanna. Það er lítill vafi á því, að þessa bók vill íslenzk æska eignast. Og ekki spilla mynd- irnar fyrir henni. Jóna: Hvenær er dóttir þín aS hugsa um að giftast ? María (annars hugar): Hún er alltaf að hugsa um það. Konan: Ég hefi oft óskað mér þess, að ég væri karlmaður. Maðurinn: Ég líka.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.