Vikan - 10.07.1947, Side 15
VIKAN, nr. 28, 1947
15
Tvær nýjar bækur eftir Ólaf Jónsson, höfund hiils mikla ritverks
ÓDÁÐAHRAUNS, er út kom í þremur bindum 1&45.
i ^ B H • B B ^ Þessi ljóð eru óður fjallafarans til hinna miklu
ES jfj P B B'H H víðátta, hressandi og fersk, eins og' háfjallaloftið.
B ■ H 1 1 I ■ BJ H Cfl — Hálöndin eru frjáls og ósnortinn heimur, fullur
9 af huldulöndum og undrasýnum. Hið skammvinna
sumar á öræfunum vekur upp fyrir sjónum ferðamannsins huliðsheima þjóðsagnanna í tíbrá og
hillingum. — Þangað biður höfundur lesandann að fylgja sér, yfirgefa ys og þys byggðarinnar,
„útvarps, bíla, síma“ — „orðaskvaldur, glaum og glys“.
Oræfaglettur
Árið 1880 fundust rústir af fomum mannahíbýlum frammi í
Hvannalindum. Víst er um, að mættu steinamir í hmndum
veggjunum mæla, kynnu þeir harmsögu, sem hulin er móðu
og mistri ára og alda. — Sagan Öræfaglettur gerist að mestu
í kofa á lindasvæði uppi á öræfum. Aðalpersónur sögunnar em ungur piltur, sem flýr á fjöll und-
an rangsleitni byggðarmanna, og ung daladóttir, sem forlögin leiða á fund útlagans. — Glettur
öræfanna magnast, ýmist mjúkar og mildar, eins og hillingar, sólmóðunnar á söndunum við
Herðubreið, eða harðar og hrjúfar, eins og storknað hraunið.
A þessum furðusióðum gerist ástarsaga, sem engan órar um, hvemig ráðast muni, nema hann
lesi hana, en það mim kosta vökunætur.
Þetta eru bækurnar, sem menn taka með sér í sumar-
leyfið, og þeir, sem heima sitja njóta töfra óbyggð-
anna í f jarvist.
Niðurjöfnunarskrá
Skrá yfir aðalniðurjöfnun útsvara í Reykjavík fyrir
árið 1947 liggur frammi almenningi til sýnis í skrifstofu
borgarstjóra, Austurstræti 16, frá 30. júní til 13. júlí n. k.,
kl. 9—12 og 13—16,30 (þó á laugardögum aðeins kl.
9—12).
Kærur yfir útsvörum skulu sendar niðurjöfnunarnefnd,
þ. e. í bréfakassa Skattstofunnar í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu, áður en liðinn er sá frestur, er niðurjöfn-
unarskráin liggur frammi, eða fyrir kl. 12 á miðnætti
sunnudaginn 13. júlí n. k.
Fulltrúi niðurjöfnunamefndar verður til viðtals í Skatt-
stofunni virka daga, aðra en laugardaga, á þessu tíma-
bili, kl. 4—6 eftir hádegi.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
29. júní 1947.
Gunnar Thoroddsen
Skattskrá Reykjavíkur
er til sýnis í Skattstofu Reykjavíkur frá mánudegi 30.
júní til laugardags 12. júlí, að báðum dögum meðtöldum,
kl. 9—16,30 daglega.
I skattskránni em skráð eftirtalin gjöld: tekjuskattur,
tekjuskattsviðauki, eignarskattur, eignarskattsviðauki,
stríðsgróðaskattur, tryggingargjald einstaklinga, skír-
teinisgjald og námsbókagjald.
Jafnframt er til sýnis yfir sama tíma : skrá um iðgjalda-
greiðslur atvinnuveitenda, vikuiðgjöld og áhættuiðgjöld,
samkvæmt 112. og 113. gr. laga um almannatryggingar.
Skrá um þá menn í Reykjavík, sem réttindi hafa til
niðurgreiðslu á kjötverði.
Kærufrestur er tvær vikur, og þurfa kærur að vera
komnar til Skattstofu Reykjavíkur, eða í bréfakassa
hennar, í síðasta lagi kl. 24, sunnudagmn 13. júlí n. k.
Skattstjórinn í Reykjavík,
Halldór Sigfússon