Vikan


Vikan - 01.01.1948, Side 3

Vikan - 01.01.1948, Side 3
VIKAN, nr. 1, 1948 3 Söngfélag I.O.G.T. í Reykjavík fimmtán ára. Sjá forsíðu. Söngstjóri, stjórn og heið- ursfélagar SöngfélagsI.O.G.T. Standandi, talið frá vinstri: Ottó Guðjónsson, söngstjóri, Númi Þorbergsson, ritari, Jóhannes Jóhannesson, for- maður. — Sitjandi talið frá vinstri: Jón Alexandersson, Steindór Björnsson, og Bent Bjamason, gjaldkeri. Þfeir síðari þrír voru gerðir heið- ursfélagar á afmælishátíð- inni 5. desember; hafa starf- að fyrir félagið frá stofnun og þeir Jón og Bent sungið með frá því fyrsta. I yfirliti því, sem um getur á forsiðunni, er sagt, að það sé eingöngu um blandaðan kórsöng innan stúknanna í Reykjavík; þó hefir höfundur „haft spumir af tilraun til að stofna karlakór innan stúknanna og frétt af mörgum skammlíf- um flokkum". Talið er, að „Hlínarsöngfélagið" sé fyrsta söng- félagið innan Góðtemplarareglunnar í Reykjavík. Af því fór mikið orð í bænum, og völdust í það einhverjir beztu söngkraftar, er þá vom hér til. Gengu ýmsir i stúkuna um stund aðeins til þess að fá að vera í söngfélaginu, þótt ekki væm þeir þó raunverulega templarar, né yrðu það. En starf- semin lagðizt niður með fráfalli Halldórs Lárus- sonar haustið 1903. Um líkt leyti stjórnuðu Árni, verzlunarm. og leikari, Jónas Helgason og Brynjólfur Þorláksson söngflokkum innan Reglunnar og á árunum 1920 —’30 Bjami Pétursson, Hallgrímur Þorsteinsson og Theódór Ámason. Hugmyndin og fyrsti undirbúningurinn að stofnun Söngfélags I. O. G. T. er talinn hafa komið fram i dagsljósið á Þingvöllum eftir stórstúku- þingið 1932. Er farið var að iitast um eftir söng- stjóra, benti Páll Isólfsson forgöngumönnunum á nemanda sinn í Tónlistarskólanum, Jakob Tryggvason. Sunnudaginn 20. nóv. 1932 var stofnfundur Gleðilegt nýár! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Agnar Norðf jörð & Co. h.f. haldinn i Templarahúsinu. Þar var félaginu gefið nafnið Söngfélag I. O. G. T. og kosin fyrsta stjórn. Skipti hún síðan þannig með sér verkum: Hjörtur Hansson, form., Hannes Guðmundsson, varaform., Jón B. Jónsson ritari og Guðmundur Benjamínsson, gjaldkeri. Síðan var sarrúð við söngstjórann, Jakob Tryggvasson og gerð starfs- áætlun, en framhaldsaðalfundur var 18. des. og þá samþykkt lög fyrir félagið. Stofnendur eru taldir hafa verið 35 og 8 bættust við síðar um veturinn, Jakob fluttist til Akureyrar sumarið 1941 og tók þá bróðir hans, Jóhann Tryggvason, við stjórn Söngfélagsins um skeið, en upp úr því lagðist starfsemi þess niður um tíma. Seinni hluta vetrar 1945 varð Ottó Guðjónsson aðalhvata- maður þess, að hafist var handa á ný og tók hann að sér að stjórna kórnum. Hafði Ottó fyrst komið í félagið veturinn 1933—’34. En nú hafði hann lagt um árabil mikið á sig I tíma og fé til að læra, eftir föngum, söngstjóm og fleira til- heyrandi og svo í tvo vetur æft sig dálítið við stjóm á telpnasöngflokkum úr barnastúkunum. Síðan hefir hann verið ein aðaldriffjöðrin í félaginu með sinn óbilandi áhuga og starfs- og offurvilja, einsog segir í áðurnefndu yfirliti. Söngfélag I. O. G. T. gekkst á sínum tíma fyrir þvi, að „Landsamband blandaðra kóra“ var stofnað 5. des. 1938. ^iiiiiiiNimmiuiiiiiiiiiiiamMiiHmiiiuiiMauiifflNiiiwiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiitiinr^ Gleðilegt nýár! Þökkum viðskiptin á liðna árinu. Kexverksmiðjan Frón h.f. ''i ■HMNUUmmiUI TÍrvaT 6. hefti 6. árg. er komið í bókabúðir. EFNI : Hinn kunni brezki ritliöfundur C. S. Lewis, skrifar jólahug:- vekjn og kallar hana: Jólaræða fyrir heiðingja. Ný og mjög merkileg lælininga- aðferð hefur rutt sér til rúms. Raflost við tauga- og geðsjúkdómum. Hver þekkir ekki svolítið af sjálfum sér í þessari skemmtilegu lýsingu? Hetja á f lugi. Eru vísindin með tilraunum sínum komin að þröskuldi lífsins? Hafa vísindin fundið „andardrátt Iífsins“? Margskonar hjátrú hefur löngum fylgt sjóferðum og siglingum. Hjátrú sjómanna. Grein þessi er skrifuð fyrir norska lesend- ur, um norskar aðstæður, en hún getur líka verið umliugsunarefni íslenzkum lesendum. Um f jöll og list •— og sitthvað fleira. Af myndunum og' textanum, sem hér fer á eftir, gcturðu lært — Að búa til andlitsgrímu. Þekktasti vísindamaður heimsins segir, að það sem mannkyninu ríði mest á nú, sé — Ný heimsskoðun. Uppeldisfræðingur segiri „Lofið börnunum að læra með höndunum.“ Eigum við að bæla niður sorg okkar, eða eigum við a<^ veita henni útrás? Sorg og huggun. Hvað veldur hinni gjörbreyttu afstöðu Ameríkumanna til Japana? Átökin um Japan. óvenjuleg réttarfarssaga. Enginn efi. Það er fróðlegt að bera saman þcssar tvær merkilegu skordýrategundir. Samjöfnuður á maurum og býflugum. „Meinleg örlög margan hrjá. . .“ Harmsaga aðstoðarprestsins. Nokkrar nýjungar í vísindum: Ný lækning við magasári. Geðveiki læknuð með barnapela. Minnsti mótor í heimi. Ástandið á Bigini einu ári eftir kjarnorkusprengjutilraunina. Jarðvegur og heilbrigði. Tvær kunnar, írskar skáldkonur skrifa um — Daglegt líf á Irlandi. Eitt af meginsjónarmiðum hins sanna lýðræðis á að vera — Réttlæti gagnvart liinum fáu. Kókos-Keelingeyjarnar eru réttnefndar — Sælueyjamar á Kyrrahafi. Við köllum það bíladellu. En Ameríku- nienn eru liátíðlegri, þeir kalla það — Bílaást. B ó k i n : Oscar Wilde. Æfisaga hins mikla, enska glæsimennis og rithöfundar, sem óefað var fyndnastur og and- ríkastur allra þeirra, er skrifað hafa á enska tungu.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.